Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.2008, Blaðsíða 56
56 FÖSTUDAGUR 18. APRlL 2008
Helgarblaö DV
Hættuleg horn
Þjófar sem stálu tveimur nashyrningshornum af safni í Höfðaborg í Suður-Afríku
hafa verið varaðir við. Safnið sendi út viðvörun þess efnis að þeim stæði meiri
hætta af hornunum en handtöku og réttarhöldum. Nashyrningshorn hafa gegnum
árin verið mulin í lyf af ýmsum toga og þar liggur hundurinn grafinn. Þessi horn
voru nefnilega úðuð með arseniki og DDT til að koma í veg fyrir að flugur sæktust í
þau á safninu. Því er hætt við að læknisáhrif þeirra séu frekar takmörkuð.
Patriciu Columbo var meira en lítiö í nöp viö fööur sinn, og honum var meira en lítið
i nöp viö kærasta hennar. í félagi við kærasta sinn myrti hún alla fjölskyldu sina meö
hryllilegum hætti.
Fjórtán,
kannski
sautján
Fjórtán ára drengur sem
var handtekinn fyrir nauðgun í
Hróarskeldu í vikunni sleppur
kannski ekki eins vel og hann
reiknaði með. Honum er geíið
að sök að hafa nauðgað fimmt-
án ára kærustu sinni að kvöldi
mánudags, en samkvæmt
skilríkjum er hann íjórtán ára
og því ekki hægt að rétta yfir
honum.
Danska lögreglan er ekki á
því að gefast upp og því verður
drengurinn sendur til tann-
læknis sem á að kveða upp úr
með hve gamall hann sé í raun
og veru. Það ku ekki vera óal-
gengt í Danmörku meðal inn-
flytjenda að skrá börn sín yngri
en raunin er til að njóta trygg-
ingabóta lengur.
Patricia Columbo og Frank DeLuca Myrtu fjölskyldu hennar með
hryllilegum hætti.
Pantaði
morð
Tuttugu og átta ára norsk
kona var í síðustu viku dæmd til
fjögurra og hálfs árs fangelsis-
vistar. Hún var sek fundin um að
hafa skipulagt og pantað morð
og ráðið til verksins átján ára
þroskaheftan karlmann. Hafði
konan í smáatriðum útskýrt fyr-
ir manninum hvemig morðið
skyldi ffamið og hafði séð hon-
um fyrir hönskum, hníf og kylfu.
Fómarlambið var önnur
kona og lifði hún tilræðið af, en
sá þroskahefti var dæmdur til
eins árs fangelsisvistar fyrir lík-
amsmeiðingar og ógnanir.
Síðastaförin
í svissneskum kynlífsklúbbi
vom örlög eins viðskiptavinar-
ins ráðin. Þó ekki á þann hátt að
hann hitti lífsförunaut sinn til
langs tíma litið. Hann einfald-
lega hitti sinn síðasta fömnaut.
Um var að ræða eldri herra-
mann sem hafði hugsað sér gott
til glóðarinnar og notið félags-
skapar einnar vændiskonu í
Tropical-klúbbnum í Grenchen.
Að sögn vitnis hafði maður-
inn ótrúlega hægt um sig að leik
loknum og lá grafkyrr með lok-
uð augun. Vændiskonunni leist
ekkert á blikuna og rak upp vein
mikið með þeim afleiðingum
að aðrir gestir þustu að. Fyrsta
niðurstaða lögreglunnar efdr að
hún kom á staðinn var að mað-
| urinn hefði látíst af eðlilegum
orsökum.
7. maí 1976 fann lögreglan í Chi-
cago yfirgefinn bíl, skráðan á Frank
Columbo, og þótti ljóst að bílnum
hefði verið stolið. Þegar lögreglan
kom á heimili Columbo-fjölskyld-
unnar mætti þeim hryllileg sjón.
Frank, fjömtíu og þriggja ára,
hafði verið skotínn fjórum sinn-
um í höfuðið, og af ummerkjum
að dæma hafði hann sætt mikl-
um pyntingum og barsmíðum fyrir
dauða sinn. Hann hafði verið barinn
ítrekað með keiluverðlaunagrip og
lampa og var því sem næst óþekkj-
anlegur. Einnig vom merki um síg-
arettubmna á bringu hans auk þess
sem hann hafði verið stunginn í háls
og bringu.
Eiginkona hans hafði verið skotín
einu skotí á milli augnanna, skorin á
háls og barin með glervasa. Hún var
íklædd náttkjól og nærbuxur hennar
vom dregnar niður á ökkla.
Þrettán ára sonur þeirra, Michael,
var einnig dáinn. Hann hafði ver-
ið skotínn, barinn með sama verð-
launagrip og faðir hans og stunginn
oftar en áttatíu sinnum, aðallega í
háls, með skæmm. Heimili fjölskyld-
unnar bar engin merki innbrots og
því ljóst að ekki var um venjulegan
glæp að ræða.
Einn fjölskyldumeðlimur á lífi
Patricia, nítján ára heimasæta,
var eini meðlimur fjölskyldunnar
sem ekki fannst á heimilinu. Þess
var ekki að vænta þar sem hún hafði
búið um skeið hjá þrjátíu og sjö ára
vinnufélaga, Frank DeLuca.
Ray Rose rannsóknarlögreglu-
maður hnaut mjög fljótlega um
undarlega hegðun dóttur hjónanna.
„Ef þú værir nýbúinn að fá þær frétt-
ir að fjölskylda þín hefði verið myrt,
myndir þú flýta þér á staðinn," sagði
Rose.
Þess í stað fór Patricia Columbo
á lögreglustöðina og settí fram
kenningar um tilefni og hugsan-
lega morðingja. Einni kenningu var
umsvifalaust hafnað, að faðir henn-
ar hefði verið skotmark mafíunnar,
enda ekkert sem benti til þess að
hann tengdist skipulagðri glæpa-
starfsemi. Ekki leið á löngu áður en
lögreglan beindi rannsókninni að
Patriciu. Tíu dögum síðar var Patr-
icia handtekin og ákærð fyrir morð
og samsæri.
Riffilskefti í andlitið
í ljós kom að Frank Columbo
hafði ekki mikið álit á nafna sín-
um DeLuca, sem þrátt fyrir að vera
Þar var meðal annars
um að ræða kynlíf
með öðrum pörum og
einnig tók DeLuca af
henni ögrandi mynd-
ir, þar afeina þar sem
hún varnakin með
þýskum fjárhundi.
giftur fimm barna faðir var kærasti
Patriciu. Eitt sinn hafði þeim lent
saman með þeim afleiðingum að
faðir Patriciu sló DeLuca á kjálkann
með riffilskefti. Atvikið var kært en
síðar látið niður falla.
DeLuca og Patriciakynntust þeg-
ar hún var sextán ára og hún dróst
inn í þann lífsstíl sem hún kynntist
gegnum hann. Þar var meðal ann-
ars um að ræða kynlíf með öðrum
pörum og einnig tók DeLuca af
henni ögrandi myndir, þar af eina
þar sem hún var nakin með þýskum
fjárhundi.
Sumarið 1975 gerði Patricia til-
raun tíi að fá tvo menn sem hún
hafði táldregið til að myrða fjöl-
Veikt ónæmiskerfi olli óviöráöanlegri vörtumyndun: 4
„Trjámaðurinn" undir hnífinn
skyldu hennar. Hún lét þá fá teikn-
ingu af húsinu, en ekkert varð úr að-
gerðum.
Ari síðar fór hún í félagi við
DeLuca á heimili foreldra sinna og
réðust þau á fjölskyldu hennar með
fyrrgreindum afleiðingum.
Hann skaut, hún misþyrmdi
„Mig langað að berja föður
minn í köku," sagði Patricia við yf-
irheyrslur, hún sagðist hafa óttast
að faðir hennar hefði ráðið leigu-
morðingja til að ráða hana og elsk-
huga hennar af dögum.
Það virtust lítil áhöld um að
bæði hefðu verið virk í morð-
unum. „Frank DeLuca sá um að
skjóta," sagði Ray Rose. „Og mis-
þyrmingarnar, hnífstungurnar og
barsmíðarnar sá Patty um."
Eftir mánaðar löng réttar-
höld full af frásögnum af kynlífi
og hryllilegum ljósmyndum voru
skötuhjúin sakfelld. Þau voru
dæmd til tvö hundruð ára fangels-
isvistar.
Arið 2006 var Patriciu Columbo
neitað um reynslulausn í tólfta
skipti. Flestir ættingjar hennar
hafa ítrekað mælst til þess að hún
verði geymd á bak við lás og slá.
í yfir tuttugu ár hefur „Trjámaðurinn"
Dede Koswara frá Indónesíu þjáðst af vír-
us sem olli því aö líkami Koswara steyptist
út í vörtum og hendur hans og fætur tóku aö
líkjast trjárótunt. Læknum tókst nýlega að
fjarlægja tvö kíló af þessari vörtumyndun og
gera Koswara kleift að nota hendur sínar, án
verkja, í fyrsta skipti í tuttugu ár. í DailyTele-
graph segir aö síðan aögerðin var gerö hafi
Koswara oröiö mikill aödáandi Sudoku, því
hann geti nú haldiö á kúlupenna án mikilla
vandkvæða.
Þaö er sjálígefiö aö Dede Koswara horfir
bjartari augum til framtíöarinnar en hingaö
til. „l’aö fyrsta sem ég geri veröur aö finna
starf. En hver veit, kannski liitti ég einhvern
tímann stúlku og kvænist," sagöi Koswara.
Algengur vírus
Rreyting Koswara hófst þegar hann var fimmt-
án ára, en þá varð hann íyrir því óhappi að skera
sig í fótlegg. Til að byrja meö mynduðust vörtur
neðst á fæti haas, þær stækkuöu og fyrr en varði
höfðu þær breiðst út um allan líkamann.
Dede Kosvvara haföi fyrir unnið viö liskveiðar
og sem smiður, en hann varð fljótlega aö leggja
árar í bát og hamarinn á hilluna. Til aö afla sér
lífsviöurværis ferðaðist hann um og sýndi líkama
sinn í viðrinasýningu. En tekjur hans drógust
saman og konan yfirgaf hann og tók börnin meö
sér. Bandarískur húðsjiíkdómalæknir heyrði al
Koswara og fór til Indónesíu í von um aö finna
mótefni. Þá kom í ljós aö um einfaldan og algeng-
an vírus var aö ræöa sem að öllu jölnu veldur litl-
um vörtum. En ónæmiskerfi Koswara er alar veikt
og því fór sem fór.
Dede Koswara „Trjámaðurinn" kolféll fyrirSudoku.