Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.2008, Blaðsíða 62
62 FÖSTUDAGUR 18. APRlL 2008
Helgarblað DV
Tónlistarakademía DV segir:
Hlustaðu á þessa!
Consolers of the Lonely-The Raconteurs
Dig, Lazarus Dig!!! - Nick Cave
Last Night- Moby
The Odd Couple - Gnarls Barkley
MidnightOrgan Fight- Frightened Rabbit
Þær eru nánast óteljandi
margar tónlistarhátíð-
arnar sem haldnar eru
árlega um heim allan.
Hér hafa hins vegar
verið teknar saman
nokkrar af athyglisverð-
ustu tónlistarhátíðum í
Evrópu í sumar en at-
hygli vekur hversu
mikið af hljómsveitum
kemur saman á nýjan
leik í ár og dreifa sér á
tónlistarhátíðir í sumar.
HRÓARSKELDA
Hróarskelduhátíðina þarf vart að kynna fyrir
Islendingum en árlega flykkist fjöldinn allur
af Islendingum á hátíðina. Hróarskelduhátíð-
in fer fram 3. til ð.júlí næstkomandi og er
iðulega uppselt á hátíðina svo nú fer hver að
verða síðastur að tryggja sér miða. Þær
hljómsveitir sem helst ber að nefna á
Hróarskeldu í ár eru: Slayer.The Chemical
Brothers, Neil Young, Jay-Z, My Bloody
Valentine, Radiohead, Band Of Horses, Cat
Power, Gnarls Barkley, Kings of Leon, Gossip,
José Gonzales og The Street. Auk að
sjálfsögðu Mugisons og Bloodgroup.
Opinber heimasíða hátíðarinnar er
roskildefestival.dk.
HULTSFRED
Um miðjan júní ár hvert iðar bærinn
Hultsfred í Svíþjóð af lífl enda fer þar fram
stærsta tónlistarhátíð Svíþjóðar. I ár er
hátíðin haldinfrá 12.til lé.júniog eraðfinna
þar hljómsveitiraf öllu tagi. Meðal þekktustu
hljómsveitanna á hátíðinni I árer Rage
Against the Machine.The Hives, Jimmy eat
world, Linkin Park, RufusWainwright og
Babyshambles. Opinber heimasíða
hátíðarinnar er rockparty.se.
SÓNAR-HÁTÍÐIN
Sónar er þriggja daga árleg tónlistar- og
margmiðlunarlistahátíð haldin í Barcelona á
Spáni.Tónlist er aðaláhersla hátíðarinnar en
einnig er ríkulegt framboð af list af öllu tagi á
hátíðinni. Hátíðin stendur yfir í þrjá daga og
þrjár nætur og skiptast viðburðirnir niður í
Sónar By Day og Sónar By Night. í ár er
hátíðin haldin frá 19. til 21 .júní. Árlega eru
um áttatíu þúsund gestir á hátíðinni og
miðar seljast hratt. Af helstu nöfnunum sem
spila á Sónar í ár ber að nefna: Goldfrapp,
Miss Kittin and the Hackers, Róisín Murphy,
M.l A, Hercules and Love Affair og Justice.
Heimasíða Sónar er sonar.es. Við mælum
>\ k
^ '4*m
með því að fólk kíki á heimasíöuna þar sem
forslðan er einstaklega áhugaverð.
BENICASSIM
FIB eða Festival Intemacional de
Benicássim er í daglegu tali kölluð
Benicassim-hátíðin en hún hefur verið
haldin árlega í samnefndum bæ á Spáni
frá árinu 1995. Dýrkendur indí-tónlist-
ar hafa undnafarið flykkst á hátíðina en
í ár virðast vinsælar poppsveitir ryðja
sér rúms á hátíðinni. Hátíðin er haldin
17. til 20. júlí og leggja skipuleggjend-
ur hátíðarinnar einnig mikla áherslu á
stuttmyndir, leikhús, dans, tísku og list
svo engum ætti að leiðast á hátíðinni.
Stærstu nöfnin í ár em: Leonard Cohen,
My Bloody Valentine, Sigur Rós, Mika,
Gnarls Barkley, The Raconteurs, Sioux-
sie, Babyshambles, Róisín Murphy og
Justíce. Heimasíða hátíðarinnar er: fi-
berfib.com.
V FESTIVAL
V Festíval er árleg tónlistarhátíð
haldin í Englandi en nafitíð kemur frá
fyrstu hátíðinni sem haldin var árið
1996 og kallaðist V96. Núna heitir há-
tíðin einfaldlega V Festival en Virg-
in-fyrirtækið er helstí styrktaraðili há-
tíðarinnar. Hugmyndin að hátíðinni
vaknaði hjá Jarvis Cocker, forsprakka
Pulp, árið 1995 þegar hann sagðist vera
til í að spila á útitónleikum í tvo daga í
röð. í ár fer hátíðin fram 16. og 17. ág-
úst og em öll stærstu nöfrtín í popp og
roklcgeiranum bókuð á hátíðina í ár.
Meðal stærstu sveitanna sem spila á V
Festival 2008 em: Muse, Stereophonics,
Prodigy, Sugababes, The Verve, Kings of
Leon, Lenny Kravitz, Amy Winehouse
og Travis. Enn á eftír að kynna sextíu at-
riði í viðbót. Heimasíða hátíðarinnar er
vfestival.com.
GLASTONBURY
Glastonbury-hátíðin er stærsta
tónlistar- og nútímalistahátíð í heim-
inum. Hátíðin fer fram í skammt frá
samnefndum bæ á Suður-Englandi og
er þekktust fyrir frábært úrval af vin-
sælustu hljómsveitum samtímans en
auk þess er þar að finna skemmtiatriði
af ýmsum öðrum toga. Svo sem dans,
uppistand, leikrit, sirkus, kabarett og
miklu fleira. í fýrra vom hundrað sjö-
tíu og sjö þúsund gestir sem mættu
á hátíðina. I ár fer hátíðin fram 27. til
29.júm og em stærstu nöfrtín í ár með-
al annars: Jay-Z, Kings Of Leon, The
Verve, Neil Diamond, British Sea Power,
Leonard Cohen og Solomon Burke.
koma fram á hátíðinni í ár og eiga sífellt
fleiri eftir að bætast við. Af þeim sem
þegar hafa verið staðfestir á Hip Hop
Kemp ber helst að nefna The Roots og
Atmosphere ásamt Brother Ali.
PRIMAVERA SOUND
Primavera Sound-hátíðin er hald-
in árlega í Barcelona á þeim tíma sem
vorið er að líða undir lok og sumarið að
ganga í garð. 1 ár er hátíðin haldin frá
29. til 31.maí. Markmið hátíðarhaldara
READING OGLEEDS
Reading- og Leeds-hátíðimar em
samtvinnaðar tónlistarhátíðir sem fara
einmitt ffarn í Reading og Leeds á Eng-
landi. Reading-hátíðin er elsta popp-
tónlistarhátíð Evrópu en hún var fýrst
haldinárið 1971.Árið 1999varsvofýrsta
Leeds-hátíðin haldin og em yfirleitt
sömu hljómsveitir á báðum hátíðum
auk einnar til tveggja undantekninga. I
dag má heyra allar tegundir tónlistar á
hátíðinni allt fr á poppi, pörtíd, indí tón-
list til metal-tónlistar. í ár fer hátíðin
ffarn frá 22. til 24. ágúst og em stærstu
nöfftín sem tilkynnt hafa verið hing-
að til: Rage Against the Machine,
Metallica, The Killers, Queens of the
Stone Age, Slipknot, Tenacious D og
Manic Street Preachers.
HIPHOPKEMP
Hip hop-hátíð-
in Hip hop Kemp er
ein stærsta sinnar
tegundaríEvrópu
og er haldin ár-
lega í Tékklandi.
Á hátíðinni spila
iðulega stærstu
ogferskustutón-
listarmennimir
innan hip hop-
geirans en há-
tíðin fer fram
22. til 24. ágúst.
Það em því ein-
ungis nokkurnöfn
komin á listann yfir
þá tónlistarmenn sem
er að koma á framfæri ungum og upp-
rennandi tónlistarmönnum í bland við
þelcktari og stærri Wj ómsveitir sem hafa
haft áhrif á tónlistarsköpun nútímans.
Á hátíðinrtí í ár er mikið af indí-rokk-
hljómsveitum auk goðsagnakenndra
hljómsveita sem sumar hverjar hafa
ekki spilað saman í áratug. Stærstu
nöfitín í þetta skiptíð eru meðal ann-
ars Portíshead, Public Enemy, The Son-
ics, Radio Dept., Hndersticks, The Go!
Team, Deco og Dinosaur Jr. Nánari upp-
lýsingar um hátíðina er að finna á
DOWNLOAD FESTIVAL
Rokkhátíðin Down-
load Festíval er þriggja daga
tónlistarhátíð sem haldin
er árlega í Donning-
ton Park á Englandi.
Hátíðin er alvöm-
rokkhátíð eins og
þær gerast best-
ar en í ár stendur
frá 13.
15. júm'. Hátíð-
in í ár er sko alls ekkert
slor en stærstu nöfn-
in í ár em meðal ann-
ars: Kiss, Judas Priest,
Motorhead, Kid Rock,
Incubus, Ofispring,
Lostprophets, Jimmy
Eat World og Bullet For
My Valentine. Nánari upplýsingar er að
finna á heimasíðunni downloadfesti-
val.co.uk.
TINTHEPARK
T in the Park er ein stærsta tónlist-
arhátíð í heimi og hefúr verið haldin
árlega í Skotíandi ffá árinu 1994. T in
the Park-hátíðin er haldin 11. til 13.júlí
í ár. Á hátíðinni mætast alls kyns tón-
listarstefnur og er aðaláherslan á há-
tíðinni að safna saman öllum þekkt-
ustu nöfnunum í tónlistarheiminum
fýrr og síðar. Það er því ansi strembið
að telja upp hápunkta hátíðarinnar í
ár þar sem nánast allir sem koma fram
em fr ekar vel þekktir og vinsælir. Með-
al þeirra sveita sem vert er að nefna em
samt The Prodigy, Rage Against the
Machine, Interpol, Ian Brown, Aphex
Twin, The Verve og Amy Winehouse.
Nánari upplýsingar á heimasíðunni
tinthepark.com.
EMMABODA
Emmaboda er tónlistarhátíð í
minni kantinum og er haldin árlega
í Svíþjóð. Þar spilar þó fjöldi athygl-
isverðra sveita í ár en hátíðin fer fram
um verslunarmannahelgina 31. júh' til
2. ágúst svo við mælum frekar með því
að fólk skelli sér til Svíþjóðar heldur en
á Þjóðhátíð til tilbreytingar. Athyglis-
verð tónlistaratriði sem nú þegar hafa
verið bókuð á hátíðina em meðal ann-
ars Soko, Whitest Boy Alive og Justice
en þó nokkrar sveitir eiga enn eftir að
bætast á listann.