Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.2008, Blaðsíða 16
16 FÖSTUDAGUR 18. APRlL 2008
Helgarblað PV
Lögfræðingur Davíð
Oddsson aðalbankastjóri er
lögfræöimenntaður og var
skipaður bankastjóri eftir að
hann hætti í pólitíkinni.
TRAUSTI HAFSTEINSSON
bladamadui skrifai: trausti&dv.is
Aðeins helmingur æðstu stjórn-
enda Seðlabanka fslands er sér-
menntaður í hagfræði. Af þeim
tíu stjórnendum, bankastjórum
og bankaráðsmönnum, eru fimm
þeirra með hagfræðibakgrunn
en aðrir eru iögfræðingar, stjórn-
málafræðingar eða fyrrverandi
þingmenn eða ráðherrar. Aðal-
bankastjórinn er lögfræðingur og
formaður bankaráðs er fyrrverandi
ráðherra.
Bankastjórar og bankaráðs-
menn Seðlabankans eru allir póli-
tískt skipaðir. Bankaráð er kjörið af
Alþingi og bankastjórana þrjá skip-
ar forsætisráðherra. Seðlabankinn
fellur undir forsætisráðherra og sjö
manna bankaráð sem hefur eftir-
lit með starfsemi bankans. Banka-
ráðið kýs formann og varaformann
úr sínum hópi. Bankastjórnin hef-
ur yfirumsjón með rekstri bankans
og fer með vald til ákvarðana í öll-
um málum hans, svo sem stefnu í
peningamálum. Bankastjórn hef-
ur náið samráð við bankaráð um
stefnumörkun og ákvarðanir í mik-
ilvægum málum.
Falleinkunn
Að mati 20 þjóðþekktra álits-
gjafa og sérfræðinga sem DV Ieit-
aði til sleppur ríkisstjórnin rétt
við fall á prófinu í efnahagsstjórn
landsins. Stjórnin hlaut 5,5 í með-
aleinkunn. Seðlabankinn féll hins
vegar á þessu sama prófi efna-
hagsstjórnunar með 4,5 í meðal-
einkunn. Aðferðafræði bankans er
sögð gagnslaus og bankastjórnin
talin aðhlátursefni í útíöndum fyr-
ir getuleysi sitt. Guðmundur Ólafs-
son, lektor í hagræði við Háskólann
á Bifröst, bendir á að erlendis sé
fullyrt að efnahagslífið í Kasakstan
sé betra en á Islandi.
„Það er hlegið að okkur úti um
allan heim fyrir óstjórn í efnahags-
málum og vanhæfa stjórn Seðla-
bankans. Erlendir blaðamenn
hafa líkt lslandi við Kasakstan með
tilvísan ( vinsæla kvikmynd um
skoppersónuna Borat. Sagt er að
efnahagslíf okkar sé verra heldur
en í Kasakstan," sagði Guðmundur
í samtali við DV nýverið.
Ekkert kjaftvit
„Það er í verkahring
Seðlabankans
að sjá um
krón-
hlutverk Seðlabankans að koma í
veg fyrir að hægt sé að stunda vog-
unarviðskiptí sem hafi alvarlegar
afleiðingar á efnahag landsins. Það
hefur ekki þurft neina utanaðkom-
andi illvirkja í þessu máli heldur
er ábyrgðin hjá bankanum. Síðan
botna stjórnendurnir ekkert í því
þegar verið er að gera grín að okk-
ur. Það er eiginlega bara fyndið að
fylgjast með þessu. Það verður að
segjast alveg eins og er að bankinn
hefur staðið sig alveg skelfilega. Að
bankinn skyldi ekkert bregðast við
afglöpum íýrri ríkisstjórnar er eitt
mesta tjón frá upphafi í íslensku
efnahagslífi að mínu mati. Seðla-
bankinn hefur algjörlega brugðist
og þar ríkir óstjórn undir forystu
vanhæfra flokksdindla," bætir Guð-
mundurvið.
Þorvaldur Gylfason, prófessor í
hagfræði við Háskóla íslands, seg-
ir alveg ljóst að stjórnendur Seðla-
banka Ísíands verði að vera reynd-
ir kunnáttumenn í efnahagsmálum
og hafi til þess haldgóða menntun.
Hann segir kjaftvit um efnahags-
mál, eftir áralangt stjórnmálavafst-
ur, ekki duga til að stýra bankan-
um. Honum finnst vel menntaðir
stjórnendur jafnsjálfsagðir og að
vel menntaðir og reyndir flugstjór-
ar stýri farþegaflugvélum. „Seðla-
bankastjórinn þarf að lifa og hrær-
ast í efnahagsmálum og helst að
vera hagffæðingur ffam í fingur-
góma," segir Þorvaldur. Hann telur
starfsreynslu forsætisráðherra ekki
henta vel til stjórnunar Seðlabank-
ans enda tíðkist það varla nokkurs
staðar á byggðu bóli.
Takmörkuð völd
„Seðlabankastjóri, sem hefur
alið allan sinn aldur í pólitík
og kann ekki hagfræði, er eins
og peysufatakona undir stýri í
breiðþotu: hvaða farþegi með fullu
viti myndi stíga um borð í slíka vél?
f flugheiminum þætti sú málsvörn
ekki mikils virði, að yfirflugfreyj-
an viti, hvar neyðarbylgjuna er að
finna á talstöðinni í stjórnklefan-
um. Það þætti ekki heldur góð lat-
ína að leyfa afdönkuðum stjórn-
málamanni í hvítum sloppi að
stjórna skurðaðgerð í trausti þess,
að hjúkrunarfólkið viti, hvar miltað
er og brisið," bætir Þorvaldur við.
Lilja Mósesdóttir, prófess-
or í hagfræði, tel-
ur stýri-
vaxtahækkanir
Seðlabankans fram til
IffiPy ^ þessa ekki hafa verið
Sffjr réttar og stöðu bank-
ans vera veika í dag.
Hún segir bankann hafa
of takmörkuð lagaleg völd þeg-
ar fjárhagserfiðleikar steðja að.
„Vaxtahækkanirnar eru ekki nógu
áhrifamiklar til að draga úr kostn-
aðarverðbólgu sem stafar meðal
annars af verðhækkunum erlendis
og gengisfalli krónunnar. Mér finnst
vanta fræðilega umræðu meðal
sérfræðinga, um þær efnahagsað-
stæður sem við búum við í dag og
tæki Seðlabankans til að bregð-
ast við, og sakna ég umræðunnar
nokkuð. Ég bíð enn eftir aðgerð-
um ríkisstjómarinnar því laga-
lega hefur bankinn afar
takmörkuð völd,"
segir I.ilja.
Falleinkunn 20 álitsgjafar
DV gáfu Seðlabankanum
falleinkunn á dögunum fyrir
frammistöðu sína í
efnahagsstjórn landsins.