Öldrun - 01.05.2008, Qupperneq 12
12
www.oldrun.net ÖLDRUN – 27. árg. 1. tbl. 2008
Hjúkrun gigtarsjúklinga
á Íslandi
Ingibjörg E. Ingimarsdóttir
Hjúkrunarfræðingur á Gigtarsviði
Reykjalundar og gjaldkeri í Fagdeild
gigtarhjúkrunarfræðinga
Hvað er gigt?
Í stuttu máli sagt er gigt ónæmissjúkdómur sem getur
lagst á nánast hvaða líffærakerfi sem er. Tegundir gigt
arsjúkdóma er á annað hundrað. Þeir eru langvinnir en
gangur sjúkdóms getur verið mjög mismunandi, sem og
áhrif sjúkdómsins á sjúklinga. Birtingarform gigtar er allt
frá því að vera vægur sjúkdómur sem hefur lítil áhrif á
einstaklinginn, upp í að vera lífshættulegur sjúkdómur
með mikil einkenni. Algengustu gigtarsjúkdómarnir eru
slitgigt, iktsýki og vefjagigt.
Starfsvettvangur gigtarhjúkrunarfræðinga
á Íslandi
Gigtardeild B7
Á Landspítala Háskólasjúkrahúsi í Fossvogi er starf
andi eina sérhæfða bráðadeild gigtarsjúkdóma hér á
landi (Deild B7) og þangað koma sjúklingar til grein
ingar, rannsókna og meðferðar þegar sjúkdómur er mjög
virkur. Þarna er oftast um að ræða “svæsnustu” tilfellin
en gigt er oftast greind og meðhöndluð á læknastofum og
sjúklingurinn þarfnast ekki innlagnar. Á deildinni starfa
læknar, hjúkrunarfræðingar, sjúkraliðar, sjúkraþjálfarar
og iðjuþjálfar saman í teymi. Einnig er mögulegt að leita
ráðgjafar hjá næringarfræðingi, presti, sálfræðingi og
félagsráðgjafa. Hjúkrunardeildarstjóri er Þóra Árnadóttir
sem er frumkvöðull í gigtarhjúkrun hér á landi. Margir
hjúkrunarfræðingar á deildinni eru orðnir mjög reyndir
innan gigtarhjúkrunar og komnir með áratuga reynslu við
að sinna gigtarsjúklingum.
Dagdeild gigtarsjúkdóma
Dagdeild gigtarsjúkdóma er staðsett við hlið gigt
ardeildar (B7) á Landspítala Háskólasjúkrahúsi í Foss
vogi. Um aldamótin komu fram ný líftæknilyf við gigt
arsjúkdómum. Var þá komin grundvöllur fyrir dagdeild af
þessu tagi. Starfsemi deildarinnar hófst árið 2003. Deildin
tilheyrir gigtardeild B7 og sami hjúkrunardeildarstjóri er
yfir þeim báðum, Þóra Árnadóttir. Umsjónarhjúkrunar
fræðingur er yfir dagdeildinni og er það Elínborg Stefáns
dóttir. Að jafnaði eru tveir hjúkrunarfræðingar á deildinni
í senn en það eru hjúkrunarfræðingar frá gigtardeild B7
Gigtarsjúkdómar eru meðal algengustu
sjúkdóma hér á landi. Talið er að einn af
hverjum fimm landsmönnum fái gigt af
einhverju tagi. Hér er því um mjög stóran
sjúklingahóp að ræða og vegna þessa
þurfa flestir hjúkrunarfræðingar og aðrir
heilbrigðisstarfsmenn að sinna gigtarsjúklingum
með einhverjum hætti ekki síst þeir sem
tengjast öldrunarmálum.
Í þessari grein eru kynntar sérhæfðar deildir
hér á landi þar sem hjúkrunarfræðingar
sinna gigtarsjúklingum auk þess sem fjallað
verður stuttlega um áhrif gigtarsjúkdómsins
á sjúklinginn og gefin innsýn í þá
hjúkrunarmeðferð sem notuð er hér á landi.