Fréttablaðið - 13.06.2015, Side 48
KYNNING − AUGLÝSINGÍslenski jarðvarmaklasinn LAUGARDAGUR 13. JÚNÍ 20158
Jarðvarmi er einn af grundvallar-þáttum í orkubúskap Íslendinga. Á síðasta ári stóð jarðhiti undir
tæplega 30% af raforkuframleiðslu í
landinu og rúmlega 90% allra heim-
ila landsins eru kynt með jarðhita.
Markvissar rannsóknir og skipuleg
nýting á jarðvarma, sem rekja má
aftur til 1970, hafa sparað þjóðar-
búinu milljarða króna og dreg-
ið úr innflutningi á jarðefnaelds-
neyti, með tilheyrandi jákvæðum
umhverfislegum áhrifum að sögn
Ingva Más Pálssonar, skrifstofustjóra
á skrifstofu iðnaðar og orkumála í
atvinnuvega- og nýsköpunarráðu-
neytinu. „Fjöldi íslenskra fyrirtækja
vinnur að málefnum sem tengj-
ast rannsóknum og nýtingu á jarð-
varma. Þessi fyrirtæki koma úr ólík-
um áttum og því var það skynsamleg
ákvörðun að efna til klasasamstarfs
þeirra á milli fyrir nokkrum árum.
Ég tel að þessi jarðvarmaklasi marki
okkur ákveðna sérstöðu og sé lyk-
ill að því að efla samkeppnis hæfni
þessa iðnaðar til frekari vaxtar og
þróunar, þar sem áhersla er lögð á
sjálfbæra nýtingu jarðhitaauðlind-
arinnar og auknar rannsóknir.“
Ingvi segir að sú víðtæka þekking
og reynsla sem jarðvísindamenn hér
á landi, og fyrirtæki í geiranum, hafa
aflað sér undanfarna áratugi að því
er varðar nýtingu jarðvarma sé eftir-
sótt víða um heim þar sem jarðhita
er að finna, hvort sem er til raforku-
vinnslu eða húshitunar. „Öflugur ís-
lenskur jarðvarmaklasi skiptir því
miklu máli í þessu sambandi og hafa
stjórnvöld stutt við bakið á honum
frá stofnun hans. Hann er mikilvæg-
ur liður í því að efla hvers konar sam-
starf milli fyrirtækja á þessum vett-
vangi, stjórnvalda, rannsóknarstofn-
ana og háskólasamfélagsins.“
Umtalsverð áhrif
Að sögn Ingva hefur ekki verið tekin
saman, svo hann viti, heildstæð
greining á efnahagslegum áhrif-
um jarðvarma á íslenskt samfé-
lag. „Þó er ljóst að þau eru umtals-
verð og má þar t.d. benda á tækni-
geirann og þjónustufyrirtæki tengd
honum sem þjónusta jarðvarma- og
orkugeira landsins á einn eða annan
hátt. Áætlað hefur verið að fjöldi sér-
fræðinga sem starfa beint við jarð-
varma sé um 1.000, en heildarfjöldi
starfa sem tengjast jarðvarma er mun
meiri.“
Hann bendir á nýlega skýrslu um
Auðlindagarð á Reykjanesi en þar er
talað um 500-600 störf sem tengjast
beint jarðhitanýtingu á svæðinu og
að annað eins megi rekja til óbeinna
starfa. Þá kemur einnig fram í skýrsl-
unni að talið sé að eitt af hverjum
fjórum nýjum störfum á Suðurnesj-
um árið 2011 hafi tengst Auðlinda-
garðinum með einum eða öðrum
hætti. „Sem áður segir erum við ár-
lega að spara miklar fjárhæðir með
því að nýta jarðvarma til húshitunar
í stað innflutts jarðefnaeldsneytis og
hefur Orkustofnun áætlað að árleg-
ur sparnaður sé í kringum 115 millj-
arðar króna, miðað við að hitað væri
með olíu. Ef menn vilja leika sér að
tölum þá nemur þannig uppsafnaður
núvirtur sparnaður fyrir þjóðar búið
um 2.300 milljörðum króna frá árinu
1915 til dagsins í dag. Það munar um
minna.“
Fjöldi tækifæra
Ráðuneytið hefur að sögn Ingva átt í
mjög góðu samstarfi við jarðvarma-
klasann. „Frumkvæðið að stofnun
hans var hjá atvinnulífinu og þeim
fyrirtækjum sem mynda klasann og
hefur ráðuneytið, og stjórnvöld al-
mennt, stutt við klasann og þau verk-
efni sem unnin hafa verið á vettvangi
hans án þess að vera beinn þátttak-
andi í klasanum.“
Hann segir fjölda tækifæra vera til
frekara samstarfs sem sé til skoðun-
ar. „Sem dæmi má nefna að stjórn-
völd hafa reynt að liðka fyrir þátt-
töku íslenskra fyrirtækja í jarðhita-
verkefnum erlendis, meðal annars í
gegnum Þróunarsjóð EFTA og með
samstarfssamningum við erlend
ríki.“
Íslensk stjórnvöld hafa reynt að
efla vitund um möguleika og kosti
jarðvarmanýtingar í þeim löndum
þar sem hann er að finna. „Stað-
reyndin er sú að t.d. innan Evrópu-
sambandsins er takmörkuð þekking
á jarðvarmanýtingu, hvort sem er til
húshitunar eða raforkuvinnslu, en
aukin hlutdeild jarðvarma í orkubú-
skap ESB-landanna, þar sem hún er
möguleg, fellur einmitt vel að stefnu-
mótun ESB um aukna hlutdeild
endur nýjanlegrar innlendrar orku.“
Jarðvarmaklasi skiptir máli
Víðtæk þekking og reynsla íslenskra jarðvísindamanna er eftirsótt víða um heim. Öflugur jarðvarmaklasi skiptir því miklu máli til að
efla samstarf fyrirtækja, stjórnvalda, rannsóknarstofnana og háskólasamfélagsins. Fjöldi tækifæra er til frekara samstarfs á þessu sviði.
„Ég tel að þessi jarðvarma-
klasi marki okkur ákveðna
sérstöðu og sé lykill að því
að efla samkeppnishæfni
þessa iðnaðar,“ segir Ingvi
Már Pálsson, skrifstofu-
stjóri á skrifstofu iðnaðar og
orkumála í atvinnuvega- og
nýsköpunarráðuneytinu.
MYND/GVA
Endurskoðunar- og ráðgjafar-fyrirtækið KPMG er með eina stærstu ráðgjafardeild landsins
en hún veitir fyrirtækjum og stofn-
unum alhliða fjármálaráðgjöf. Eins
og flestir þekkja er KPMG jafnframt
eitt stærsta ráðgjafarfyrirtæki í heimi
með skrifstofur um allan heim. „Á
ráðgjafarsviði okkar starfa um 30
manns með sérþekkingu í mismun-
andi atvinnugreinum. Þar af er fimm
manna teymi sem sérhæfir sig í að
þjónusta orkugeirann og orkufreka
iðnaðinn,“ segir Gunnar Tryggva-
son sem leiðir þá vinnu, en teym-
ið hefur unnið fyrir nánast öll orku-
fyrirtæki landsins og langstærstan
hluta orkufreka iðnaðarins. Gunn-
ar hefur jafnframt komið að stefnu-
mótun stjórnvalda í orkumálum og
sat í Orkustefnunefnd og var formað-
ur Sæstrengsnefndar sem skilaði áliti
sínu til iðnaðarráðherra fyrir tveim-
ur árum.
Ísland hefur að sögn Gunnars
mikla sérstöðu þegar kemur að nýt-
ingu jarðvarma. „Hér hefur byggst
upp mikil þekking sem er til dæmis
mjög áþreifanlegt þegar horft er til Ís-
lenska jarðvarmaklasans. Við erum
hluti af honum og erlendir viðskipta-
vinir leita til okkar bæði beint og í
gegnum skrifstofur KPMG erlendis.
Starf okkar felst aðallega í gerð fjár-
hagsáætlana og líkana fyrir ný jarð-
varmaverkefni, í aðstoð við lánveit-
endur við mat á áhættu verkefna, í
aðstoð við kaup og sölu jarðvarma-
fyrirtækja og verkefna og í gerð
markaðsgreiningar fyrir þjónustu-
fyrirtæki á jarðvarmamarkaði.
Stór hluti jarðvarmans í heim-
inum finnst í þróunarlöndum sem
getur bæði talist jákvætt og nei-
kvætt. „Það gerir fjárfestum erfiðara
fyrir en þeir sem láta til skarar skríða
leggja hins vegar óbeint sitt af mörk-
um til þróunaraðstoðar. Þá styðja al-
þjóðlegu þróunarbankarnir mjög við
fjárfestingu í grænni orku í þróunar-
löndunum og nýtur jarðvarminn
ávinnings af því um þessar mundir.“
Sem stendur er KPMG að vinna
í nokkrum verkefnum á erlendri
grund. „Við erum að aðstoða indó-
nesísk stjórnvöld við lánveitingar til
jarðvarmaverkefna. Þá erum við að
aðstoða viðskiptavini í Þýskalandi og
Ítalíu við kaup á jarðhitaverkefnum.
í Austur-Afríku vinnum við svo að
því að verðmeta jarðhitaverkefni svo
dæmi séu nefnd,“ upplýsir Gunnar.
Jarðhitinn er að sögn Gunnars
hluti af grænu byltingunni í heimin-
um. „Hann verður þó aldrei nema lít-
ill hluti enda aðeins raunhæfur kost-
ur á hluta jarðskorpunnar. Þar sem
hann er raunhæfur er hann hins
vegar gríðarlega góð viðbót enda er
hann mjög áreiðanleg orkulind og al-
gerlega óháður veðri, vindum og sól-
skini. Hins vegar er nýting jarðvarma
alls ekki einföld og fjárfestar forðast
hann stundum vegna þess að það er
erfitt að gera sér grein fyrir áhætt-
unni. Þar kemur til okkar kasta en við
aðstoðum þá við að skilja áhættuna
og jafnvel að draga úr henni.“
Gunnar segir mestu áhættuna
fólgna í því að yfirleitt þarf að fjár-
festa töluvert áður en liggur fyrir
hvort hægt sé að nýta auðlindina.
Hann tekur dæmi: „Þegar um er
að ræða vindorku þarf að fjárfesta
langt undir einu prósenti af heildar-
fjárfestingu áður en tekin er endan-
leg ákvörðun um byggingu vind-
orkugarðsins. Einungis þarf að setja
upp vindmæla sem eru mjög ódýr-
ir og keyra þá í tvö ár. Þeir sem ætla
að ráðast í gerð jarðvarmavirkjunar
geta hins vegar þurft að fjárfesta um
tíu prósent fyrir fram áður en ljóst er
hvort af virkjuninni geti orðið,“ út-
skýrir Gunnar.
Hann segir að menn hafi í gegnum
tíðina þurft að hverfa frá nokkrum
verkefnum en sem betur fer verða
þó flest þeirra að veruleika. „Menn
eru þá verðlaunaðir með orkuveri
sem gengur nánast 24 klukkustund-
ir, sjö daga vikunnar árið um kring í
ár og áratugi og þess njótum við Ís-
lendingar. Við vonumst svo til að
geta breitt þá þekkingu út sem víð-
ast.“ Sem dæmi má nefna elstu jarð-
varmavirkjun Íslands í Bjarnarflagi
sem byggð var fyrir 45 árum. Þótt
notuð hafi verið tækni sem ekki þætti
boðleg í dag þá er hún enn í gangi.
Eigandi hennar hefur hins vegar
fyrirætlanir um að endurnýja hana
og stækka þegar leyfi liggja fyrir og
markaðsaðstæður eru góðar.
Gunnar segir menn hafa skynj-
að talsverða lægð fyrst eftir hrun
en síðustu misseri hefur markað-
urinn tekið við sér og verkefnin
hlaðist upp. „Við höfum auk þess
verið að bjóða í verkefni með ís-
lensku verkfræðistofunum en slík
teymisvinna getur verið gríðarlega
sterk og skilað miklum árangri. Við
erum farin af stað með eitt verkefni
með Mannviti og erum með annað
útboð með Eflu sem við vonumst til
að lenda.“
Erlend verkefni sífellt veigameiri
Nýting jarðvarma er ekki einföld og þurfa þeir sem hyggja á gerð slíkra virkjana oft að leggja í töluverða fjárfestingu áður en liggur
fyrir hvort af henni geti orðið. Þá kemur til kasta KPMG sem aðstoðar fjárfesta við að skilja áhættuna og draga úr henni.
Stór hluti jarðvarmans í heiminum finnst í þróunarlöndunum sem getur að sögn Gunnars bæði talist jákvætt og neikvætt. MYND/STEFÁN