Fréttablaðið - 13.06.2015, Side 92

Fréttablaðið - 13.06.2015, Side 92
KYNNING − AUGLÝSINGÍslenski jarðvarmaklasinn LAUGARDAGUR 13. JÚNÍ 201512 Jarðhitaskóli Sameinuðu þjóðanna hefur aðsetur í Reykjavík en skólinn var stofnaður árið 1979. Skólinn er rekinn af Orkustofn- un samkvæmt sérstökum samningi við Háskóla Sameinuðu þjóð- anna og hefur á þessu tímabili útskrifað 583 nemendur frá 58 löndum. Nemendur skólans hafa því flutt út dýrmæta þekkingu Íslendinga á þessu sviði og stuðlað um leið að uppbyggingu víða um heim í samstarfi við heimamenn. Hlutverk Jarðhitaskólans hefur alla tíð verið að veita ungum sérfræðingum frá þróunarlöndum sérhæfða þjálfun í rannsókn- um og nýtingu jarðhita. Fyrir vikið er skólinn mikilvægt framlag í þróunaraðstoð Íslendinga. Fyrstu árin voru Kínverjar fjölmennir í hópi nemenda en undanfarin ár hefur fjölmennasti hópur nem- enda komið frá Austur-Afríku, þá helst Kenýa, en það land var það fyrsta sem náði 100 nemenda fjöldanum á síðasta ári. Nemendur sem sækja skólann þurfa að vera frá þróunarlöndun- um, hafa lokið háskólagráðu og unnið í eitt ár við jarðhita. Einnig verða þeir að vera yngri en 40 ára og tala ensku. Að námi loknu snúa þeir til baka til heimalands síns og eru skyldugir til að vinna í þrjú ár við ríkisrekin orkufyrirtæki og miðla þannig þekkingunni til baka inn í viðkomandi samfélag. Síðasta útskrift var í október á síðasta ári en þá útskrifuðust 29 nemendur frá 14 löndum. Í dag eru 30 nemendur við nám í Jarð- hitaskólanum frá 15 löndum en útskrift þeirra er áætluð í október á þessu ári. Útflutningur þekkingar Nemendur frá 58 löndum hafa sótt nám við Jarðhitaskólann. MYND/JARÐHITASKÓLINN Íslendingar eiga stóran þátt í tveimur alþjóðlegum ráð-stefnum á sviði jarðvarma sem haldnar verða hér á landi á næstu árum. Sú fyrri verður hald- in á næsta ári og ber heitið Ice- land Geothermal Conference (IGC 2016) en sú síðari ber heitið World Geo thermal Congress (WGC 2020) og fer fram árið 2020. Aðkoma Ís- lendinga að skipulagi ráðstefn- anna sýnir vel hversu framarlega þjóðin stendur á sviði jarðvarma- vísinda að sögn Rósbjargar Jóns- dóttur, viðburðastjóra hjá Iceland Geo thermal-klasasamstarfinu, enda sé hér á landi að finna marga af fremstu sérfræðingum heims á þessu sviði. „IGC-ráðstefnan er eitt þeirra stóru verkefna sem Iceland Geothermal-klasasam- starfið stendur fyrir. Samstarf- ið hófst haustið 2009 og var fyrsta ráðstefnan haldin 2010, þegar Michael Porter prófessor og sér- fræðingar hans hjá Harvard Busi- ness School kynntu kortlagn- ingu Íslenska jarðvarmaklasans í samvinnu við ráðgjafarfyrir- tækið Gekon. Markmið þessarar kortlagningar var að draga fram hvernig hægt væri að styrkja inn- viði atvinnugreinarinnar hér á landi.“ Ráðstefnan fór fram fyrir fullu Háskólabíói að sögn Rósbjargar en í kjölfarið hvöttu aðilar klas- ans til þess að byggt yrði á þess- um grunni og sett á laggirnar al- þjóðleg jarðvarmaráðstefna þar sem þekkingu og reynslu íslenskra sérfræðinga yrði komið á framfæri á heimavelli. Hámarksupplifun „Ákveðið var að halda Iceland Geothermal Conference á þriggja ára fresti. Önnur ráðstefnan var haldin í mars 2013 og þóttist takast sérstaklega vel en hana sóttu 600 gestir af 40 þjóðernum. Þriðja ráð- stefnan verður svo haldin í apríl á næsta ári þar sem fókusinn verður á fjölnýtingu jarðvarmans, sem er sérstaða Íslendinga.“ Að sögn Rósbjargar hafa nú þegar verið settir upp nokkr- ir hliðar viðburðir samhliða ráð- stefnunni 2016 sem tryggir að vænta megi fjölda sérfræðinga alls staðar að úr heiminum til Ís- lands þessa vikuna. „Sérfræð- ingar sem við vinnum með við skipulagninguna kalla þetta frek- ar „jarðvarmavikuna á Íslandi“ en hefðbundna ráðstefnu. Reynt er að hámarka upplifun þátttakenda, faglega og félagslega, skapa þeim ný viðskiptatækifæri og möguleika á að efla þau sem fyrir eru, auk þess að ná að upplifa auðlindina af eigin raun. Vettvangsferðir eru þess vegna afar mikilvægur liður í dag- skrá ráðstefnunnar.“ Rósbjörg segir sérstöðu ráðstefn- unnar ekki síst felast í nálægðinni við auðlindina, greiðum aðgangi að íslenskum jarðhitasvæðum og sérfræðingum, sérvöldum fyrir- lesurum hvaðanæva að úr heimin- um sem tryggja gæði ráðstefnunn- ar og fyrsta flokks aðstöðu. „IGC- ráðstefnurnar hafa stuðlað að því að Ísland er orðið vettvangur fyrir umræðu á sviði jarðvarma á heims- vísu. Með það að leiðarljósi er ljóst að við sjáum að þessi viðburður þróist í takt við þau málefni sem snerta jarðvarmageirann hverju sinni og tekið verður á þeim með markvissum hætti.“ Hnepptu hnossið World Geothermal Congress (WGC 2020) er alheimsráðstefna jarð- Merkilegar ráðstefnur fram undan Tvær stórar alþjóðlegar ráðstefnur á sviði jarðvarma verða haldnar hér á landi á næstu árum. Iceland Geothermal Conference verður haldin á næsta ári en þar verður fókusinn á fjölnýtingu jarðvarma. Alheimsráðstefna jarðvarmans verður síðan haldin hér eftir fimm ár. Ísland tók formlega við umboðinu til að halda World Geothermal Congress fyrr á árinu. MYND/ÚR EINKASAFNI „Reynt er að hámarka upplifun þátttakenda, faglega og félagslega, skapa þeim ný viðskiptatækifæri og möguleika á að efla þau sem fyrir eru,“ segir Rósbjörg Jónsdóttir, viðburðastjóri hjá Iceland Geothermal-klasasamstarfinu. MYND/VALLI Landsnet // Gylfaflöt 9 // 112 Reykjavík // Sími 563 9300 // landsnet@landsnet.is // landsnet.is // @Landsnethf Í nútímaþjóðfélagi þurfa allir að hafa aðgang að rafmagni AT H YG LI -0 6 -2 0 15 Við flytjum rafmagn
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.