Fréttablaðið - 13.06.2015, Side 94
KYNNING − AUGLÝSINGHeiti blaðs LAUGARDAGUR 13. JÚNÍ 201514
Stjórnvöld í Níkaragva eru í samstarfi við íslenska aðila í jarðhitamálum og má segja
að heimsókn í Auðlindagarðinn í
Svartsengi hafi öðru fremur orðið
þess valdandi að ákveðið var að
velja íslenska aðila til samstarfsins
fram yfir samstarf við önnur erlend
fyrir tæki sem eftir því höfðu leitað.
Íslendingar hafa unnið að jarðhita-
málum í Níkaragva í áratugi og eru
þar vel kynntir. Paul Oquist, ráð-
herra þróunarmála í Níkaragva,
kom til Íslands í júní í fyrra og heim-
sótti Auðlindagarðinn. Í framhald-
inu kynnti ráðherrann hugmyndir
Alberts Albertssonar, stjórnarfor-
manns Jarðhitaklasans, fyrir Dani-
el Ortega, forseta Níkaragva. Eftir
það var ákveðið að ganga til sam-
starfs við íslenska aðila.
Iceland Geothermal Power
Nicaragua stofnað um verkefnið
Í nóvember 2014 fór hópur fólks
fyrir hönd íslenskra fyrirtækja og
ráðherra orkumála, Ragnheið-
ur Elín Árnadóttir, í heimsókn til
Níkaragva. Þar var skrifað undir
viljayfirlýsingu um orkuverkefnið
sem nær yfir þrjú jarðhitasvæði,
tvær minni vatnsaflsvirkjanir og
auðlindagarð. Nú er unnið að loka-
frágangi samninga og fjármögn-
un verkefnisins. Rannsóknir munu
hefjast síðar á þessu ári. Íslandsstofa
og Jarðhitaklasinn hafa aðstoðað
verkefnið með margvíslegum hætti
og stuðlað að framgangi þess.
„Um orkuverkefnið var stofn-
að sérstakt fyrirtæki, Iceland Geo-
thermal Power Nicaragua S.A. eða
IGPN,“ segir Kristján B. Ólafsson,
hjá IGPN. Samstarfsaðili Kristjáns
hjá IGPN, Örn Jóhannsson, segir fé-
lagið nú vera að leggja lokahönd á
samningagerð og fjármögnun verk-
efnisins. „Horft er til 300 megavatta
í uppsettu af li til raforkufram-
leiðslu og verður það byggt upp í
nokkrum skrefum, eftir því sem
svæðin eða auðlindin leyfir. Upp-
haflega var ætlunin að semja við ís-
lenskt fyrirtæki um að sjá um slíkt
verkefni frá forrannsóknum til raf-
orkusölu. Ekkert fyrirtæki á Íslandi
hafði þó áhuga á að taka að sér það
heildarverkefni. Þess í stað eru
fyrir tækin tilbúin til þess að taka
að sér einstaka verkþætti. Niður-
staðan varð því að stofna IGPN. Til
langs tíma hljóta íslenskir aðilar
og fyrir tæki að skoða nánar þann
möguleika að stofna orkufyrirtæki
sem taki að sér heildarlausnir að
fjármögnun meðtalinni,“ segir Örn.
Þar kunni að liggja ónýtt viðskipta-
tækifæri fyrir íslensk fyrirtæki og
Jarðhitaklasann.
Horft er til frumkvöðlastarfs í
orkunýtingu á Reykjanesi
Hugmyndafræðin kringum Ník-
aragvaverkefnið er þannig að horft
verður til f leiri þátta en einungis
raforkuframleiðslu, sem nýtir að-
eins um tíu prósent af frumorku.
Leitað verður allra leiða til þess
að nýta þá orku sem úr borhol-
um kemur. „Í heiminum öllum er
einungis að finna fyrirmyndina á
Reykjanesi og horft verður til þess
frumkvöðlastarfs. Auðlindagarð í
Níkaragva þarf að útfæra og byggja
upp í samvinnu og samstarfi við
heimamenn. Því er mikilvægt að
horfa til þess að íslensk þverfag-
leg þekking og reynsla geti nýst
sem grunnur og við bætist sam-
starf sem báðir aðilar hafa gagn
af. Íslensk fyrirtæki og sérfræð-
ingar munu í fyrstu verða leið-
andi við uppbyggingu en horfa til
þess að þjálfa upp og nýta framlag
heimamanna. Í Níkaragva er fjöldi
vel menntaðra enskumælandi ein-
staklinga. Þá er mikill fjöldi fólks
frá Níkaragva búsettur í Banda-
ríkjunum og er tilbúinn að snúa
til baka þegar góð atvinnutæki-
færi skapast,“ útskýrir Örn.
Níkaragva er ákjósanlegt land
fyrir jarðhitaverkefni
Þegar eru tvær jarðhitavirkjan-
ir starfandi í Níkaragva, San Jac-
into og Momotombo. Samtals eru
virkjanirnar með 150 megavött
í uppsettu afli en nú er unnið að
fjármögnun frekari orkuöflunar
og borunar til þess að auka nýt-
ingu orkuveranna. „Níkaragva
er á margan hátt ákjósanlegt
land fyrir jarðhitaverkefni. Land-
ið hefur þann lagaramma sem til
þarf og áratuga reynslu varðandi
kaup á raforku af einkafyrirtækj-
um til dreifingar inn á landsnet.
Níkaragva hefur engar gjaldeyris-
takmarkanir þannig að hægt er
að greiða fyrir raforkuna í Banda-
ríkjadal. Þá eru ráðamenn lands-
ins tilbúnir til þess að greiða það
einingaverð sem þarf til þess að
standa undir uppbyggingu og
rekstri á nýrri jarðhitavirkjun.
Orkuþörfin í Níkaragva fer vax-
andi og áætlað er að um 350 mega-
vött þurfi til viðbótar fyrir rekstur
nýs skipaskurðar sem er á teikni-
borðinu,“ segir Kristján.
Hægt að virkja allt að 1.500 MW
Á jarðhitasvæðunum Masaya,
Apoyo og Mombacho er áætlað
að virkja megi rúm 300 megavött
í raforkuframleiðslu en í heild-
ina er áætlað að virkja megi allt
að 1.500 megavött í landinu öllu.
Níkaragva er 130 þúsund ferkíló-
metrar og þar eru nokkur eld-
fjöll og virkjanleg jarðhitasvæði.
„Í ferðinni sem farin var í nóvem-
ber var gengið frá rammasamningi
um fyrrnefnd jarðhitasvæði og til
viðbótar um tvær minni vatnsafls-
virkjanir. Til viðbótar er lögð mikil
áhersla á uppbyggingu auðlinda-
garðs. Þannig er horft til þess að ná
sem mestri nýtingu úr þeirri orku
sem borað verður eftir en eins og
áður hefur komið fram eru einung-
is um tíu prósent af frumorkunni
nýtt til raforkuvinnslu. Gríðarlegt
magn frumorku verður í boði frá
raforkuverum til frekari ráðstöfun-
ar og nýtingar fyrir fyrirtæki auð-
lindagarðsins,“ bætir Kristján við.
Níkaragva tekur nú á móti um
milljón ferðamönnum á ári og
mikil uppbygging er í gangi varð-
andi fjölgun hótela og almennt í
ferðaþjónustu. Ráðamenn lands-
ins horfa því björtum augum til
þess að geta bætt „heilsulóni“ inn
í f lóru ferðaiðnaðarins.
Jarðhitasvæði, vatnsaflsvirkjanir
og auðlindagarður í Níkaragva
Skrifað var undir rammasamning um jarðhitaverkefni í Níkaragva í nóvember í fyrra. Iceland Geothermal Power Nicaragua (IGPN)
vinnur nú að lokafrágangi samninga um verkefnið og fjármögnun þess. Rannsóknir hefjast síðar á þessu ári ásamt undirbúningi borverks.
Eldfjall í Níkaragva. Áætlanir gera ráð fyrir að í Níkaragva verði hægt að virkja allt að 1.500 MW í raforku jarðhitavirkjana.
IGPN og Níkaragva hafa náð samkomulagi um þrjú jarðhitasvæði: Masaya, Apoyo og
Mombacho. Fyrsta mat ÍSOR er að um áhugaverð svæði sé að ræða.
Íslensk fyrirtæki á ferð í Níkaragva í nóvember 2014. Fyrir miðju á mynd eru Paul Oquist ráðherra og Ragnheiður Elín Árnadóttir
ráðherra.
Við undirritun rammasamnings um jarðhitaverkefnin í Níkaragva. Fyrir miðju má sjá Albert Albertsson, stjórnarformann Jarðhitaklas-
ans, Daniel Ortega, forseta Níkaragva, og Ragnheiði Elínu Árnadóttur ráðherra. Til vinstri við Albert er Paul Oquist ráðherra.
Örn Jóhannsson og Kristján B. Ólafsson, for-
svarsmenn og stjórnarmenn í IGPN.