Fréttablaðið - 13.06.2015, Qupperneq 98
13. júní 2015 LAUGARDAGUR| HELGIN KRAKKAR | 40
Að venju efna Borgarbókasafnið, Bókmenntaborgin og Forlagið til sumarlesturs meðal barna. Fyrir hverja lesna bók skrá lesendur
nafn sitt og titil bókarinnar á þar til gerða miða, búa til úr þeim skutlur og skutla þeim í net sem eru í öllum söfnum Borgarbóka-
safns. Vikulega er einn þátttakenda útnefndur Lestrarhestur vikunnar og sá eða sú hlýtur bók að launum frá Forlaginu.
Edda Rós Eggertsdóttir 12 áraLestrarhestur vikunnar
Bragi Halldórsson
152
gegnum þetta völundarhús fyrst.“ Hann dæsti og bætti við vonsvikinn,
„við verðum of sein.“
Getur þú hjálpað félögunum að komast í gegnum þetta völundarhús?
Hvað er skemmtilegast við bækur?
Mér finnst svo gaman að geta ímyndað mér það sem
stendur í bókinni og hvernig persónurnar líta út.
Hvaða bók lastu síðast og um hvað var hún?
Dagbók prinsessu og hún fjallar um stelpu sem
er prinsessa frá Genóvíu og alls konar hlutir koma
upp á.
Manstu eftir fyrstu bókinni sem var í uppáhaldi
hjá þér?
Asnaskóli.
Hvers lags bækur þykir þér skemmtilegastar?
Unglingabækur og dýrasögur.
Í hvaða skóla gengur þú?
Rimaskóla.
Ferðu oft á bókasafnið?
Já, ég fer mjög oft.
Hver eru þín helstu áhugamál?
Lestur, dans, tónlist, söngur, sund og gæludýr.
Hrafnhildur
Anna
Árnýjardóttir
7 ára
sendi okkur þessa fínu
mynd af hundi og beininu
hans.
Á Víkingahátíð í Hafnarfirði
verður margt í boði um helgina,
þar á meðal verður Víkingaskóli
fyrir börnin á dagskrá á hverj-
um degi klukkan 13.30.
Jökull Tandri Ámundason
mun sjá um að kenna börnun-
um víkingaskylmingar.
„Við kennum börnunum að
skylmast á öruggan hátt með
sverðum, öxum og spjótum
sem þau geta keypt á hátíð-
inni eða búið til sjálf og komið
með,“ segir Jökull sem heitir
Tandri Auralokkur þegar hann
er kominn í víkingaklæði.
„Það eru mjög stífar reglur.
Það er bannað að slá í haus
eða bak og ef maður kemur
aftan að einhverjum má bara
flengja á bossann.“
Eftir að börnunum hafa
verið kennd helstu atriðin er
þeim skipt í tvö lið og þau
berjast. Að lokum fá börnin að
skylmast við víkingana.
„Þá eru 30-40 krakkar á
móti okkur öllum og þau vinna
okkur náttúrulega með ofur-
efli. Krakkarnir eru alveg vit-
lausir í þetta. Stelpurnar eru
oftar en ekki hættulegri því
þær einbeita sér að því að ná
tækninni og verða mjög hnit-
miðaðar.“
Tandri segir víkingana vera
stór börn að leika sér en að
það að æfa víkingaskylmingar
sé bara áhugamál eins og fót-
bolti eða golf.
„Þetta sport er æft af körl-
um og konum um heim allan.
Skylmingar eru æfðar, bog-
fimi og handverk þar sem
reynir á þolinmæði og fín-
hreyfingar. Við sem æfum
þetta hérna á Íslandi erum í
félaginu Rimmugýgi. Við erum
eins og ein stór fjölskylda og
lykilatriði er að bera virðingu
fyrir náunganum. Einnig fáum
við stundum verkefni og var
stór hluti hópsins aukaleik-
arar í Game of Thrones þegar
þættirnir voru teknir upp hér
á landi.“
Má ekki slá á hausinn
heldur fl engja bossa
Í Víkingaskólanum er börnum kennt að skylmast á öruggan hátt og síðan leika
allir saman, stórir og smáir. Virðing og að fylgja reglum eru mikilvæg atriði.
YFIRBUGA MEISTARA SINN Hópur lítilla víkinga hefur sigrað kennara sinn, Tandra Auralokk, eftir að hafa lært allt um
skylmingar í Víkingaskólanum. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Krakkarnir eru alveg
vitlausir í þetta. Stelpurnar
eru oftar en ekki hættu-
legri því þær einbeita sér
að því að ná tækninni og
verða mjög hnitmiðaðar.
����������� �����������
���������������� ��
������������
����������������������
������� ����������