Fréttablaðið - 13.06.2015, Side 93
KYNNING − AUGLÝSING Íslenski jarðvarmaklasinn13. JÚNÍ 2015 LAUGARDAGUR 13
Hugmyndafræði Kadeco bygg-ir á því að skapa á Ásbrú ein-stakt samfélag frumkvöðla,
fræða og atvinnulífs þar sem aðilar
koma saman og skapa nýjar lausnir
og ný tækifæri,“ segir Kjartan Eiríks-
son, framkvæmdastjóri Þróunarfélags
Keflavíkurflugvallar ehf., Kadeco.
Þróunarfélagið sérhæfir sig í fast-
eignaþróun, verkefnum sem auka
samkeppnishæfni f yrirtækja á
Reykjanesi og verkefnum sem efla
frumkvöðlamenningu á svæðinu
og frá árinu 2006 hefur Kadeco leitt
þróun og uppbyggingu varnarsvæð-
isins með ákveðna sýn að leiðarljósi.
Sú sýn byggir á helstu styrkleikum
svæðisins, klösum tengdum heilsu,
tækni og flugi og flugtengdri starf-
semi þar sem stór nýsköpunarverk-
efni mynda kjarna að atvinnuupp-
byggingu og skapa grundvöll fyrir
smærri fyrirtæki. „Hryggjarstykki
þessara klasa er svo öflugt mennta- og
rannsóknarsamfélag þar sem fyrsta
þróunarverkefni Kadeco, mennta-
fyrir tækið Keilir, leikur stórt hlutverk.
Markmið Kadeco og Keilis eru bein-
tengd og mun sérhæft hlutverk Keil-
is verða drifkraftur vaxtar svæðisins
í framtíðinni,“ útskýrir Kjartan.
Tækifæri við alþjóðaflugvöll
Lega Ásbrúar við stóran alþjóða-
flugvöll skapar tækifæri fyrir upp-
byggingu margháttaðrar þjónustu-
starfsemi í tengslum við flug og flug-
sækna starfsemi. Að sögn Kjartans
er horft til erlendra verkefna sem
skilað hafa árangi.
„Með skýrri stefnumörkun,
meðal annars að erlendri fyrir-
mynd, er hægt að innleysa þessi
tækifæri og breyta þeim í verðmæta
hagvaxtarvél sem mun opna nýjar
gáttir fyrir íslenskt atvinnulíf. Þar
sem skipulega hefur verið staðið að
slíkri uppbyggingu erlendis hefur
náðst mikill árangur í uppbyggingu
atvinnulífs og efnahags umsvifa,“
segir Kjartan.
Gagnaver og heilsutengd fram-
leiðsla meðal verkefna
Ásbrú er í lykilaðstöðu til að laða
að sér ábatasaman gjaldeyrisafl-
andi iðnað, svo sem gagnaver og
heilsutengda framleiðslu og þjón-
ustu. Rekstur gagnavera mun aðeins
koma til með að aukast á heimsvísu
ásamt eftirspurn eftir grænni orku
að sögn Kjartans.
„Uppbygging gagnavera á Ásbrú
er í örum vexti og starfa nú fjögur
af fimm gagnaverum á landinu á
Ásbrú. Þar á meðal er fyrsta gagna-
verið á Ásbrú og jafnframt stærsta
gagnaver landsins, Verne Glo-
bal, sem nýlega lauk við hlutafjár-
aukningu fyrir tæplega 13 milljarða
króna. Með því er ætlað að auka af-
kastagetu gagnaversins og útvíkka
þjónustuframboð þess vegna vax-
andi eftirspurnar.“
Forskot Íslands á forsendum
hreinleika og grænna lausna
Markaðir tengdir heilsu eru í örum
vexti á sama tíma og þeir eru að
miklu leyti ómótaðir. Þekking-
in í þessum geira er ekki bundin
ákveðnum heimssvæðum eða fyr-
irtækjum og segir Kjartan Ísland
hafa tækifæri til að skapa sér sam-
keppnis forskot á forsendum hrein-
leika og grænna lausna.
„Opnun og stækkun á örþörunga-
verksmiðju Algalífs á Ásbrú er vist-
væn nýsköpun, og stór og mikilvæg-
ur áfangi í heilsutengdri uppbygg-
ingu á svæðinu. Algalíf beitir nýrri
tækni við ræktun örþörunga og starf-
ar á hratt stækkandi næringarlyfja-
markaði með miklum vaxtartæki-
færum. Hagstæð skilyrði, svo sem
hreinleiki umhverfisins ásamt kostn-
aði við raforku og vatn, er lykilþátt-
ur í þróun og rekstri fyrirtækja sem
þessa og þar liggur sérstaða Íslands.“
„Frumkvöðlafyrirtækið geoSilica
sem er til húsa í frumkvöðlasetrinu
á Ásbrú er annað glæsilegt fyrirtæki
í heilsuklasa Ásbrúar. Fyrirtækið
framleiðir hágæða kísilríkar heilsu-
vörur úr affallsvatni jarðvarmavirkj-
ana á Íslandi. Stofnendur fyrirtækis-
ins eru fyrrverandi nemendur Keil-
is og var lokaverkefni þeirra upphaf
þessa áhugaverða fyrirtækis.“
Stuðningur við uppbyggingu
lykilatriði
Með þessum áherslum hefur skap-
ast grundvöllur fyrir atvinnuþróun
á svæðinu sem annars hefði ekki
komið til. Kjartan segir stuðning við
áframhaldandi uppbyggingarstarf
menntunar og rannsókna lykilatriði
í uppbyggingu svæðisins.
„Tenging Keilis við atvinnulífið
er mikilvægur þáttur í að laða að er-
lenda fjárfestingu á Ásbrú og liður í
því að grípa tækifærin sem flugvöll-
urinn skapar í alþjóðlegu umhverfi.
Með samstilltum strengjum þessara
þátta náum við að fjárfesta í samfé-
lagi framtíðarinnar.“
Ásbrú öflugt samfélag mennta
og rannsókna á Reykjanesi
Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar ehf., Kadeco, sérhæfir sig í fasteignaþróun, verkefnum sem auka samkeppnishæfni fyrirtækja
á Reykjanesi og verkefnum sem efla frumkvöðlamenningu á Reykjanesi. Kadeco leiðir meðal annars uppbyggingu fyrrverandi
varnarsvæðis til borgaralegra nota, svæðis sem nú heitir Ásbrú. Félagið er í eigu fjármálaráðuneytisins.
Ásbrú er í lykilaðstöðu til að laða að sér ábatasaman gjaldeyrisaflandi iðnað svo sem
gagnaver og heilsutengda framleiðslu og þjónustu.
Frumkvöðlafyrirtækið geoSilica sem er til húsa í frumkvöðlasetrinu á Ásbrú er annað
glæsilegt fyrirtæki í heilsuklasa Ásbrúar.
Með skýrri
stefnumörkun,
meðal annars að erlendri
fyrirmynd, er hægt að
innleysa þessi tækifæri
og breyta þeim í
verðmæta hagvaxtarvél.
Kjartan Eiríksson,
framkvæmdastjóri
Þróunarfélags
Keflavíkurflugvallar
ehf., Kadeco, segir
tækifærin mörg til
uppbyggingar á
Reykjanesi.
MYND/VALLI