Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.2008, Blaðsíða 35
PV Helgarblað
FÖSTUDAGUR 27. APRlL 2007 3S
I,
KOSSANOTT
Einn allra besti leikmaður samtímans, Romario, tilkynnti í vikunni að hann
væri hættur. Þessi ótrúlegi leikmaður segist sjálfur hafa skorað yfir þús-
und mörk í öllum keppnum í öllum flokkum. Romario var hluti af
ótrúlegu Barcelona-liði, varð heimsmeistari 1994 og kjörinn besti
knattspyrnumaður heims sama ár.
ÁHM1994
Romario skoraði 5
mörká HM 1994.
Wtl'ÍIACt
mm l»t
á- *
Kominn í nýtt
m\\, hlurr^i:o
nu að hjálpa Brössum
að halda HM 2014.
Með styttuna
góðu Romario
hjálpaði Brasilíu að
verða heimsmeist-
ari árið 1994.
- .
WU-i
■■
1
BENEDIKT BÓAS HINRIKSSON
blaðamaöur skrifar: berwi(g>dv.is
„Ég hef ekki spilað síðan í nóvem-
ber og hef bætt á mig þremur eða
flórum kílóum síðan þá. Á þess-
um aldri er erfitt að koma sér aftur
í form," sagði Romario þegar hann
tilkynnti heiminum að hann hefði
hent inn hvíta handklæðinu. Skórn-
ir voru komnir upp í hillu hjá þess-
um aldna höfðingja.
Romario skoraði 56 mörk í 73
landsleikjum með Brasilíu en fyrst
klæddist hann hinni heimsfrægu
gulu treyju Brassanna 1987. Hann
var alltaf þekktur sem mikill marka-
skorari, með Vasco da Gama árið
2005, þá 39 ára, skoraði hann 22
mörk og varð markahæstur. Hann
segist meira að segja hafa skorað
1000 mörk á ferlinum. Enginn hefiir
hins vegar staðfest sögu Romario.
„Síðustu 20 ár hafa verið gríðar-
lega skemmtileg. En allt tekur enda
um síðir. Tími minn er einfaldlega
kominn. En ég kveð sáttur. Nú þarf
ég ekki að ferðast jafii mikið, æfa svo
stíft og sitja á hótelherbergi."
Romario hóf ferilinn með Vasco
árið 1985. Piet de Visser kom auga á
hann íyrir PSV þangað sem hann var
seldur árið 1988. De Visser er þekkt-
ur njósnari og hefur komið Ronaldo,
Alex, Adriano og fleirum til stórliða
frá Brasilíu. Hann er nú á mála hjá
Chelsea.
Romario var sigursæll með PSV.
Hann vann hollenska titilinn þrisvar
sinnum, 1989, 1991 og 1992. Hann
spilaði með liðinu til ársins 1993
en alls skoraði hann 98 mörk í 109
deildarleikjum. Frá PSV var hann
seldur til Barcelona. Með Börsung-
um á þessum tíma spiluðu margir
kunnir leikmenn. Hristo Stoichkov,
Josep Guardiola, Michael Laudrup
og Ronald Koeman svo fáeinir séu
nefndir. Á fyrsta tímabili sínu skoraði
hann 30 mörk í 33 deildarleikjum og
var markahæstur. Barca vann deild-
ina og Romario varð annar í kjöri
FIFA um knattspyrnumann ársins.
Sigurinn á HM
Tímabilið 1993-1994 var ekk-
ert sérstakt fyrir Romario hjá Barce-
lona en þó læddi hann inn nokkr-
um mörkum en meiðsli voru að
htjá hann. Um sumarið var svo sjáif
heimsmeistarakeppnin haldin í
Bandaríkjunum. Brassar höfðu átt
í erfiðleikum með að komast inn á
HM en kölluðu á Romario í lokaleikj-
unum sem stóð vaktina með sóma.
Á HM sprakk hann svo út, skoraði 5
mörk og hjálpaði Brössum að end-
urheimta HM-styttuna eftir 24 ára
útlegð. Með honum í framlínunni
var Bebeto og mynduðu þeir frábært
par. Eftir HM var Romario síðan út-
nefndur besti knattspyrnumaður
heimsins.
Romario fór frá Barcelona til Fla-
mengo í heimalandinu en sneri aftur
til Spánar í búningi Valencia. Hann
meiddist hins vegar 1997 og missti
því af HM 1998 og fór aftur til Fla-
mengo. Um aldamótin fór hann aft-
ur til Vasco og var útnefndur besti
knattspyrnumaður Brasilíu. 2002-
2004 lék hann með Fluminese en var
rekinn eftir að hafa lent upp á kant
við þjálfara liðsins. Enn á ný sneri
hann heim til Vasco og árið 2005, 39
ára, skoraði hann 22 mörk og varð
markahæstur.
Allt í einu dúkkaði hann upp
með þá sögu að hann nálgaðist
1000 marka múrinn og ætíaði að ná
því marki áður en skórnir færu upp
í hillu. 2006 lék hann í bandarísku
MLS-deildinni með Miami og skor-
aði 18 mörk í 23 leikjum. Eftir tíma-
bilið í Bandaríkjunum hélt hann leit
sinni áfram við 1000 marka múrinn
og hélt á vit ævintýranna í Ástral-
íu. Þar potaði hann inn einu marki í
fjórum leikjum en hélt aftur heim og
viðkomustaðurinn var að sjáifsögðu
Vasco.
Markinu náð
20. maí 2007 skoraði hann sitt
1000. mark á ferlinum. Vasco fékk
víti gegn Sport Recife og skoraði
Romario úr vítinu. Allt varð geggjað
á vellinum, blaðamenn þustu inná
völlinn, áhorfendur grétu og Rom-
ario fékk að eiga boltann. 20 mín-
útur liðu þangað til ró var kominn
á völlinn þannig að hægt væri að
halda leik áfram.
Fjórða desember í fýrra fannst
efnið Finasteride í Romario sem er á
bannlista FIFA. Romario var settur í
bann, þó að hann hefði sagt að lyfið
væri gegn skallamyndun. Eitthvað
sem FIFA tók ekki góð og gild rök.
Það var svo á þriðjudag sem Rom-
ario tilkynnti að hann væri hættur.
Löngunin og þráin að skora mörk
væri einfaldlega ekki til lengur.
Skórnir upp íhillu
en afskiptin ekki
Johan Cruyff, sem fékk Romario
til Barcelona, kallaði hann meist-
ara teigsins en flest mörk Romario
voru skoruð innan teigs. Maradona
sagði að Romario væri alltaf fyrsti
framherjinn sem hann myndi velja
ef hann ætti að velja besta lið allra
tíma. Án þess að hika eða blikka
auga.
Romario er þó ekld hættur af-
skiptum af fótbolta. Hann á að
hjálpa Brössum að halda HM árið
2014 og er kominn í skipulagsmálin
þar á bæ. Enn á eftir að leika kveðju-
leik fyrir þennan aldna meistara.
Með hverjum og hvaða liði hefur
hann hins vegar ekki enn ákveðið.