Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.2008, Blaðsíða 41
PV Helgarblaö
FÖSTUDAGUR 18. APR(L 2008 11
.siPt
HUGSJÓNAMAÐUR
Erlingur Jónsson vinnur
ötult forvarnastarf á
Suðurnesjum og víðar. Það
var hans eigin fíkn sem
dreif hann til starfsins.
TEKKLISTIFYRIR FORELDRA
út að ég gæti ekki tekið þátt í hans
h'fi. Ég hefði nóg með mig. f kjölfar-
ið breyttist samskiptamunstur okk-
ar. Þau vilja nefnilega reglu þessir
krakkar. Þau þrá fjölskylduna sína."
Það hefur greinilega skipt sköpum í
lífi þessarar íjölskyldu að fjölskyldu-
faðirinn hafi leitað sér hjálpar. Þegar
blaðamaður kvaddi Erling var hann
á leið í golfferð til útlanda ásamt
syni sínum. Tilefni ferðarinnar er að
fagna því að sonurinn hefur nú verið
edrú í eitt ár.
Kynning og fræðsla
á sumardaginn fyrsta
Á sumardaginn fyrsta verður for-
vamafélagið Lundur með kynn-
ingu og fræðslu í íþróttaakademí-
unni í Reykjanesbæ. Þar verða
ýmsar uppákomur, söngur og mynd-
listarsýning. Erlingur og hópurinn
sem vinnur með honum ætla að vera
með stutta kynningu á starfsemi fé-
lagsins og segja sína sögu. „Ég er bú-
inn að bjóða öllum þingmönnum
Suðurlandskjördæmis, öllum bæjar-
stjórum Suðurnesja og Hafnarfjarð-
ar. Og sjálfum forsetanum." Þeim
sem vilja kynna sér starf Lundar er
bent á heimasíðuna lundur.net.
berglind@dv.is
DAGLEGT HÁTTALAG
■ Fáskiptinn og dvelur mikið einn f herberginu sínu.
■ Tekur lítinn þátt í samskiptum á heimilinu.
■ Óábyrgur og kærulaus um heimilisverk og almennar
umgengnisvenjur.
■ Virðist ekki bera neina virðingu fyrir útvistarreglum
og tilkynnlngaskyldu.
■ Getur ekki gefið greinargóð svör við því hvar hann
hefur dvalið og skýrt tfmasetningar.
■ Hefur tilhneigingu til að vera óheiðarlegur, virðist
standa f einhverju leynimakki, fer ítrekaö á bak viö
foreldrana, skrökvar og á erfitt með að standa við
loforð.
■ Breyttar svefn- og matarvenjur.
GEÐSLAG OG LUNDARFAR
■ Skyndilegar persónuleikabreytingar sem foreldrar
taka eftir.
■ Miklar skapsveiflur; gjarnan bráðlyndi. Dæmi um
þetta er að unglingurinn æsir sig óvænt og yfirdrifið
þegar rætt er við hann um eitthvað sem varðar hann
sjálfan, skyldur hans eða framkomu við aðra.
■ Lundarfarið einkennist yfir iengri tímabil af depurð
eða þunglyndi.
BREYTT OG TRUFLUÐ HUGSUN
■ Minnisleysi.
■ Einbeitingarskortur.
■ Skilningssljór.
■ Brenglað tfmaskyn.
■ Erfiðleikar að halda þræði f samræöum.
■ Glápir stundum út f loftið eöa starir og virðist annars
hugarog utangátta.
FÉLAGSLEGAR VÍSBENDINGAR
■ Nýir vinir koma til sem eru mjög ólíkir þeim sem
unglingurinn hefur hingað til hallað sér að.
■ Er í félagahópi þar sem áberandi eru krakkar sem
almannarómur segir að eigi f vandamálum með
áfengi eða vímuefni, gangi illa f skóla og komi frá
„vandræðaheimilum".
■ Félagsskapurinn er breytilegur eöa breytingar á
kunningsskap virðast tfðar.
■ Eignast„ósýnilega vini' sem koma aldrei á heimilið,
foreldrar hafa aldrei séö og unglingurinn forðast að
veita um þá upplýsingar.
■ Hættir að sinna fýrri áhugamálum.
■ Undarleg áhugamál sem koma foreldrum á óvart.
■ Dæmi um þetta er skyndilegur áhugi á myrkri
dulspeki (jafnvel Satan-fræðum), grunn og andfélags-
leg hugmyndafræði (anarkistaklæðum, Hltlers-
aðdáun, alls konar merkl og tákn sem bera vott um
vfmuefnadýrkun, aðdáun og dýrkun popphetja sem
farist hafa f vfmuefnahremmingum.
■ Afskipti lögreglu.
BEIN UMMERKI UM VÍMUEFNAHEIMINN
■ Vfmuefni finnast f herbergi, hirslum eða fatnaði
unglingsins.
■ (lát, tæki og tól tengd áfengis- og vfmuefnaneyslu
finnast í fórum unglingsins.
■ Peningar, tékkhefti, skartgripir, seljanlegar bækur
eða annað verðmæti hverfa af heimilinu.
■ Ýmsir hlutir I umsjá ungllngsins án eðlilegra
skýringa: Fatnaður, geisladiskar, hljómtæki, farsfmi og
jafnvel hlutir sem hann hefur engin not fyrir (s.s.
Ijósmyndavélar eða verkfæri). Þetta eru vísbendingar
um óeðlileg fjárráö og/eða stolna muni.
BREYTINGAR í SKÓLANUM
■ Lækkandi einkunnir f skóla og stigversnandi
frammistaða.
■ Kemur oft of seint, hverfur úr skólanum og skrópar.
■ Sýnir neikvætt viðhorf til náms og skóla.
■ Einangrast f bekknum.
■ Dregur sig út úr almennu félagslífi í skólanum.
LlKAMLEGAR vísbending ar
■ Fölt andlit.
■ Rauðeygður og voteygur.
■ Útþandir augasteinar.
■ Þvalur f lófunum.
■ Óskýr (máli.
■ Ýmsar hreyfingar sem viröast ósjálfráðar og benda
til spennu.
■ Reikandi gangur.
■ Hirðuleysi um hreínlæti og næringu.
■ Tapar holdum og iéttlst.
■ Endurteknar og óljósar líkamlegar kvartanir, t.d. um
höfuðverki, svefnleysi, slappleika, syfju, kviðarhols-
verki o.fl.
HEIMILD: SÁÁ; SAAJS