Glóðafeykir - 01.11.1971, Síða 5
GLOÐAFEYKIR
5
(staðargrundv.), sem er kr. 13,31 á lítra. Samþ. að leggja í samlags-
stofnsjóð 7 aura pr. kg.
Samlagsstjóri skýrði frá því að ráðinn hefði verið, í félagi við
mjólkursamlagið á Blönduósi, mjólkurfræðingur, er hafi með hönd-
um eftirlit með mjólkurframleiðslunni. Hefur hann búið sig sér-
staklega undir það starf.
Egill Bjarnason, ráðunautur, flutti á fundinum mjög athyglisvert
erindi um nautgriparækt og mjólkurframleiðslu í héraðinu. Hefur
Egill góðfúslega heitið því, að láta Glóðafeyki fá útdrátt úr erindinu.
II.
Aðalfundur Kaupfélags Skagfirðinga fyrir árið 1970 var haldinn í
samkomuhúsinu Bifröst á Sauðárkróki dagana 27. og 28. apríl sl.
Fundinn sátu 65 fulltrúar og deildarstjórar 13 félagsdeilda, svo og
kaupfélagsstjóri og fulltrúi hans, framkvæmdastjóri Fiskiðjunnar
h.f., stjórnarnefndarmenn og varaendurskoðendur, — aðalendur-
skoðendur voru forfallaðir sakir veikinda. Fundinn sótti og allmargt
gesta, einkum seinni fundardaginn. Fundarstjóri var Gísli Magnús-
son í Eyhildarholti, en fundarritarar Egill Bjarnason á Sauðárkróki
og Sigurður Sigurðsson, Brúnastöðum.
Fundarstjóri minntist 23ja félagsmanna, karla og kvenna, er látizt
höfðu frá því er síðasti aðalfundur var haldinn (4. og 5. maí 1970),
las upp nöfn þeirra og greindi aldur. Risu fundarmenn úr sætum í
virðingarskyni við minningu hinna látnu félaga.
Formaður kaupfélagsins, Tobías Sigurjónsson í Geldingaholti,
flutti skýrslu félagsstjórnar. Gat hann þess, að haldnir hefðu verið
11 stjórnarfundir á árinu. Hlutafé í Útgerðarfél. Skagf. var hækkað
um 800 þús. kr. Komið upp aðstöðu til móttöku á ósekkjuðu fóður-
korni ogafgreiðslu á því, svo og til kornmölunar. Keypt í þessu skyni
verksmiðjuhús á Eyrinni, sem rúmar 1000 smál. Keypt bifreið til
flutninga á lausu fóðri. Fleira mætti nefna, ef rúm leyfði.
Sveinn Guðmundsson, kaupfélagsstjóri, lagði fram reikniuga fé-
lagsins, skýrði þá og greindi í mjög ýtarlegri ræðu frá rekstri og af-
komu félagsins á liðnu ári svo og framtíðarhorfum. Heildarsala
verzlana ("8 sölubúðir) og þjónustufyrirtækja nam á árinu 1970 219,9
inillj. kr. tæpum, og hafði hækkað um 35,41% frá 1969. Búvörusala
félagsins nam á árinu 200,6 millj. kr. rösklega, þar af mjólkurvörur