Glóðafeykir - 01.12.1969, Page 5
GLÓÐAFEYKIR
5
er haldinn var 15. ágúst 1884 „af nokkrum mönnum í Húnavatns-
og Skagafjarðarsýslum, til þess að koma sér saman um að eignast
hús á Sauðárkróki til þess að geyma í vörur, er pantaðar kynnu
að verða úr þessum sýslum“, eins
og segir í fundargerð. Var sam-
þykkt að safna hlutafé til þess
að koma upp húsinu, er vera
skyldi 12 álna langt og 10 álna
breitt, og áætlað kostnaðarverð
1500 krónur. Hálfum mánuði
síðar, þ. e. 1. september, var svo
haldinn á Fjalli í Sæmundarhlíð
stofnfundur „Vörupöntunarfé-
lags Húnvetninga og Skagfirð-
inga“, er svo var nefnt. Sóttu
fundinn fulltrúar úr öllum
hreppum Skagafjarðarsýslu nema
Fells- og Holtshreppum, svo og
úr 4 hreppum í Húnavatnssýslu.
Með Vörupöntunarfélaginu
hófst þriðji áfanginn í skipulögð- Gisli Magnússon i Eyhildárholti.
um verzlunarsamtökum Skag-
firðinga. Félagið starfaði til 1888. Ári síðar, 1889, var svo Kaupfélag
Skagfirðinga stofnað.
Kaupfélag Skagfirðinga er sumarmálabarn. Húnaflóafélagið, Graf-
arósfélagið, Vörupöntunarfélagið, — öll voru þessi félög eins konar
vorboðar. Vorið sjálft kom með stofnun K. S. En eins og því er
háttað um sjálft náttúrufarið, að naumast líður svo nokkurt vor, að
eigi komi kuldar og hret, svo var það einnig framan af ævi K. S. Þar
gerði hret á græna jörð, jafnvel ekki hvað sízt eftir að félagið hafði
slitið sjálfum barnsskónum, og sum svo hörð, að við sjálft lá, að
riðu félagiiiu að fullu. Um það bil, sem félagið hafði náð tvítugs-
aldri og oft vegnað vel, eigi hvað sízt á barnsárunum, kom til tals,
jafnvel oftar en einu sinni, að leggja það niður. Af því varð þó ekki,
sem og betur fór.
Nálega tvo áratugi var K. S. hreint pöntunarfélag. Vörur voru
pantaðar tvisvar á ári. Þegar svo vöruskipið kom, var sendur hrað-
boði um allar jarðir. Menn dreif að úr öllum áttum; voru margir
saman með fjölda áburðarhesta. Þessi pöntunarviðskipti voru félags-