Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.2008, Qupperneq 38
38 MIÐVIKUDAGUR 9. APRlL 2008
SUÐURNES DV
39 umferðaróhöpp hafa orðið á Reykjanesbrautinni
frá áramótum. Nokkur þeirra má rekja til ffamkvæmda
sem hafa legið niðri síðustu íjóra rnánuði. Tvö þessara
óhappa hafa verið alvarleg slys. Skúli Jónsson hjá lög-
reglunni á Suðurnesjum segir að óhætt sé að fullyrða
að óhöppin væru færri ef ekki væri íyrir tafirnar á fram-
kvæmdunum. Áætluð framkvæmdalok eru í október.
Framkvæmdir Þessi sýn blasir við vegfarendum sem fara um Reykjanesbrautina.
ÓHÖPP Á REYKJANESBRAUTINNI FRÁ ÁRAMÓTUM:
Umferðaróhöpp: 39
Slys frá áramótum: 8
TILBOÐIN í REYKJANESBRAUTINA
Glaumur og Árni Helgason 917.768.100 |
Háfell 841.841.841
ístak 807.129.603
Adakris uab/Topp verktakar ehf. 698.800.000 |
Islenskir Aðalverktakar 955.144.000 !
loftorka ehf. og Suðurverk hf. 847.279.900 j
Malbikunarstöðin Hlaðbær Cola 969.476.470
„Ég held að íbúar Suðurnesja verði
allir mjög fegnir þegar þessum fram-
kvæmdum loksins lýkur," segir Skúli
Jónsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn í
almennri deild hjá lögreglunni á Suð-
urnesjum. íbúar á Suðurnesjum eru
margir orðnir langþreyttir á töfum
sem hafa orðið við tvöföldun Reykja-
nesbrautar. Áætluð framkvæmda-
lok voru í sumar en nú er ljóst að
framkvæmdum mun ekki ljúka fyrr
en í fyrsta lagi í október á þessu ári.
Ástæðan er gjaldþrot verktakafyrir-
tækisins Jarðvéla en fyrirtækið tók
að sér verkið. I desember varð ljóst
að fyrirtækið gæti ekld staðið við
skuldbindingar sínar. Afleiðingarnar
eru fjögurra mánaða tafir og tíð um-
ferðaróhöpp sem rekja má til fram-
kvæmdanna. UAB Adakiris og Topp
verktakar áttu lægsta tilboðið í mal-
bikun Reykjanesbrautarinnar en til-
boð í verkið voru opnuð í gær. Til-
boðið hljóðaði upp á 698 milljónir og
800 þúsund krónur. Áætlaður kostn-
aður við verkið var 770 milljónir.
47 umferðaróhöpp
„Ég held að það sé alveg óhætt að
segja að umferðaróhöppin væm færri
ef engar framkvæmdir væm í gangi,"
segir Skúli. Frá áramótum hafa 47 um-
ferðaróhöpp orðið á Reykjanesbraut-
inni. Skúli segir að í raun sé ómögu-
legt að segja til um fjölda óhappa sem
rekja megi beint til framkvæmdanna.
„ÉG HELD AÐ ÞAÐ SÉ ALVEG
ÓHÆTT AÐ SEGJA AÐ UMFERÐAR-
ÓHÖPPIN VÆRU FÆRRIÉF ENGAR
FRAMKVÆMDIRVÆRU ÍGANGI."
Ófrágengið Myndin
erfrá Grindavíkuraf-
leggjara. Jarðvélar
skildu svona við
verkið í desember.
Þó sé alveg ljóst að einhver þeirra
megi rekja til þeirra og þeirra tafa sem
orðið hafa undanfarna fjóra mán-
uði. „Þegar alcstursskilyrði em slæm
em meiri líkur á umferðaróhöppum.
Tíðarfarið síðustu mánuði hefur ver-
ið slæmt og einkennst af fannfergi og
hálku að noklcm leyti. Af þeim sökum
hafa noklcuð mörg umferðaróhöpp
orðið," segir Skúli.
Alvarleg umferðarslys
Af þessum 47 umferðaróhöpp-
um voru átta slys. Þar af tvö alvar-
leg. Það síðasta varð skammt vest-
an við Vogaveg aðfaranótt 24. mars
en þá missti ökumaður stjórn á bíl
sínum en fimm voru í bílnum. Ein
stúlka slasaðist alvarlega og var ílutt
á gjörgæsludeild Landspítalans. Bíll-
inn hafði skömmu áður tekið fram
úr öðmm bíl og virtist ökumaður-
inn halda að hann væri á tvöföldun
brautarinnar. Ökumanninum brá
þegar annar bíll kom á móti með
þeim afleiðingum að hann endaði
utan vegar. Þá varð annað umferðar-
slys við Vogaveg í febrúar þegar tveir
bflar skullu saman. Verktafaryrirtæk-
ið Eykt vinnur nú að því að klára tvær
brýr sem eftir eru. Þær eiga að koma
við Vogaafleggjara og Grindavíkur-
afleggjara en helstu hætturnar eru á
þessum slóðum.
Framhjáhlaupin hættuleg
G. Pétur Matthíasson, upplýs-
ingafulltrúi Vegagerðarinnar, segist
reikna með því að almenn umferð
verði komin á báðar brautirnar um
miðjan október sem fyrr segir. G. Pét-
ur tekur undir orð Skúla og segir að
einna mesta hættan sé vegna slæms
tíðarfars. Það í bland við óvæntar
þrengingar á brautinni vinni gegn
því umferðaröryggi sem tvöföldun
brautarinnar átti að boða. Skúli segir
að það sé ekki hægt að skella skuld-
inni á slæmar merkingar á Reykja-
nesbrautinni. Vegagerðin tók yfir
merkingar brautarinnar í desember
og segir hann að hættusvæðin hafi
verið vel merkt. Staðreyndin sé hins
vegar sú að í svartasta skammdeg-
inu geti augað átt það til að bregð-
ast ökumönnum, þá sérstaklega
ökumönnum sem ekki hafa ekið oft
um svæðið áður. G. Pétur tekur und-
ir þau orð Skúla. „Það eru framhjá-
hlaupin sem hafa reynst fólki hættu-
leg, eins og dæmin sýna. Einkum þá
í slæmu skyggni. Það vildi svo til að
þegar Jarðvélar hurfu frá verkinu var
búið að opna mörg framhjáhlaup
sem skapað hafa óöryggi. Svo hefur
veturinn í vetur verið erfiðari en oft
áður og það hefur ekki hjálpað."
Hrönn Kristjánsdóttir, safnvörður í Salfisksetrinu í Grindavík:
Reykjanesið líður fyrir lida kynningu
Saltfisksetur hefur verið rekið í Grindavík frá því í sept-
ember 2002. Þar er sýningarsalur þar sem gerð er grein
fyrir mikilvægi saltfiskvinnslu í sögu landsins með mun-
um frá fýrri tíð, myndbandasýningum og fleiru tiltæku.
Hrönn Kristjánsdóttir safnvörður segir að jafnvel þótt að-
sókn að safninu sé minni yfir veturinn sé hreint ekki ró-
legt. „Hér er listsýningarsalur á efri hæðinni þar sem við
erum með sýningar allan veturinn. Við reynum að opna
nýjar sýningar hjá okkur á tveggja til þriggja vikna fresti,"
segir Hrönn og bendir á að ekki sé óalgengt að upp undir
400 manns mæti á opnun.
Fyrir skemmstu hélt Sigrún Helgadóttir umhverfis-
fræðingur fræðslukvöld í Saltfisksetrinu um Reykjanes-
fólkvang. Reykjanesfólkvangur er um 300 ferkflómerar
að stærð og er stærsta friðlýsta svæðið sinnar tegundar
á landinu. Sigrún greindi frá niðurstöðum skýrslu sem
hún gerði um mikilvægi svæðisins og framtíðarmögu-
leikana.
Sama kvöld hélt Ármann Höskuldsson eldíjallafræð-
ingur einnig fýrirlestur um rannsóknir sínar og kortlagn-
ingu á Reykjaneshryggnum. I rannsóknum sínum komst
Ármann meðal annars að því að á hryggnum er að finna
stóra eldstöð, fimmtíu kflómetra í þvermál, sem er þess
eðlis að geta gosið hvenær sem er. ítarlega hefur verið
sagt frá rannsóknum Ármanns í DV að undaförnu.
Hrönn segir að á sumrin sé mun meiri aðsókn í Salt-
fisksetrið. Það séu fyrst og fremst erlendir ferðalangar
sem sæki safnið heim, en á sama stað sé rekin upplýs-
ingamiðstöð sem ferðamenn sæki mikið í. „Svo fjölgar
íslendingunum sem koma hér við ár frá ári. Reykjanesið
hefur liðið fýrir litla kynningu innanlands í gegnum tíð-
ina, en það er allt að breytast ört."
Saltfisksetrið I Saltfisksetrinu í Grindavík er greint frá sögu og mikilvægi
saltfiskvinnslu fyrir þjóðarbúið í gegnum tíðina.