Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.2008, Síða 15
Egill Jónasson, miðherjinn öflugi hjá Njarðvík, fór í uppskurð í gær vegna hnémeiðsla:
FRÁ í MÁNUÐ VEGNA AÐGERÐAR Á HNÉ
~ •" „Ég var í aðgerð að láta laga
-brjóskskemmdir í hnénu. Það var
allt komið í tætlur þarna," sagði
miðherjinn öflugi Egill Jónasson
hjá Njarðvík þegar DV náði í skott-
ið á honum. Egill lá í makindum og
hafði það huggulegt fyrir framan
sjónvarpið.
„Ég verð frá í einhverjar vikur en
þetta á að verða gott eftir aðgerðina.
Læknirinn vildi ekki bíða með þetta
og ég var að spila inn á milli en þettæ-
var búið að angra mig í einhvern
mánuð. Maður beit bara á jaxlinn,
-tók nokkrar verkjatöflur og reyndi
að þola sársaukann."
Egill mun því missa af næsta
leik Njarðvflcur gegn KR á fimmtu-
dag sem verður sýndur beint á
Sýn. „Það verður bara að koma í
ljós hversu lengi ég verð frá. Þetta
er stærsti leikurinn okkar núna og
verður sterkt að koma til baka eft-
ir tapið í bikamum." Njarðvíking-
ar hafa verið óstöðugir í vetur í
Iceland Express-deildinni. Unn-
ið nokkra stóra og mikilvæga l^ki
en dottið svo niður á plan' meðal-
mennskunnar. „Þetta er búið að
vera mjög sveiflukennt hjá okkur.
Það er svona eins og okkur vanti
stöðugleikann. Maður veit ekki
hvað er að. Við erum búnir að ræða
málin okkar á milli en ekki fundið
svarið. Það em fleiri lið búin að
vera eins og við, til dæmis Grinda-
vík sem hefur verið upþ og niður
og finnur ekki alveg stöðugleikann
sem þarf," sagði Egill sem hefur
skorað 7,5" stig að meðaltali í vet-
ur fyrir Njarðvík. Ljóst er að með
brbtthvarfi Egils mun enn meira
.mæða á landsliðsmiðherjanum
Friðriki Stefánssyni í Njarðvíkur-
liðinu.Njarðvíkingar em úr leik í
Lýsingarbikarkeppninni og liðið er
í 5. sæti Iceland Express-deildar-
innar. benni@dv.is