Fréttablaðið - 13.06.2015, Blaðsíða 130
13. júní 2015 LAUGARDAGUR| LÍFIÐ | 72
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR– AUGLÝSINGASTJÓRI: Svanur Valgeirsson svanur@365.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Gústaf Bjarnason gustaf@365.is, Hjalti Egilsson
hjalti@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@365.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@365.is, Svanhildur Ólöf Þórsteinsdóttir svansi@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ
SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Gunnhildur Geira Dan Þorláksdóttir geira@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Jónatan
Atli Sveinsson jonatan@365.is, FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar
Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
NÆRMYND
Nanna Hermannsdóttir er ein
þeirra sem staðið hafa að
brjóstabyltingunni Free the
Nipple sem vart hefur farið
fram hjá fólki. Í dag fer
fram önnur lota byltingar-
innar á Austurvelli þar
sem Nanna fer fremst í
flokki berbrystinga.
Nanna
Hermannsdóttir
Nemi og aktívisti
Adda Þóreyjar og Smáradóttir
vinkona
Nanna er
einfaldlega
æðisleg mann-
eskja. Hún er
mögnuð kona sem
er rosalega kraft-
mikil og býr yfir
griðarlega mikilli
orku. Nanna er
þessi týpa sem
er alltaf til í að
gera allt fyrir alla í
kringum sig.
Nanna var mín
hægri hönd í Free the nipple-brjálæðinu
og stóð eins og klettur með mér þar.
Sunna Ben
vinkona
Hún
Nanna er
ótrúlega dugleg,
eldklár og hefur
verið að gera
magnaða hluti,
svo sem í Free the
nipple-bylting-
unni allri. Nanna
er sannarlega
mikið Twitter
legend, og þar
lágu einmitt leiðir
okkar saman, en
hún er mjög virk á þeim miðli. Nanna er
hávær í baráttunni og hefur gert svo mikið
fyrir málstaðinn og heldur ótrauð áfram.
Natan Þóreyjar og Kolbeinsson
vinur
Nanna er
einhver
opnasta mann-
eskja sem ég hef
á ævinni kynnst.
Hún er hress,
skemmtileg og
sannkölluð stór-
stjarna á sam-
félagsmiðlunum,
þar sem hún
lætur sannarlega
til sín taka.
Við kynntumst
einmitt á Twitter. Hún á mjög auðvelt með
að kynnast nýju fólki.
klippið
Sendu okkur 5 toppa af Merrild
umbúðum og þú gætir unnið hina
sígildu kaffikönnu frá Stelton.
10 heppnir vinningshafar verða
dregnir út í hverri viku frá 30. júní til
1. september 2015, alls 100 talsins.
Þátttökuumslög í öllum verslunum. Á Facebook-síðu okkar, Facebook/Merrild á Íslandi, verða birt
úrslit auk frekari upplýsinga um leikinn.
REIKNAÐU
DÆMIÐ
á 365.is
365.is Sími 1817
Þrír stæðilegir sankti bernharðs-
hundar vöktu athygli fyrir stórleik
í nýju myndbandi við Brennum allt
með hljómsveitinni Úlfur Úlfur
en lagið má finna á nýútkominni
breiðskífu hennar, Tveimur plán-
etum.
Hundarnir, sem heita Igor, JR og
Gucci, sjást í myndbandinu þeyt-
ast um í blæjubíl og í göngutúr
með rapparanum Kött Grá Pje en
lagið er unnið í samstarfi við hann.
Hann ber hundunum vel söguna
og segir þá prýðis samstarfsmenn
þrátt fyrir talsverða munnvatns-
framleiðslu.
„Fyrir mig var það ósköp átaka-
laust og að flestu leyti indælt,“
segir hann léttur um samstarfið.
„Hins vegar slefuðu þeir mikið í
hárið á mér. Á vissum tímapunkt-
um svona frussurigndi yfir mig,“
segir hann glaður í bragði og auð-
heyrt er að það hefur ekki farið
mikið fyrir brjóstið á honum.
„Það eina var að þeir komust
eiginlega ekki fyrir í bílnum, það
var mjög tæpt. En þeir voru mjög
elskulegir og góðir. Felldu sig
ágætlega við mig sem angaði allur
af kattalykt,“ segir hann hress.
„Mér fannst erfiðara að keyra
þennan ægilega trukk heldur en
að vera með hundunum.“
Upptökurnar stóðu yfir í nokkra
tíma og var Guðný Vala Tryggva-
dóttir, eigandi hundanna og
hundaræktunarinnar Sankti-Ice,
á staðnum við upptökurnar ásamt
aðstoðarkonu.
„Hún Guðný og konan sem var
með henni eru rétt fyrir utan
mynd allan tímann að gilligilla
blessaða hundana til þess að halda
þeim góðum,“ segir hann en auk
þess að fara á rúnt í blæjubíl
tóku hundarnir ríflegan göngutúr
ásamt rapparanum og fengu því
vafalítið talsverða hreyfingu út
úr deginum.
Kött Grá Pje útlokar ekki að
hann muni einhvern tíma fá sér
sankti bernharðshund þótt það
verði ekki í nánustu framtíð. „Ég
held að kisan mín yrði frekar
óánægð með það. Ég á litla kisu
sem er frek á mig. En ég gæti vel
hugsað mér það einhvern tíma
seinna þegar hún er orðin gömul
og skeytingarlaus um mig því þeir
voru algjört æði.“
Guðný Vala eignaðist sinn fyrsta
sankti bernharðshund árið 1997,
þá sautján ára gömul, og segir
áhugann meðfæddan.
Myndbandið, sem leikstýrt er af
Magnúsi Leifssyni, er frumraun
þeirra Igors, JR og Gucci fyrir
framan tökuvélarnar. „Þetta var
þeirra fyrsta tónlistarmyndband
og vonandi ekki það síðasta,“ segir
hún glöð í bragði.
Hún hælir sömuleiðis Kött Grá
Pje og tekur undir að hann hafi
þruft að þola talsvert slef við upp-
tökurnar. „Það var svolítið heitt
þarna og undir lokin voru þeir nú
farnir að vera svolítið blautir eins
og maður segir,“ segir hún hlæj-
andi og bætir við: „Hann var engin
pempía, við getum alveg sagt það.“
gydaloa@frettabladid.is
Á vissum tímapunkti
frussurigndi hundaslefi
Igor, JR og Gucci vöktu athygli í nýju tónlistarmyndbandi Úlfs Úlfs við lagið
Brennum allt. Þar má sjá þá á rúntinum í blæjubíl með rapparanum Kött Grá Pje.
ÞRÖNG Á ÞINGI Líkt og sjá má á þessari mynd var talsvert þröngt í blæjubílnum, en fullvaxta karlkyns sankti bernharðshundur er 77-100
kíló að þyngd. MYND/KJARTAN HREINSSON
TIL FYRIRMYNDAR Hér má sjá
Guðnýju, Kött Grá Pje, hundana og leik-
stjórann Magnús Leifsson við upptökur.
MYND/KJARTAN HREINSSON
Hinsvegar slefuðu
þeir mikið í hárið á mér.
Á vissum tímapunktum
svona frussu r ingdi
yfir mig.
Kött Grá Pje