Glóðafeykir - 01.11.1971, Page 4
4
GLÓÐAFEYKIR
Aðalfundir M. S. og K. S.
i.
Ársfundur Mjólkursamlags Skagfirðinga var haldinn á Sauðár-
króki 16. apríl sl. Var fundurinn fjölsóttur að vanda. Formaður fé-
lagssjórnar, Tobías Sigurjónsson, setti fundinn og kvaddi til fundar-
stjóra Gísla Magnússon. Fundarritarar voru Haukur Hafstað og Jón
Guðmundsson.
Samlagsstjóri, Sólberg Þorsteinsson, flutti mjög skilmerkilega og
greinagóða skýrslu um rekstur samlagsins á liðnu ári, las upp reikn-
inga þess og ræddi horfur framundan. Verða hér tekin upp örfá
atriði úr yfirliti hans.
Innvegin mjólk á árinu var 7.215.979 kg (7.005.805 ltr.), og hafði
aukizt frá árinu 1969 um 600.665 kg eða 9,79%, enda þótt innleggj-
endum fækkaði um 9 fvoru 322 á árinu). Meðalfita var 3,77% og
hafði hækkað um 0,18% frá árinu áður. Enn hefur mjólkuraukning
orðið það sem af er þessu ári, og nemur hún 15% á þrem fyrstu mán-
uðum ársins, miðað við sömu mánuði 1970. Meðalútborgun til
framleiðenda var um 74,3% af grundvallarverði. Meðalflntnings-
gjald að samlagsvegg var 64 aurar tæpir á kg.
Neyzlumjólkursala nam aðeins 11,4% af innvegnu mjólkurmagni.
Fór því meginhluti mjólkurinnar í vinnslu. Var smjörframleiðslan
138.581 kg, ostar 45% 259.158 kg, ostar 30% 116.719 kg, bræddir
ostar 3.313 kg og kasein 37.575 kg.
Iskyggilega miklar smjörbirgðir voru um áramótin síðustu, eða
um 116 smál. Birgðir annarra mjólkurvara höfðu ekki aukizt að
ráði.
Heildarkostnaður við rekstur samlagsins varð á árinu 1970 350
aurar rúml. á innvegið kg mjólkur. Er það 41 eyri tæpum hærri
kostnaður en 1969.
A árinu 1970 var bændum greitt fyrir innvegna mjólk svo og upp-
bætur á mjólkurinnlegg 1969 samtals 99,3 millj. kr. Eftirstöðvar
mjólkurverðs til ráðstöfunar á aðalfundi 26 millj. kr. tæpar. Endan-
legt verð kr. 13,57 á lítra, eða 26 aurum hærra en grundvallarverð