Öldrun - 01.05.2008, Blaðsíða 15
1
ÖLDRUN – 27. árg. 1. tbl. 2008 www.oldrun.net
3. Félagslegir þættir
Gigtarsjúkdómar geta haft mikil áhrif á vinnu og félags
legt umhverfi. Oft geta sjúklingar ekki stundað fulla vinnu
og skilningur vinnuveitenda á sjúkdómnum getur verið
misjafn. Í mörgum tilfellum eru gigtarsjúklingar á örorku
og búa því við minna fjárhagslegt öryggi. Einnig breyt
ist oft félagslegt hlutverk sjúklinga. Þeir geta ekki sinnt
þeim hlutverkum sem þeir sinntu áður, t.d. í fjölskyldunni
og vinahópnum. Stundum einangra sjúklingar sig félags
lega vegna breyttrar líkamsmyndar, andlegra erfiðleika
tengdum sjúkdómnum og verkja (t.d. eiga erfitt með að
sitja lengi). Margir lýsa því að þeim finnst aðrir ekki skilja
sig því oft sést sjúkdómurinn ekki utan á sjúklingum.
Hjúkrunarmeðferð:
Auka daglega félagslega virkni. Sumir sjúklingar eru
farnir að einangra sig. Því þarf oft að aðstoða þá við að
skipuleggja virkni,
Markviss félagsleg þátttaka. Hvetja sjúkling til að vera
í hóp sem gerir eitthvað skemmtilegt saman og kynn
ast fólki. Sjá dæmi um „gaman saman“ í kaflanum um
meðferð við andlegri líðan.
Áhugamál. Aðstoða sjúkling við að finna sér áhugamál
við hæfi.
Lokaorð
Gigtarsjúkdómar eru mjög algengir og koma inn í
starf flestra hjúkrunarfræðinga og annarra heilbrigðis
starfsmanna, með einhverjum hætti. Gigtarsjúkdómar
geta haft gífurleg áhrif á líf einstaklinga sem greinast
með gigt. Áhrif, einkenni og virkni geta verið mismun
andi milli sjúklinga og eins verið mjög breytileg hjá
sama sjúklingnum. Hjúkrunarfræðingar sem koma að
meðferð gigtarsjúklinga þurfa því að vera meðvitaðir um
áhrif sjúkdómsins á einstaklinginn og hvernig má nýta
sér markvissa hjúkrunarmeðferð til að reyna að bæta lífs
gæði þeirra. Hér að framan hefur verið stiklað á stóru um
gigtarhjúkrun hér á landi. Kynntar sérhæfðar deildir þar
sem hjúkrunarfræðingar sinna gigtarsjúklingum, fjallað
um áhrif gigtarsjúkdómsins á sjúklinginn og gefin innsýn
í þá hjúkrunarmeðferð sem notuð er.
Helstu heimildir og frekari upplýsingar:
gigt.is
Hill,J., Hale,C. (2004). Clinical skills; Eviencebased nursing care of people
with rheumatoid arthritis. Brithis Journal of Nursing,13(14), 852857.
Madigan,A., FitzGerald,O. (1999). Multidisciplinary patient care in rheu
matoid arthritis: Evolving concepts í nursing practice. Baillére´s Clinical
Rheumatology, 13(4), 661674.
Ragna Valdimarsdóttir: Óbirt fræðsluefni um hjúkrunarmeðferð
gigtarsjúklinga.
Rnsnetwork.org
Rheumatology.org
Ryan,S. (1998). The essence of rheumatology nursing. Nursing Standard,
16(1315), 5254.
Gagnlegar vefsíður:
http://www.gigt.is/ Gigtarfélag Íslands
http://www.rnsnetwork.org/ Rheumatology Nurses Society
http://www.rheumatology.org/ American College of Rheumatology