Fréttablaðið - 13.06.2015, Side 50

Fréttablaðið - 13.06.2015, Side 50
FÓLK|TÍSKA Madame Carven eða Carmen De Tomasso fædd-ist árið 1909 í Frakklandi. Hún lærði innanhúss-hönnun og arkitektúr við Ecole de Beaux Arts en ákvað að gerast kjólameistari í staðinn. Carmen var lítil og nett og þótti erfitt að finna föt við hæfi. Hún ákvað því að búa til fatalínu sem hentaði smágerðum konum árið 1945 undir nafninu Carven. Hún sá fljótt að ungar konur höfðu úr litlu að moða þegar kom að fatnaði. Hönnuðir þess tíma einbeittu sér fremur að eldri konum. Hún fór því að hanna föt á yngri konur. Hún elskaði grænt og hvítt og bjó til grænan og hvítan sumarkjól sem hún kallaði Ma Griffe. Í dag er það heiti á frægu ilmvatni frá Carven og dregur dám af kjólnum. Carven varð fljótt afar vinsælt merki og stjörnur keppt- ust við að klæðast því. Madame Carven hætti að hanna fyrir merkið þegar hún var 84 ára. Guillaume Henry var gerður listrænn stjórnandi merkisins árið 2009 og hefur síðan hafið þetta gamla merki aftur til vegs og virðingar. Segja má að í töskunum hennar Mörtu komi saman heilög þrenning; íslensk hönnun, ítalskt leður og sauma- skapur Portúgala,“ segir Kolbrún Árnadóttir, verslunarstjóri Mörtu Jónsson í Kringlunni. Hún segir marga verða hissa sem koma í skóbúðina. „Það eru alls ekki allir sem átta sig á því mikla úrvali af töskum sem er að finna hérna,“ segir hún en allar töskurnar eru hannaðar af Mörtu líkt og allt annað í verslunum Mörtu Jóns- son. Úrvalið er mikið. Hægt er að fá allt frá litlum samkvæmisveskjum upp í stórar tuðrur. „Tuðrurnar eru vinsælastar núna,“ segir Kolbrún en mikið er lagt upp úr gæðum og vönduðum frágangi. „Töskurnar eru fóðraðar og með mjög skemmtilegt skipulag. Þar má finna fjölmörg hólf fyrir síma, lykla, varaliti og margt fleira.“ Innt eftir því hvaða litir séu vin- sælastir svarar Kolbrún: „Stein- grái liturinn er mjög vinsæll núna en svarti liturinn er alltaf klass- ískur. Gulbrúnn tan-litur kemur líka sterkur inn. Litlu samkvæmis- töskurnar okkar fást síðan í fleiri litum eins og rauðum og bláum.“ Verslun Mörtu Jónsson í Kringl- unni var opnuð í október í fyrra og Kolbrún segir viðtökurnar hafa verið afar góðar. „Í Kringlunni eru flestir viðskiptavinir okkar Íslend- ingar en útlendingar eru fleiri í verslun okkar á Laugavegi 51 sem var opnuð fyrir einu og hálfu ári.“ Marta Jónsson er þekktust fyrir skóhönnun sína. Kolbrún segir fjölmargar nýjungar að finna þar. „Við erum nýbúin að fá herralínu og þá erum við farin að selja barnaskó með litlum skvísu- hælum sem eru mjög sætir.“ GOTT SKIPULAG „Töskurnar eru fóðraðar með mjög skemmtilegt skipulag. Þar má finna fjölmörg hólf fyrir síma, lykla, varaliti og margt fleira.” FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið ritstjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Svanur Valgeirsson | Hönnun: Silja Ástþórsdóttir Sölumenn: Bryndís Hauksdóttir, bryndis@365.is, s. 512 5434 Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@365.is, s. 512 5429 GÆÐATÖSKUR Í MÖRTU JÓNSSON MARTA JÓNSSON KYNNIR Fallegar töskur úr ítölsku leðri, saumaðar af fagmönnum á Portúgal og hannaðar af skóhönnuðinum Mörtu Jónsson, fást í miklu úrvali í verslunum Mörtu Jónsson í Kringlunni og á Laugavegi 51. MIKIÐ ÚRVAL Töskurnar úr smiðju Mörtu Jónsson eru af öllum stærðum og gerðum og fást í ýmsum litum. Verslunarstjórinn Kol- brún segir steingráu töskurnar njóta mikilla vinsælda um þessar mundir. MYND/STEFÁN MADAME CARVEN FELLUR FRÁ GOÐSÖGN Tískugoðsögnin Madame Carven lést nýverið, 105 ára gömul. Hún var samtíða Christian Dior, Pierre Balmain og Hubert de Givenchy. Hún ruddi brautina fyrir aðra kvenhönnuði í tískuheimi sem stjórnað var af körlum. MADAME CARVEN Frúin kunni tökin á markaðssetningu og hannaði til dæmis heila línu árið 1950 í anda myndarinnar Gone with the Wind sem kom út í Frakklandi á sama tíma. ������ �������������������������������������� Skipholti 29b • S. 551 0770 Útsala hafin! Frábær tilboð á Útsölu ht.is Engin venjuleg upplifun Við kynnum Philips Ambilight 9000 sjónvörpin með Android
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.