Glóðafeykir - 01.12.1969, Blaðsíða 70
70
GLÓÐAFEYKIR
Ingólfur Andrésson, bifvélavirki á Sauðárkróki, lézt þ. 26. dag
aprílmán. 1957, aðeins hálffimmtugur að aldri, fæddur í Reykjavík
26. apríl 1912. Voru foreldrar hans Andrés Nielsen, vopnfirzkur mað-
ur, og kona hans Guðný Jósepsdóttir frá
Selfossi. Annar sonur þeirra hjóna var Al-
freð, hinn landskunni gamanleikari.
Að loknu barnaskólanámi gekk Ingólfur
í Iðnskólann í Reykjavík og lauk þaðan
prófi. Bar snemma á því, að höndin væri
hög. Lærði hann vélvirkjun og varð galdra-
maður í þeirri grein, enda hvort tveggja í
senn, hugkvæmur og frábærlega listfengur.
Stundaði hann þau störf í Reykjavík að
námi loknu, m. a. hjá Landsíma Islands.
Tvítugur að aldri batzt Ingólfur eigin-
konu sinni, er síðar varð, Ingibjörgu Ágústs-
dóttur, ættaðri af Héraði austur, ágætri konu. Árið 1986 fluttust þau
til Sauðárkróks og áttu þar heimili upp þaðan. Reisti Ingólfur bif-
reiðaverkstæði og rak síðan, þótt lieilsuleysi hamlaði störfum hans
æ meir. Einkabarn þeirra hjóna er Erna, húsfr. á Sauðárkróki.
Ingólfur Andrésson var meðalmaður á vöxt, andlitsfríður, fölleit-
ur, svipurinn hýr og glaðlegur, augun geislandi og glettnisleg. Hann
var vel gerður maður um marga hluti, greindur, glaðsinna, hlýr í
viðmóti, söngelskur, listhneigður. Hann var svo óvenjulega vel verki
farinn, að veruleg fötlun vegna slyss á hendi og síðar lömunar í fæti.
var honum til furðulega lítils baga í starfi. En meinleg örlög ollu
því, að ágætir hæfileikar nýttust honum stórum verr en efni stóðu til.
Helgi Guðmundsson, sjómaður á Sauðár-
króki, lézt 26. maí 1957. Fæddur var hann á
Meyjarlandi á Reykjaströnd 18. des. 1896,
sonur Guðmundar, síðar sjómanns á Sauðár-
króki, Sigurðssonar bónda á Kjartansstöð-
um, Jónassonar, og kontt hans Sigríðar Ás-
mundsdóttur, síðast bónda í Pyttagerði, Þor-
valdssonar, og konu hans Solveigar Jónas-
dóttur.
Heloi fluttist barn að aldri með foreldr-
o
um sínum og systkinum til Sauðárkróks og
Helgi Guðrmmdsson, átti þar heima alla ævi síðan að undanskild-
Ingólfur Andrésson.