Fréttablaðið - 13.06.2015, Síða 65
| ATVINNA |
Staða aðstoðarskólastjóra
Fellaskóla
Fellaskóli er heildstæður grunnskóli í Reykjavík þar sem
rúmlega helmingur nemenda býr við annað tungumál á
heimili en íslensku. Nemendur skólans eru alls um 320.
Í skólanum er leitast við að sníða skólastarfið í samræmi
við eðli og þarfir nemenda. Í Fellaskóla er litið svo á að
menningar legur fjölbreytileiki auðgi skólastarfið og lögð
er áhersla á að virðing sé borin fyrir uppruna og menningu
einstaklinga. Við skólann er starfrækt sérdeild fyrir einhverf
börn.
Helstu verkefni og ábyrgð
• Að vera í forystu um mótun og framkvæmd faglegrar
stefnu skólans innan ramma laga og reglugerða og í
samræmi við aðalnámskrá grunnskóla og skólastefnu
Reykjavíkurborgar
• Að hafa faglegt utanumhald um skólanámskrárvinnu
og skólaþróunarverkefni
• Að vinna að starfsþróun
• Að bera ábyrgð á og stjórna daglegri starfsemi skólans í
samstarfi við skólastjóra
• Að vinna að öflugu samstarfi innan skólasamfélagsins
Menntunar og hæfniskröfur
• Leyfi til að nota starfsheitið grunnskólakennari og
kennslureynsla í grunnskóla
• Reynsla af faglegri forystu í skólaþróunarverkefnum
• Stjórnunarreynsla í grunnskóla æskileg
• Metnaður í starfi og áhugi á skólaþróun
• Lipurð og færni í mannlegum samskiptum
• Sjálfstæði í vinnubrögðum
Umsókn skal fylgja yfirlit yfir nám og fyrri störf, leyfisbréf til
að nota starfsheitið grunnskólakennari auk annarra gagna
er málið varðar. Einnig er óskað eftir að með umsókninni
fylgi stutt greinargerð um framtíðarsýn umsækjanda á
skólastarf. Staðan er laus frá og með 1. ágúst 2015.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra
sveitarfélaga og KÍ. Umsækjendur eru beðnir að sækja um
starfið á heimasíðu Reykjavíkurborgar,
www.reykjavik.is/storf.
Umsóknarfrestur er til 23. júní 2015.
Nánari upplýsingar um starfið gefur Kristín Jóhannesdóttir
skólastjóri í síma 4117530 eða með því að senda fyrirspurn á
kristin.johannesdottir@reykjavik.is
Skóla- og frístundasvið
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut
kynja í störfum og að vinnustaðir borgarinnar endurspegli það
margbreytilega samfélag sem borgin er.
www.skra.is
www.island.is
Þjóðskrá Íslands óskar eftir að ráða öflugan og reyndan einstakling í starf
sviðsstjóra mats- og hagsviðs á starfsstöð stofnunarinnar í Reykjavík.
Sviðsstjóri mats- og hagsviðs
Sviðsstjóri mats- og hagsviðs fer með yfirstjórn og þróun matskerfa
og matsaðferðafræða fyrir fasteignamat og brunabótamat.
Á mats- og hagsviði starfa sjö manns.
Sviðsstjóri mats- og hagsviðs stýrir starfsemi starfseiningarinnar
með faglegt öryggi og rekstrarlega hagkvæmni að leiðarljósi í
samræmi við hlutverk stofnunarinnar, markmið og starfsáætlanir.
Hann stýrir starfsmönnum sviðsins, mótar vinnu starfseiningarinnar
með því að setja hverju viðfangsefni markmið og eftir atvikum
mælikvarða, starfsáætlun og að unnið sé samkvæmt gæðakerfi
og staðli um öryggisstjórnun upplýsingakerfa.
Helstu verkefni:
• Árlegt endurmat fasteignamats og brunabótamats
• Ákvörðun matsaðferða
• Þróun og rekstur matskerfa
• Forsögn um matsframkvæmd
• Útgáfa hagrænna upplýsinga
• Yfirumsjón verkefna
• Samvinna við önnur svið stofnunarinnar
• Samskipti við önnur opinber stjórnvöld, hagsmunaaðila
og viðskiptavini
Hæfniskröfur:
• Framhaldsmenntun á sviði verkfræði, stærðfræði
eða annars háskólanáms sem nýtist í starfi
• Reynsla af stjórnun
• Marktæk reynsla af verkefnastjórnun stórra verkefna
• Greiningarhæfni og geta til að setja fram forskrift að
tölvukerfum
• Reynsla af því að vinna í stórum og flóknum tölvukerfum
• Þekking og reynsla af gagnagrunnum og SQL
Um er að ræða fullt starf og þarf umsækjandi að geta hafið
störf sem fyrst.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum opinberra
starfsmanna. Athygli er vakin á því, að umsóknir geta gilt
í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út. Öllum
umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu
hefur verið tekin.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Sigurbjörg J.
Narby Helgadóttir mannauðsstjóri hjá Þjóðskrá
Íslands á netfanginu sjh@skra.is.
Umsóknarfrestur er til og með 29. júní 2015.
Umsóknum skulu fylgja ítarlegar starfsferilskrár og
kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar
og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið.
Umsóknir óskast sendar á netfangið starfsumsoknir@skra.is.
Hjá Þjóðskrá Íslands starfa yfir 100 starfsmenn. Verkefni stofnunarinnar eru mjög fjölbreytt og heldur stofnunin m.a. fasteignaskrá og þjóðskrá, gefur út
fasteignamat og brunabótamat, rekur vefinn island.is og sér um útgáfu vegabréfa. Þjóðskrá Íslands leggur metnað sinn í að sinna verkefnum sínum af
fagmennsku og áreiðanleika. Stofnunin hefur það að leiðarljósi að starfsmönnum líði vel í starfi og leggur áherslu á að vinnustaðurinn sé fjölskylduvænn.
Gildi stofnunarinnar eru virðing, sköpunargleði og áreiðanleiki.
• Reynsla af því að vinna í öryggisstjórnun
upplýsingakerfa æskileg
• Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
• Frumkvæði og geta til að starfa sjálfstætt sem og í hóp
• Forystuhæfileikar, metnaður og skipulagshæfileikar
• Góð kunnátta í íslensku og ensku er skilyrði og
æskilegt er að kunna eitt Norðurlandamál
Ölgerðin óskar eftir að ráða verksmiðjustjóra til starfa.
Upplýsingar veita:
Þórir Þorvarðarson
thorir@hagvangur.is
Sverrir Briem
sverrir@hagvangur.is
Umsóknir óskast fylltar út á
www.hagvangur.is
Umsóknarfrestur er til og
með 22. júní nk.
SKÓGARHLÍÐ 12 105 REYKJAVÍK SÍMI 520 4700
www.hagvangur.is
Verksmiðjustjóri
Ölgerðin er eitt stærsta fyrirtæki landsins á sínu sviði. Ölgerðin framleiðir, flytur inn,
dreifir og selur matvæli og sérvöru af ýmsum toga. Starfsemi Ölgerðarinnar er vottuð
skv. ISO 9001 og unnið er að úttekt samkvæmt ISO 22000.
Ábyrgðarsvið
• Verksmiðjustjóri ber ábyrgð á starfsemi framleiðsludeilda Ölgerðarinnar
• Er ábyrgur fyrir að framleiðsluáætlanir náist í samvinnu við
framkvæmdastjóra og áætlanastjóra
Starfssvið
• Styður við markmið Ölgerðarinnar að vera fyrsti valkostur
viðskiptavina og neytenda
• Stjórnunar- og rekstrarleg ábyrgð þeirra deilda sem honum
tilheyra í samvinnu við framkvæmdastjóra
• Tekur þátt í vinnu vegna ISO 9001 og ISO 22000
• Hefur frumkvæði að umbótum í rekstri sinna deilda og tekur
þátt í öðrum umbótaverkefnum
• Leitar alltaf hagkvæmustu leiða í rekstri með heildarhagsmuni
Ölgerðarinnar að leiðarljósi
Sambönd og samskipti
• Samskipti við stjórnendur og starfsmenn Ölgerðarinnar
• Samskipti við erlenda vélabirgja, núverandi og væntanlega,
eftirlitsaðila og aðra sem koma að starfsemi sviðsins
Menntun og hæfni
• Verkfræði-, tæknifræðimenntun og/eða önnur
háskólamenntun sem nýtist í starfi ásamt starfsreynslu
sem nýtist í starfinu
• Hæfni í mannlegum samskipum
• Lausnamiðuð hugsun
LAUGARDAGUR 13. júní 2015 9