Glóðafeykir - 01.12.1969, Page 55
GLÓÐAFEYKIR
00
Á ofangreint verð verður borguð viðbót vegna grárra dilkagæra,
þannig að á I. fl. verður greitt kr. 25,00 pr. gærukíló og á II. fl. 10,00
kr. á gærukílóið.
Á s.l. hausti var lagt í nokkrar framkvæmdir í slátur- og frystihús-
inu. Skipt var um miðstöðvarketil og liann stækkaður um meira en
helming frá því senr var. Unnið var töluvert við vatnslagnir í hús-
inu o. fl. EinnÍ5 hefur farið fram ragriger viða:erð á rafkerfi húss-
ins og það endurbætt eftir kröfum öryggiseftirlitsins.
Vatnsskortur hefur oftast verið tilfinnanlegur í slátur- og frysti-
húsinu, og var því af hálfu Sauðárkróksbæjar lögð ný vatnslögn að
húsinu, sem hefur miklu meiri flutningsa,etu en gamla lögnin.
o o o o
Stórgripaslátrun.
Eins og venjulega var slátrað stórgripum strax að aflokinni sauð-
fjárslátrun. Að þessu sinni var lógað um 330 hrossum og 170 naut-
gripum.
Ullin.
Eins og öllum er kunnugt um, þá hefur mikil verðsveifla orðið á
ullinni á s.l. árum. \rerðið var komið niður í algert lágmark 1968,
en þá var gert ráð fyrir að verð á óþveginni ull til bænda yrði kr.
10,00 pr. kg, en segja má að það verð liafi vart borgað vinnukostnað-
inn við rúninginn.
Sem betur fer hefur verðið á þessari vöru farið hækkandi á erlend-
um mörkuðum, og þegar ullarverðið sl. ár hjá Kaupfélagi Skagfirð-
inga er gert upp, kemur í ljós, að lokaverð á þveginni ull er sem hér
greinir:
Flokkur Kr. pr. kg
Hvít I. flokkur 50,00
Hvít II. flokkur 45,00
Hvít III. flokkur 40,00
Svört og mórauð 65,00
40,00
Mislit IV. flokkur 24,00
Mislit V. flokkur 19,00
HRT.