Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.2008, Blaðsíða 69
68 FÖSTUDAGUR 18. APRlL 2008
Fólkið DV
NOVA GEGN SÍMANUM:
Eurobandið frumsýndi
myndband við lagið This is
my life á heimsíðu Nova í
gær. Friðrik Ómar segir Euro-
bandið ekki í samkeppni við
Merzedes Club heldur löndin
42 sem taka þátt í Eurovison.
Myndbandið skartar hinum
hressa Draupni Draupnis-
syni frá Neskaupstað sem fer
á kostum.
„Þetta er vinur minn hann Draupnir sem er ætt-
aður frá Neskaupstað," segir Friðrik Ómar Hjör-
Ieifsson um Draupni Rúnar Draupnisson sem fer á
kostum í myndbandinu við lagið This is my life með
Eurobandinu. Myndbandið var frumsýnt á heima-
síðu símafyrirtækisins Nova í gær en í því leikur
Draupnir aðdáanda Eurobandsins sem syngur lagið
fyrir framan vefmyndavél. Fyrr en varir er hann svo
mættur á sviðið með Friðriki og Regínu og leikur á
als oddi.
„Við erum búin að vinna í þessu í mars og apríl,"
segir Friðrik um myndbandið sem beðið hefur verið
eftir. „Þetta gekk samt nokkuð hratt fyrir sig og voru
ekki nema tveir dagar af tökum," en Friðrik átti hug-
myndina að myndbandinu. „Mín hugmynd var sú
að hafa aðdáandann að syngja fyrir framan spegil
en síðan þróaðist hugmyndin í samstarfi við Baldvin
Zóphóníasson sem leikstýrði því. Þá var ákveðið að
hann syngi íyrir framan vefmyndavél."
Merzedes Club, sem var helsti keppinautur Eur-
obandsins í forkeppninni, gerði nýlega myndband
með Símanum. Friðrik segir að ekki sé um áfram-
haldandi samkeppni að ræða þótt myndbandið sé
unnið í samstarfi við Nova. „Nova er
stærsti skemmtistaður í heimi og að
sjálfsögðu erum við þar," segir Friðrik en
ekkert frekara samstarf hefur verið rætt.
„Við erum í keppni við hin 42 löndin
sem taka þátt í Eurovision en ekki Merz-
edes Club. En mér finnst myndbandið
þeirra samt mjög flott."
Friðrik segir að þótt myndbandið
eitt og sér vinni ekki keppnina komi
það til með að hjálpa þeim. „Þetta er
farið að færast svo mikið á netið að allt
getur skipt sköpum og þetta mynd-
band er strax farið að vekja mikla
athygli," en Friðrik og Regína munu
stíga á sviðið í Belgrad fyrir Islands
hönd 22. maí og eru fyrst á svið.
Ekki náðist í Draupni Rúnar
Draupnisson við vinnslu fréttarinnar.
asgeir@dv.is
■Mm,. ■ W'
Draupnir Rúnar Draupnisson
Leikur á als oddi í myndbandinu.
This is my life Myndbandið
var frumsýnt í gær á nova.is.
DRAUPNIR
JÓNAS
AFTURÁ
STOÐ2
Jónas R. Jónsson hefur snúið
aftur í fjölmiðla eftir nokkra fjar-
veru. Þessu greindi Fréttablaðið
frá í gær en Jónas hætti störf-
um hjá 365 eftir að hann stýrði
spurningaþættinum Viltu vinna
milljón á eftir Þorsteini J. Jónas,
sem hefur starfað sem umboðs-
maður íslenska hestsins undan-
farið, mun verða bak við tjöldin í
þættinum ísland í dag. Þar starf-
ar hann sem sérstakur ráðgjafi
og á að auka áhorf þáttarins sem
hefur dalað nokkuð.
Hljómsveitin rqjim er að fara í stutta
tónleikaferð til Ameríku. Með í
för verður hljómsveitin Hjaltalín
sem ædar að hitá upp fyrir múm
á tvennum tónleikum í New York.
múm hefur farið í ófáar tónleika-
ferðimar þau tíu ár sem hljómsveit-
in hefur verið starfandi og hefur
komið víða við. Bara á þessu ári
hafa kralckarnir komið við í Japan,
Singapúr og Ástralíu. Það er ljóst að
krakkarnir í múm eru mikið gefnir
fyrir vini sína. Vinir þeirra í Sea-
bear, Borko, Skakkamanage og nú
Hjaltalín hafa allir fengið að spreyta
sig á hljómleikaferðalagi þeirra sem
hófst í haust þegar platan þeirra
Go Go smear the Posion Ivy. Fyrir
utan einskæran vilja þeirra til að
koma öðmm böndum á framfæri
fmnst þeim bara svo gaman að vera
með vinum sínum í útlöndum. Það
segir Örvar Þóreyjarson Smárason
að minnsta kostí í nýlegu viðtali við
tónleikastaðinn AB í Brussel. Við-
talið má sjá á Youtube.com
„Já, það em spennandi tímar fram undan endurbætur en 22 var einn vinsælasti „Það tóku nýir eigendur við staðnum í
hérna hjá okkur og við reiknum með skemmtistaður borgarinnar um tíma febrúar og markmiðið þeirra er bara að
því að endurbótum á staðnum verði og var einmitt til húsa þar sem Barinn bæta staðinn fyrir okkar kúnna og halda
lokið síðustu helgina í maí," segir Agatha er núna, á Laugavegi 22. Þegar Agatha áfram í þessa heimilislegu stemningu sem
Gunnarsdóttir, rekstrarstjóri á Barnum, er spurð hvort hún geti staðfest þessar hér ríkir. Samhliða endurbótunum fer svo
aðspurð hvort fyrirhugaðar séu breytingar ffegnir svarar hún: „Það verður bara eldhúsið okkar í gang með nýjum kokkum
á skemmtistaðnum. Samkvæmt öruggum að koma í ljós."Jafnffamt segir hún að og nýjum matseðli." Barinn bryddar upp
heimildum DV kemur Barinn til með að markmiðið með endurbómnum sé alls á nýjungum og seinna verður aivöru reif-
taka aftur upp nafnið 22 eftir fyrirhugaðar eldd að breyta um stefnu né kúnnahóp. partí á Barnum.
ENDURBÆTUR VERÐA GERÐAR A SKEMMTISTAÐNUM BARNUMILOK MAI
SAMKVÆMT HEIMILDUM DV VERÐUR STAÐURINN AFTUR NEFNDUR 22.
22SNYRAFTUR?
Barinn, Laugavegi 22
Rekstrarstjóri Barsins segir þad
koma í Ijós hvort nafninu verði
breytt í 22.