Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.2008, Blaðsíða 46
46 FÖSTUDAGUR 18. APRIL2008
Ættfræði DV
Indriði Indriðason frá Fjalli
ættfræðingur og rithöfundur
Indriði Indriðason,
rithöfundur og ætt-
fræðingur, til heim-
ilis að elliheimilinu
Hvammi á Húsavík,
varð hundrað ára í
gær.
Starfsferili
Indriði fæddist á Ytra-Fjalli
í Aðaldal og ólst þar upp. Hann
var við nám í unglingaskól-
anum á Breiðumýri 1923-24,
stundaði nám í ensku og ensk-
um bókmenntum í San Franc-
isco 1927-28, nam þar múr-
smíði og vann þar við tré- og
múrsmíði 1926-30.
Indriði var bóndi á Grenjað-
arstöðum í Aðaldal 1930-32, á
hálfu Aðalbóli í Aðaldal 1932-
35, var starfsmaður ÁTVR 1935-
42, bókhaldari og smiður við
Trésmiðjuna Fjölni 1942-44,
stundaði nætursímavörslu við
Landsímann 1943-44, vann á
Skattstofu Reykjavíkur 1944-72
og var fulltrúi þar 1955-1972.
Indriði var einn af stofn-
endum Landssambands ungra
framsóknarmanna 1939, sat
í stjórn Félags Vestur-íslend-
inga, í stjórn Félags Þingeyinga
í Reykjavík 1943-61, sat í stjórn
Félags ísl. rithöfunda 1952-54
og 1976-93 og í stjórn Rithöf-
undasambands íslands 1957-
66. Hann sat í framkvæmda-
nefnd Stórstúku Islands
1949-52, 1964-74 og 1976-80,
var stórtemplar 1976-78, sat í
stjórn Reglu musterisriddara
frá stofnun 1949-72 og 1974-85
og í stjórn Þjóðræknisfélags ís-
lendinga 1960-74, var formað-
ur Ættfræðifélagsins 1972-75
og formaður Myntsafnarafélags
íslands 1976-77. Hann var full-
trúi á heimsþingi góðtemplara
í New York, Chicago og Minn-
eapolis 1951, í Istanbul 1970 og
í Amsterdam 1978 og fulltúi á
þingi Musterisriddara í Stokk-
hólmi 1961.
Indriði er heiðursfélagi
Stórstúku fslands, Ættfræðifé-
lagsins, Myntsafnarafélagsins,
Félags íslenskra rithöfunda,
fslenska mannfræðifélagsins,
Reglu musterisriddara og ridd-
ari fálkaorðunnar frá 1978.
Eftir Indriða hafa komið út
bækurnar Örlög, smásögur,
1930; Dagur er liðinn, ævisaga
Guðlaugs Kristjánssonar frá
Rauðbarðaholti, 1946; Afmæl-
isrit Jaðars, 1948; Einstakling-
urinn og áfengismálin, 1952;
Góðtemplarareglan á fslandi 75
ára, 1959; Ættir Þingeyinga I-IV,
1969-83; Indriðabók, 1988, með
völdu efni eftir hann, útgefin
af vinum hans, og Ættir Þing-
eyinga, ásamt öðrum, V og XV
bindi. Þá hefur hann
þýtt og séð um útgáfu
nokkurra rita.
Fjölskylda
Indriði kvæntist
17.7. 1931 Sólveigu
Jónsdóttur, f. 4.2. 1909, d. 6.2.
1991, húsfreyju. Foreldrar
hennar voru Jón Jónatansson,
búnaðarráðunautur, ritstjóri og
alþm. á Ásgautsstöðum í Flóa,
og k.h., Kristjana Benedikts-
dóttir húsfreyja.
Börn Indriða og Sólveigar:
Indriði, f. 16.4.1932, fyrrv. skóg-
ræktarfræðingur á Tumastöð-
um í Fljótshlíð, nú búsettur í
Reykjavík, var kvæntur Valgerði
Sæmundsdóttur sem er látin;
Ljótunn, f. 20.7.1938, fýrrv. full-
trúi VfS hf. á Húsavík, var gift
Sævari Austfjörð Harðarsyni;
Solveig, f. 2.5. 1946, húsmóðir,
gift Birni Sverrissyni, stöðvar-
verði við Búrfellsvirkjun.
Systkini Indriða; Ketill, f.
12.2. 1896, d. 22.9. 1971, b. og
skáld á Ytrafjalli; Þrándur, f. 4.7.
1897, d. 27.5. 1978, b. og spari-
sjóðsstjóri á Aðalbóli; Ólöf, f.
6.5. 1900, nú látin, húsfreyja
á Brúum í Aðaldal; Högni, f.
17.4. 1903, d. 17.9. 1989, b. og
organisti á Syðrafjalli; Úlfur,
f. 27.11. 1904, nú látinn, b. og
oddviti á Héðinshöfða; Hólm-
fríður, f. 3.7.1906, nú látin, hús-
freyja á Skjaldfönn; Solveig, f.
13.5. 1910, nú látin, húsfreyja
á Syðribrekkum; Óttar, f. 21.4.
1920, d. 25.6.1994, ljósmyndari
og fiskiræktarmaður í Burling-
ton í Vermont en síðar á Héð-
inshöfða.
Foreldrar Indriða voru Ind-
riði Þórkelsson, f. 20.10. 1869,
d. 7.1. 1943, bóndi, skáld, ætt-
fræðingur og oddviti á Ytra-
Fjalli í Aðaldal, og k.h., Krist-
ín Sigurlaug Friðlaugsdóttir, f.
16.7. 1875, d. 28.3. 1955, hús-
freyja.
Ætt
Föðurbróðir Indriða var
Jóhannes, faðir Þorkels há-
skólarektors. Indriði var son-
ur Þórkels, b. á Syðrafjalli
Guðmundssonar, b. á Sílalæk
Stefánssonar, b. á Sílalæk Ind-
riðasonar, b. á Sílalæk Árna-
sonar, ættföður Sílalækjarætt-
arinnar.
Kristín var dóttir Friðlaugs,
b. á Hafralæk Jónssonar, af
Hólmavaðsættinni, bróður
Friðjóns, föður skáldanna Guð-
mundar á Sandi og Sigurjóns á
Litlulaugum.
Indriði tók á móti gestum að
Dvalarheimilinu Hvammi í gær.
Hann er mjög ern og líkamlega
hress miðað við aldur.
UPPLÝSINGAR
UM AFMÆLISBÖRN
SENDA ÞARF MYND'F MLO
ÖLLUM AFMÆLISUPRI YSjNGUM
Á KGK@DV.IS
Ættfræði DV
Kjartan Gunnar Kjartansson rekur ættir
þjóðþekktra íslendinga sem hafa verið
I fréttum í vikunni, rifjar upp frétt-
næma viðburði liðinna ara og minnist
horfinna merkra íslendinga. Lesendur
geta sent inn tilkynningar um
storafmæli a netfangið kgk@dv.is
70ÁRAÍDAC
ÁSDÍS KVARAN
ÞORVALDSDÓTTIR
FYRRV. LÖGFRÆÐINGUR HJÁ SKATTSTOFU REYKJAVÍKUR
Ásdís Kvaran Þorvaldsdóttir lög-
fræðingur, Sólvallagötu 3, Reykjavík,
er sjötug í dag.
Starfsferill
Ásdís fæddist við Sólvallagötuna
og ólst þar upp. Hún lauk stúdents-
prófi frá MR 1961 og embættisprófi í
lögfræði ffá Hí 1972, stundaði síðar
framhaldsnám í lögfræði við Kaup-
mannahafnarháskóla 1994-95 og í
Evrópurétti við Háskólann í Bonn
1995-96. Ásdís var um skeið búsett
í Mosfellssveit og var íslenskukenn-
ari við Gagnffæðaskóla Mosfells-
sveitar 1973-84. Hún hóf síðan störf
hjá Skattstofunni í Reykjavík og var
lögffæðingur þar á rannsóknadeild
virðisaukaskatts þar til um síðustu
mánaðamót.
Fjölskylda
Ásdís giftist 28.3. 1970 Einari
Gunnari, f. 10.6. 1926, d. 7.2. 1972,
sýslumannsfulltrúa á ísafirði, syni
Einars Björgvins Kristjánssonar,
húsasmíðameistara í Reykjavík, og
k.h., Guðrúnar Sigríðar Guðlaugs-
dóttur, systur Jónasar skálds.
Dóttir Ásdísar og Einars Gunn-
ars er Hjördís Kvaran Einarsdóttir,
f. 21.12. 1970, nemi við HÍ í íslensk-
um fræðum og miðaldafræðum en
eiginmaður hennar er Guðmund-
ur Stefán Valdimarsson, bátsmað-
ur á varðskipinu Ægi og eru dætur
þeirra Guðrún Lilja Guðmundsdótt-
ir, f. 25.9.1994; Þuríður Kvaran Guð-
mundsdóttir, f. 4.6. 1997; Jóna Mar-
grét Guðmundsdóttir, f. 30.1.2002.
Alsystir Ásdísar var Þuríður Kvar-
an, f. 23.3. 1940, d. 8.3. 1984, bók-
menntafræðingur og kennari í
Reykjavík.
Hálfsystkini Ásdísar, samfeðra:
Lydia, f. 17.5. 1923, húsmóðir í
Bandaríkjunum; Katrín, f. 6.9. 1924,
nú látin, hjúkrunarfræðingur, síðast
búsett í Hveragerði; Ólafur, f. 14.5.
1926, nú látinn, rafvirkjameistari í
Reykjavík; Vigdís, f. 17.6. 1927, nú
látin, húsmóðir og hárgreiðsludama
í Reykjavík; Kristín, f. 26.1.1936, hús-
móðir í Bandaríkjunum.
Foreldrar Ásdísar: Þorvaldur Ól-
afsson, f. að Sandfelli í Örfæfum, 1.5.
1896, d. 12.10. 1974, bóndi í Arnar-
bæli og að Öxnalæk í ölfushreppi,
síðar iðnverkamaður í Reykjavík, og
Hjördís Sigurðardóttir Kvaran, f.á
Akureyri 27.10. 1904, d. 26.11. 1993,
ritari í Reykjavík.
Ætt
FöðursysturÁsdísar: Katrín Elísa-
bet, Vigdís og Louise Magnea.
Föðurforeldrar Ásdísar voru Ól-
afur, prófastur og stórb. í Arnarbæli
Magnússon, og k.h., Lydia Angel-
ika Knudsen. Bróðir Ólafs var Jósef
Gottfred Blöndal, faðir Guðmund-
ar Vignis sem var gjaldheimtustjóri
í Reykjavík, en systir Ólafs var Anna,
langamma Gísla Alfreðssonar, leik-
ara og fyrrv. þjóðleikhússtjóra. Faðir
Ólafs var Magnús, snikkari í Reykja-
vík Árnason, b. og ljósföður í Stokk-
hólma í Skagafirði Sigurðssonar.
Bróðir Magnúsar var Sæmundur,
langafi Björgvins, föður Sighvats,
fyrrv. ritstjóra alþm. og ráðherra, en
systir Magnúsar var Margrét, amma
Elínborgar Lárusdóttur rithöfundar.
Móðir Magnúsar var Margrét Magn-
úsdóttir, systir Pálma, langafa Helga
Hálfdanarsonar skálds, Péturs, föð-
ur Hannesar skálds, og Jóns, föður
Pálma í Hagkaup, föður Ingibjargar
og Lilju.
Móðir Ólafs prófasts var Vigdís
Ólafsdóttir, pr. í Viðvík Þorvaldsson-
ar, prófasts og skálds í Holti Böðvars-
sonar.SystirÓlafsíViðvíkvarÞuríður,
langamma Vigdísar Finnbogadótt-
ur, fyrrv. forseta. önnur systir Ólafs
var Rannveig, langamma Þórunnar,
móður Gylfa Þ. Gíslasonar fv. ráð-
herra, föður þeirra Þorsteins heim-
spekings, Vilmundar ráðherra og
Þorvaldar hagfræðings. Þriðja systir
Ólafs var Sigríður, móðir Kristínar,
konu Lárusar Blöndals amtmanns,
langafa Benedikts hæstaréttardóm-
ara, Hallórs, fyrrv. ráðherra og Har-
aldar lögfræðings. Fjórða systir Ólafs
var Sigríður, langamma Önnu, móð-
ur Matthíasar Johannessen skálds og
fyrrv. Morgunblaðsritstjóra, föður
Haraldar ríkislögreglustjóra. Móð-
ir Ólafs í Viðvík var Kristín Björns-
dóttir, systir Elísabetar, langömmu
Sveins Björnssonar forseta.
Lydia Angelika Knudsen var dótt-
ir Ludvig Arne Knudsen, kaupmanns
í Hafnarfirði, og s.k.h., Katrínar Elísa-
betar Einarsdóttur. Ludvig Arne var
sonur Lauritz Michael Knudsen, ætt-
föður Knudsenættarinnar.
Bróðir Lydiu var Moritz Vilhelm
Biering, faðir Ósvalds Knudsen
kvikmyndagerðarmanns. Hálfsyst-
ir Lydiu var Jóhanna Andrea, móð-
uramma þeirra systra, Guðrúnar,
konu Jónasar Árnasonar rithöfund-
ar, og Ingibjargar Birnu, konu Pét-
urs Péturssonar útvarpsmanns og
móður Ragnheiðar Ástu útvarpsþul-
ar. Önnur hálfsystir Lydiu var Fre-
drikka, amma Haraldar Á. Sigurðs-
sonar leikara. Þriðja hálfsystir Lydiu
var Margrethe Andrea, langamma
Elfu Bjarkar, framkvæmdastjóra Rík-
ishljóðvarpsins. Systir Ludvig Ame
var Kristjana sem Jónas Hallgríms-
son orti til Söknuð.
Móðurforeldar Ásdísar voru Sig-
urður H. Kvaran, læknir og ritsjóri,
og f.k.h., Þuríður Jakobsdóttir, kaup-
manns á Vopnafirði Helgasonar.
Bróðir Sigurðar var Einar H. Kvar-
an, rithöfundur og skáld og forseti
Sálarrannsóknarfélagsins, langafi
Guðrúnar Kvaran, ritstjóra Orðabók-
ar HÍ. Einar H. Kvaran var afi Ævars
Kvaran, leikara og rithöfundar. Ann-
ar bróðir Sigurðar var Jósef, afi Karls
Kvaran listmálara, föður listfræðing-
anna, Ólafs og Gunnars Kvaran. For-
eldrar Sigurðar voru Hjörleifur, próf-
astur á Undirfelli Einarsson og f.k.h.,
Guðlaug Eyjólfsdóttir, b. á Gíslastöð-
um á Völlum Jónssonar.
Ásdís heldur upp á afinælið í
Kaupmannahöfn.