Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.2008, Blaðsíða 4
4 FÖSTUDAGUR 18. APR(L 2008
Fréttir DV
SANDKORN
■ Kjartani Magnússyni, stjómar-
formanni Orkuveitunnar og REI,
tókst hið ómögulega í Kastljósvið-
. taliámiðviku-
dagirm. Þar
lýstihannþví
yfir að hann
sé tilbúinn að
fá einkaaðila
inn í rekstur
REI þrátt íyrir
aðhafaverið
alfarið á móti
því að blanda saman opinberum
rekstri og einkarekstri þegar REI-
málið stóð sem hæst á haustmán-
uðum. lalnframt sagðist hann
ekkert hafa á móti Geysi Green
Energy þrátt fyrir að aðkoma þess
fyrirtælds hafi splundrað heilu
meirihlutasamstarfi í borginni. Þá
hverfur Kjartan frá þverpólitískri
niðurstöðu stýrihóps REI um að
fyrirtækið eigi alfarið að vera í eigu
Orkuveitunnar. Öllu þessu áorkaði
Kjartan í einu 6 mínútna viðtali.
Geriaðrirbetur.
■ Ólafur F. Magnússon borgar-
stjóri lætur það ekki spyrjast út
um sig að borgin hans geti kallast
Ruslavík. Efitir að DV vakti athygli á
msli og drasli víða um borgina gaf
borgarstjórinn út skipanir til sinna
manna sem dreifðust um borgina
að tína upp msl. Þannig mátti sjá
fyrir helgi borgarstarfsmenn tína
msl í Ártúnsbrekkunni og úr Tjöm-
inni við ráðhúsið en þessir tveir
staðir vom einmitt meðal margra
sem DV fjallaði um í vikunni. Það
er því alveg ljóst að Ólafúr borg-
arstjóri les DV, líkt og sannaðist
einnig nýverið þegar hann ákvað
að berjast fýrir aukafjárveitingu til
handa föduðum bömum í Reykja-
vík. Fjármunum sem hann hafði
áður neitað bömunum um en vildi
ekki láta spyrjast út um sig eftir að
DV fjallaði um málið.
■ Núna ædar Eyþór Guðjónsson,
einn af aðalleikimmum í hryllings-
og pyntingamyndinni Hostel og
einn af framleiðendum fiamhalds-
myndarinn-
ar Hostel:
Part II, að
reisa af-
þreyingar-
miðstöð í
Grafarvog-
inum. Þar
verðurlögð
áherslaá
útivist, íþróttir og samvemstund-
ir fjölskyldunnar. Að mati DV er
þetta einum of mjúk fiamkvæmd
fyrir hryllingsharðjaxlinn Eyþór og
því nauðsynlegt að hann bæti inn
spennuþrungnum afþreyingar-
möguleikum, í anda Hostel-mynd-
arinnar, inn á svæðið. DV stingur
upp á alvöm pyntingamiðstöð, og
um leið minjasafni fýrir kvikmynd-
ina vinsælu, þar sem áhersla er
lögð á hrylling og spennu. Pynt-
ingamiðstöðin myndi án efa vekja
athygli í heimspressunni og draga
jafnvel ferðamenn hingað til lands.
■ Spennan ríkir hins vegar svo
sannarlega hjá hinum íslenskætt-
aða útgerðarsyni Paul Einari Að-
alsteinssyni, öðm nafni Ian Stra-
chan, sem nú er fyrir konunglegum
réttí á Bretíandi. Hann var hand-
tekinn í félagi við annan mann með
myndband í fórum sér sem sýna
áttí frarn á kynmök og eiturlyíja-
neyslu systursonar Efísabetar Eng-
landsdrottningar, Davids Linley
markgreifa. Félagamir em sakaðir
um fjárkúg-
un gagnvart
markgreif-
anum. Vöm
Pauls snýr aft-
urámóti að
því að greif-
inn hafi boðið
fé að fýrra
bragði og
fyrir því liggi fúllkomnar sannanir.
Réttarhöldin hófúst á þriðjudaginn
síðastliðinn og beðið er niðurstöð-
unnar með þó nokkurri eftirvænt-
inguáBretlandi.
Guðlaug Sigfúsdóttir flugfreyja telur að hún hafi verið rekin frá flugfélaginu Jetex fyrir
að blanda sér í kjaramál. Hún segir að flugfreyjur hjá Jetex þurfi nauðsynlega á trúnaðar-
manni að halda. Jón Karl Ólafsson hjá Jetex segir að Guðlaug fari með rangt mál. Lengi
hafi staðið til að segja henni upp. Uppsögnin hafi ekkert með kjarabaráttu að gera.
SIGTRYGGUR ARI JÓHANNSSON
bladamaður skrifar sigtryggurta'dv.is
Guðlaug Sigfúsdóttir, flugfreyja hjá
leiguflugfélaginu Jetex, telur sig
hafa verið rekna úr vinnunni fýr-
ir að blanda sér í kjaramál. Samn-
ingur Guðlaugar við letex var ógilt-
ur og henni sagt upp störfum nú í
vikunni.
Skömmu áður hafði Sigrún Jóns-
dóttir, formaður Flugfreyjufélags ís-
lands, haft samband við Guðlaugu
og beðið hana að koma að málum
f kjarabaráttu flugfreyja. „Skýring-
arnar sem mér vom gefnar á brott-
rekstrinum voru þær að ég hefði
unnið gegn hagsmunum félags-
ins," segir Guðlaug. Hún útskýrir að
flugfreyjur hjá Jetex séu ekld aðilar
að samningum Flugfreyjufélagsins,
heldur sé samið beint við flugfélag-
ið. Jón Karl Ólafsson hjá letex seg-
ir það fráleitt að Guðlaug hafi verið
rekin fyrir að blanda sér í kjarabar-
áttu.
Ekkert til í þessu
„Við náttúrulega tjáum okkur
ekki um málefni einstakra starfs-
manna, en ég get þó sagt að upp-
sögnin er af allt öðrum ástæðum,"
segir Jón Karl. Hann segir að stað-
ið hafi til um nokkurt skeið að enda
samning Guðlaugar við félagið.
Flugfreyjur félagsins hafi ekki verið
aðilar að Flugfreyjufélaginu, en hér
sé félagafrelsi og Jetex muni ekki
standa í vegi fyrir þeim sem vilji
Jón Karl Ólafsson Jón Karl segir að brottrekstur Guðlaugar Baldursdóttur tengist
kjarabaráttu á engan hátt.Til hafi staðið að segja henni upp um nokkurt skeið.
gerast aðilar að Flugfreyjufélaginu.
Hjá Flugfreyjufélaginu fást þær
upplýsingar að Jetex hafi í gegnum
tíðina haft lítinn áhuga á samstarfi
og flugfreyjur Jetex séu nánast rétt-
lausar. Jón Karl bendir á að aðeins
um tíu prósent af umsvifum Jetex
séu á íslandi og að í slílcum tilvik-
um séu kjaramál afar flókin viður-
eignar. Jetex er með starfsstöðvar
víða um Skandinavíu og er einnig
að koma sér fyrir á írlandi.
Upplýsingaleki milli félaga
Nokkrir félagar Guðlaugar í
áhöfnum Jetex sóttu um vinnu hjá
samkeppnisaðilanum, Iceland Ex-
press. Guðlaug segir að upplýsing-
ar um það hverjir hafi leitað til Ice-
land Express virðist hafa lekið til
stjórnenda Jetex. „Krakkamir voru
kallaðir á fund og þeim sagt að
þeir mættu ekki sækja um hjá öðru
flugfélagi án þess að láta Jetex vita,"
segir Guðlaug. „Ég sagði þeim að
þetta væri alrangt. Starfsumsókn-
ir væru trúnaðarmál og einkamál
hvers og eins," heldur hún áfram.
Guðlaug telur að það hafi ver-
ið mistök hjá flugfreyjum Jetex að
„Krakkarnir voru kall-
aðir á fund og þeim
sagt að þeir mættu
ekki sækja um hjá
öðru flugfélagi."
gera hana ekki að trúnaðarmanni.
„Ef við hefðum valið okkur trúnað-
armann til þess að fara með þessi
mál hefði þessi staða kannski ekki
komið upp."
Verkfall yfirvofandi
Hjá Flugfreyjufélagi íslands er
þegar hafinn undirbúningur að
verkfalli. Sigrún Jónsdóttir, for-
maður félagsins, segir að ef ekki
verði af fundum í dag verði kosið
um verkfall. Kjaradeilan fór fyrir
ríkissáttasemjara. Þrír fundir með
honum hafa engan árangur borið.
Verkfall hjá flugfreyjum getur
haft víðtæk áhif. Innan vébanda
Flugffeyjufélagins era flugfreyjur
og -þjónar hjá Iceland Express, Ice-
landair og Flugfélagi íslands. Flug-
félagið Atlanta var um skamma
hríð aðili að félaginu, en hefur fyrst
og fremst notast við starfsmanna-
leigur.
Flugfreyjur segjast enga raun-
verulega launahækkun hafa feng-
ið síðan í janúar á síðasta ári. Þær
krefjast sambærilegra hækkana og
félög innan ASÍ sömdu um fýrir
skemmstu.
Leifsstöð Jetex flýgur fyrir Heimsferðir
og Terra Nova frá (slandi. Það er þó
aðeins um tíu prósent af umsvifum
félagsins. Hinn hlutinn er erlendis.
SKÁLDIÐ SKRIFAR
VERNDAÐ VEGGJAKROT
KRlSTJAN HRf INSSON SKALD SKRIFAR.
„Viö gleymum gjarnan liinu stóra samhcngi."
vað er líkt með veggjakroti og yfir-
stjóra Seðlabankans?
Áður en ég svara þessari einföldu
spurningu, verð ég að gera eftirfarandi
játningu: Ég leyfi mér þann munað að
hugsa veraldarsöguna í milljörðum ára og f mfn-
um huga eru fjarlægðir hins víða geims mældar í
ljósárum. Mikli hvellur er svo nálægur okkur um
leið og hann er svo langt í burtu - bæði í tíma og
rúmi. Þegar við sjáum að okkar tilgangur er sá
einn að þjóna tilgangsleysinu í óravídd alheims-
ins þá áttum við okkur á því að rómverska hetj-
an Hannibal og alþýðuhetjan Hannibal tilheyra
sama sandkorninu í þjappaðri mannkynssögu.
Við gleymum jafnan hinu stóra samhengi, týn-
um okkur í núinu og byrjum að dýrka augnablik-
ið. Við sjáum ekki samhengið þegar jeppaeigend-
ur og vörubílakarlar sperra sig hver um annað
þveran, þegar borgarstjórn kaupir kofadrasl f
miðborginni og á meðan menn þrátta um Frí-
kirkjuveg 11 og karpa um kreppu og kaupmátt.
Við gleymum heildinni á meðan menn nöldra
um aulana sem stjórna peningamálum okkar og
á meðan við reynum að uppræta veggjakrot.
En það sem sameinar þetta allt er tíminn og
rúmið og það sem sameinar veggjakrot og stjóm
Seðlabanka íslands er sú staðreynd að hvort-
tveggja má uppræta með réttum aðgerðum.
Veggjakrot er vandamál. Stjóm Seðlabankans
er vandamál.
Ef vilji er fýrir hendi þá leysa menn vandamál.
Og þegar kemur að veggjakroti þá má t.d. fara út
í eftirfarandi aðgerðir: Ekki selja mönnum úða-
brúsa nema þeir framvísi skilríkjum. Hækka verð
á úðabrúsum og setja 2000 króna skilagjald á
hvern brúsa. Og svo má dæma þá hart sem staðn-
ir eru að því að eyðileggja eigur annarra með því
aðúða lakki.
Þegar okkur er ljóst að menn eins og Halldór
Blöndal og Hannes Hólmsteinn Gissurarson eru
valdir í bankaráð Seðlabanka íslands og þegar
okkur er ljóst að Davíð Oddsson er þar æðstur
meðal jafningja, þá ætti okkur samtímis að vera
Ijóst að hér er ekki verið að hugsa um velferð
þjóðarinnar, heldur launað athvarf fyrir aukal-
eikara í Sirkus Geira Smart.
Mönnum hefur tekist að uppræta margan far-
aldurinn og mönnum mun takast að uppræta allt
illt ef þeir hafa döngun og dug.
Hér er kannski við hæfi að rifja upp vísu sem ort
var um ónefnda menn í ónefndum seðlabanka:
/ seðlabanka situr enn
sauðahjörðin auma,
þar heiladauðir heldri menn
halda um stjómartauma.