Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.2008, Side 27
PV Sviðsljós
MIÐVIKUDAGUR 30. APRÍL 2008 27
Cameron Diaz ætlar að bjóða íjölskyld-
unni á einkafrumsýningu á nýjustu
mynd sinni. Hún telur að þau þurfi öll
að hlæja saman til að komast yfir fráfall
föður hennar.
Cameron Diaz ætlar nú að bjóða
fjölskyldunni á einkasýningu á
nýjusm kvikmynd sinni, What
Happens in Vegas, því hún telur
að þau þurfl öll á góðum hlátri að
halda eftir skyndilegt fráfall föð-
ur hennar fyrir skömmu. Emilio
Diaz varð bráðkvaddur fyrir viku
síðan einungis flmmtíu og átta ára
að aldri eftir að hafa fengið slæma
pest.
Leikkonan hætti við öll komandi
verkefni og hefur meðal annars
sagst ætla að taka sér ársfrí ffá kvik-
myndabransanum. Hún heldur því
hins vegar fram að besta lækningin
við sorg sé gott hláturskast og von-
ast til þess að grínmyndin fái þau
öll til að hlæja saman á ný.
í tilkynningu sem Diaz sendi
sjálf á fjölmiðla í Bandaríkjunum
segir hún: „Um helgina ætla ég
að vera með sýningu á myndinni
minni, What Happens in Vegas,
eingöngu fyrir fjölskyldu mína.
Þetta var ákvörðun sem ég tók í
samráði við framleiðendurna því ég
tel að við þurfum öll á góðum hlátri
að halda. Þegar allt kemur til alls
er það jú ástæðan fyrir því að við
gerum myndir eins og þessa. Svo
fólk geti aðeins gleymt áhyggjum
sínum og hlegið saman."
Robert Downey Jr.
Hefur marga fjöruna sopið.
KVIKMYND
UM FÍKNINA
Robert Downey Jr.
segir aö kvikmyndin
Less than Zero hafi
komið honum á kaf í
fikniefnaneyslu.
Leikarinn Robert Downey Jr. segir að leikur hans í
kvikmyndinni Less than Zero frá árinu 1987 hafi verið
kveikjan að fíkniefnaneyslu hans. Leikarinn segir að fyrir
myndina hafi hann aðeins notað eiturlyf einstaka sinn-
um, en eftir kvikmyndina, þar sem hann lék kókaínfíkil,
hafi vandamál hans versnað. Leikarinn átti við gríðarlegt
fíkniefnavandamál að etja og var settur bæði í fangelsi
og í meðferð, en ekkert gekk. „Alveg þar til ég lék í þess-
ari mynd tók ég mín eiturlyf eftir vinnu og um helgar.
Hlutverkið sem ég lék var eins og að horfa inn í framtíð-
ina. Ég varð svo sjálfur að ýktari útgáfu af persónunni
sem ég lék," segir leikarinn, sem hefur nú snúið baki við
eiturlyfjum. Hann hefur þó fundið sér nýlyf til að ánetj-
ast, en það eru vítamín, bætiefni og fæðubótarefni. En í
undirbúningi kvikmyndarinnar Iron Man þurfti Downey
Jr. að koma sér í gott form. „Ég byrjaði meðal annars að
nota kreatín frá Svíþjóð, löglegt efni og maður tútnar
ekki of mikið út af því," segir leikarinn að lokum.
■
Stofnaður 1952
Listdansskóli
Islands WL
V
Grunnskóladeild nemar fæddir 1999:
Laugardaginn 3. maí, kl 15:00
Eldri nemendur mega mæta í prufutíma
25. ógúst - 15. september 2008
Forskóli nemar fæddir 2000 - 2003
Skróning hefst 1. september
Staður:
Engjateigur 1
105 Reykjavík
Nónari upplýsingar:
www.listdans.is
588 91 88