Fréttablaðið - 13.06.2015, Page 89
KYNNING − AUGLÝSING Íslenski jarðvarmaklasinn13. JÚNÍ 2015 LAUGARDAGUR 9
Unnið hefur verið að því undanfarin ár að auka erlenda starfsemi Mannvits sam-hliða því að bæta þjónustuna við íslenska
markaðinn. „Þetta helst í hendur og vöxtur er-
lendis tryggir viðskiptavinum okkar á Íslandi
aðgang að enn meiri sérfræðiþekkingu,“ segir
Árni Magnússon, framkvæmdastjóri orku.
Hann bætir við að þegar árangur utan Íslands
náist séum við í aðstöðu til að halda í okkar fær-
ustu sérfræðinga á sviði jarðhitanýtingar. „Sam-
starf fyrirtækjanna í jarðhitaklasanum hefur svo
þau áhrif að við stöndum betur að vígi gagn-
vart erlendri samkeppni sem er býsna hörð. Á
undanförnum árum hafa tekjur af orkutengd-
um verkefnum farið minnkandi innanlands. Á
sama tíma hefur okkur hins vegar tekist að auka
þjónustuna erlendis. Í heildina séð hefur velta í
orkunni því aukist og árið 2014 hafa tekjur okkar
í fyrsta skipti verið meiri utan Íslands. Það er
jafnframt ánægjulegt að bygging Þeistareykja-
virkjunar sé komin af stað og við vonum að það
sé meira fram undan.“
Frá jarðvísindum og borráðgjöf til virkjunar-
hönnunar
Árni segir að helstu styrkleikar Mannvits séu
þeir að þar sé að finna sérþekkingu og reynslu
á öllum sviðum jarðhitaþróunar á einum stað.
„Þá á ég við þekkingu á sviði umhverfis- og jarð-
fræðirannsókna, borráðgjafar, virkjunarhönn-
unar, verkefnastjórnunar, eftirlits- og rekstrar-
ráðgjafar. Þannig getum við annast alla þætti
jarðhitanýtingar frá upphafi til enda. Með sam-
spili Mannvits og dótturfélaga þess, Vatnaskila,
LWRC í Bretlandi, Mannvits í Ungverjalandi og
GTN í Þýskalandi, getur félagið tryggt faglega
þjónustu á öllum sviðum jarðvarma. Hvert félag
býr yfir tiltekinni sérþekkingu og saman mynda
þau afar sterka heild,“ bætir hann við.
Mannvit í fremstu röð
Ísland er mikilvægasti markaður Mannvits
að sögn Árna en fyrirtækið er líka í fjölbreytt-
um verkefnum annars staðar í heiminum. „Eitt
þeirra er svokallað EGS-rannsóknarverkefni í
Ungverjalandi sem Evrópusambandið styrkti og
mun líklega skipa Mannviti í fremstu röð tækni-
og þekkingarfyrirtækja sem beita sér fyrir ný-
sköpun í nýtingu jarðvarma. Verkefni sem við
vinnum í Afríku og Asíu eru virkilega spenn-
andi og þar eru mikil tækifæri í jarðhitanum,“
segir Árni.
Mannvit er ráðgjafi eigenda í nokkrum virkj-
unum í Afríku. Eitt verkefnanna sem kemur til
með að skipta verulegu máli til framtíðar að
mati Árna er tæknileg ráðgjöf við jarðhitasjóð
Geothermal Risk Mitigation Facility (GRMF)
sem er fjármagnaður af þýskum og alþjóðlegum
þróunarbönkum. „Sjóðnum er ætlað að aðstoða
fyrirtæki á fyrstu skrefum jarðhitaverkefna og
stuðla þannig að aukinni nýtingu á jarðhita um
alla Austur-Afríku. Í Asíu komum við að hönn-
un og undirbúningi á jarðhitavirkjun á Biliran-
eyju í Filippseyjum fyrir Orku Energy og í Suður-
Ameríku og Karabíska hafinu eru verkefni sem
lofa góðu.“
Tekjur orkutengdra
verkefna meiri utan Íslands
Mannvit sinnir fjölbreyttum verkefnum á sviði jarðhitaþróunar víða um heim. Velta í erlendum verkefnum tengdum orku hefur aukist
undanfarin ár hjá fyrirtækinu og stefnt er að því að auka erlenda starfsemi þess enn frekar samhliða því að bæta þjónustu hér á landi.
Árni segir aukna starfsemi Mannvits erlendis tryggja viðskiptavinum hérlendis aðgang að meiri sérfræðiþekkingu.
MYND/GVA
1
1
4
4
2
2
5
5
3
3
6
6
7
7
A A
B B
C C
D D
E E
Árangur í verki
Sérfræðingar Mannvits leysa fjölbreytt verkefni í jarðvísindum, umhverfi smálum, borun, áætlanagerð,
vélaverkfræði, þróun tæknilausna og verkefnastjórn. Áratugareynsla og þekking skilar viðskiptavinum
okkar traustri ráðgjöf á sviði orku, iðnaðar og mannvirkjagerðar samkvæmt ströngustu gæðakröfum.