Öldrun - 01.05.2008, Blaðsíða 14
1
www.oldrun.net ÖLDRUN – 27. árg. 1. tbl. 2008
1. Líkamleg einkenni
Fjöldi gigtarsjúkdóma er á annað hundrað og geta þeir
lagst á flest líffæri. Líkamleg einkenni gigtarsjúkdóma
geta því verið mörg og mismunandi. Algengustu einkenni
þeirra eru verkir, stirðleiki og þreyta. Fjöldi annarra og
ólíkra einkenna fylgja gigtarsjúkdómum en þau verða
ekki nánar rakin hér.
Verkir og stirðleiki. Oft eru verkir og striðleiki
fyrstu einkenni gigtarsjúkdóma og flestir gigtarsjúklingar
þekkja þessi einkenni. Verkir sem þeir upplifa eru oftast
langvinnir. Verkir geta stafað af bólgum í liðum, sinum,
sinafestum og vöðvum auk æðakrampa (Reynauds heil
kenni). Einnig eru óútskýrðir verkir töluvert algengir.
Þreyta. Flestum gigtarsjúkdómum fylgir þreyta. Gigt
arsjúklingar finna mismunandi mikið fyrir þreytunni og
hún getur verið af ýmsum orsökum. Þreyta getur stafað af
virkni sjúkdóms, verkjum, svefnleysi, þunglyndi og fleiru.
Margir sjúklingar lýsa þreytunni sem mjög ólíkri venju
legri líkamlegri þreytu. Þreyta er sérstaklega áberandi hjá
vefjargigtarsjúklingum.
Hjúkrunarmeðferð líkamlegra einkenna:
Meðferð við verkjum:
Margir gigtarsjúklingar eru á verkjalyfjameðferð af
einhverju tagi. Stundum virka verkjalyf ekki vel á lang
vinna verki gigtarsjúklinga og sumir finna jafnvel lítinn
mun á verkjum þegar hætt er að taka lyfin. Ekki verður
fjallað um einstök verkjalyf hér heldur aðra verkjameðferð
sem gott er að nota með eða án verkjalyfjagjafar.
Hitameðferð. Heitir bakstrar og heit böð geta minnkað
stirðleika og verki. Sjúklingar slaka á og finna vellíðan.
Gott að hafa hita í u.þ.b. 20 mínútur.
Kuldameðferð: Kælipokar. Gagnast sérstaklega við
áverkum og staðbundnum verkjum.
Slökun: Getur einnig hjálpað til að minnka verki.
Í slökun dregur úr vöðvaspennu sem er oft orsök
verkjanna.
Stuðla að góðum nætursvefni. Góður svefn skiptir
miklu máli en sjúklingar með svefntruflanir upplifa oft
verri verki. Sumir vakna upp vegna verkja og þannig
getur myndast vítahringur. Því þarf að athuga hvað sé
hægt að laga í umhverfinu, t.d. rúmdýnu, snúningslak
og hitastig í herbergi. Einnig er gott að nota slökun fyrir
svefn, draga úr umhverfishávaða, hafa reglu á svefntíma,
forðast koffeindrykki eftir kl. 14 á daginn og fleira.
Megrunaraðstoð. Ofþyngd eykur álag á stoðkerfi og
því er mikilvægt að aðstoða of feita einstaklinga við að
létta sig.
Hvetja til hreyfingar og þjálfunar. Hreyfing hefur
margvísleg jákvæð áhrif á verki. Hún eykur blóðflæði um
líkamann, styrkir líkamann og bætir líkamstöðu auk þess
að geta veitt stuðning við skemmda liði, vinnur gegn brjó
skeyðingu og fleira.
Slökunarnudd. Snerting og létt nudd, t.d. á fætur,
veldur slökun og vellíðan.
Meðferð við þreytu:
Slökun. Margir sjúklingar sem ná tökum á slökun
finnst þeir fá “orku” eftir slökunina.
Stuðla að góðum nætursvefni: (sjá umfjöllun um
verki).
Jafnvægi í daglegu lífi. Sjúklingar hafa oft takmarkaða
orku og því mikilvægt að forgangsraða og skipuleggja
daginn. Hjálpa þeim að finna jafnvægi milli hvíldar og
hreyfingar. Oft eru dagarnir misslæmir og því er líka
mikilvægt þegar sjúklingar eiga góðan dag, að þeir ofgeri
sér ekki því þá getur það komið niður á þeim seinna.
Reyna því alltaf að halda jafnvæginu.
Hvetja til hreyfingar. Hreyfing getur dregið úr þreytu
og aukið orku. Hefur einnig jákvæð áhrif á andlega líðan.
2. Andleg líðan
Það getur verið gríðarmikið áfall fyrir einstakling að
greinast með langvinnan sjúkdóm eins og gigt. Oft er
sjúklingurinn kvíðinn fyrir því hvernig gangur sjúkdóms
verður. Vegna mismunar á góðum og slæmum dögum
er oft erfitt fyrir gigtarsjúklinga að skipuleggja sig fram í
tímann en það getur verið mjög hamlandi. Þetta getur leitt
til að sjúklingum finnist þeir ekki hafa stjórn á lífi sínu.
Í mörgum tilfellum geta afleiðingarnar orðið þunglyndi.
Sumir sjúklingar upplifa sorg (missi á getu, breyttum
aðstæðum en aðrir afneita sjúkdómnum. Sjúkdómnum
getur fylgt breyting á líkamsímynd, t.d. hjá iktsýkissjúkling
með aflagaða liði eða lupussjúkingi með húðbreytingar.
Sérstaklega getur þetta verið erfitt hjá yngri sjúklingum
og haft áhrif á félagslega þátttöku þeirra sem jafnvel leiðir
til félagslegrar einangrunar. Margir hafa ekki getað sinnt
áhugamálum vegna sjúkdómsins. Allir þessir þættir geta
haft mikil áhrif á andlega líðan.
Hjúkrunarmeðferð:
Nærvera/hlustun. Nærvera og að hlusta á sjúklinginn
getur verið mikil hjálp. Mikilvægt að sjúklingur fái að tjá
líðan og tilfinningar. Oft sér hann hlutina í skýrara ljósi
með því að setja líðan sína í orð.
Benda sjúklingi á styrkleika sína. Sjúklingar horfa mikið
til þess sem þeir hafa misst í tengslum við sjúkdóm. Því
þarf að hjálpa þeim að sjá styrkleika og veikleika, hvernig
þeir geta nýtt sér styrkleika sína til að bæta líðan og sætta
sig við breyttar aðstæður í tengslum við sjúkdóminn.
Gleyma sér í gleðistund. Fá sjúkling til að hugsa eitt
hvað skemmtilegt og gleyma einkennum sjúkdóms.
Á Reykjalundi eru t.d. skemmtikvöld sem kölluð eru
„Gaman Saman“. Hugmyndin með þessum kvöldum er að
gleyma sér í gleðistund. Geta gleymt sjúkdómum og erfið
leikum einhverja stund. Notað er slagorðið „Gleymska
eykur gleði“ og þannig er stuðlað að auknum lífsgæðum
sjúklings.
Áhugamál. Aðstoða sjúkling við að finna sér einhver
áhugamál sem henta honum og auka andlega vellíðan.