Glóðafeykir - 01.11.1971, Qupperneq 21
GLÓÐAFEYKIR
21
mosann. Þess vegna sækir það í kröfs hestanna. Allt þetta fé hefur
fjögur til átta stór og snúin horn, nema hvað eitt stendur venjulega
beint fram úr enninu. Hér birtist vísdómur forsjónarinnar, því að
þessa horns þarfnast féð til þess að verja sig ásókn stórra ránfugla.
Ernir eru svo grimmir, að þeir ráðast á fjögurra til fimm ára börn,
þegar þeir hafa komizt upp á það að éta mannakjöt af sjóreknum
líkum.
íslenzka smjörið er fjarska hárugt og verður grænt og svart, af því
að það er ekki saltað.
Á íslandi eru norðurljós nú tíðari en áður var, en þau myndast
með þeim hætti, að eldur kviknar í brennisteinsgufum, sem stíga
upp af eldfjöllunum. íslendingar segja fyrir veður eftir lit og hreyf-
ingum þessara norðurljósa.
Við hrævarelda er hið huglausa og fávísa fólk á Islandi aftur á
móti ofurhrætt. Þegar það verður vart við slík fyrirbæri, hefur það
skjót handtök og lokar dyrum híbýla sinna, svo að hrævareldurinn
nái ekki að sameinast arineldinum, því að þá gæti kviknað í kot-
unum.
Xauðsyn brýtur lög.
Fyrir nokkru gekk á íslandi mannskæð bólusótt, og fólkið hrundi
niður. \regna mannfæðarinnar, sem þetta hafði 1 för með sér, var
það ráð tekið að leyfa ógiftu kvenfólki að eiga allt að sex börn að
óskertum kvenlegum sóma og jómfrúdómi. Þetta ágæta lagaboð varð
þó að afturkalla fyrr en varði, því að stúlkurnar notuðu réttindin
allt of freklega.
íslenzkum konum verður ekkert um barnsburð. Þær fæða af sér
afkvæmið þjáningarlítið, baða sig á eftir og hlaupa síðan burt. Barn-
ið hafa þær ekki á brjósti nema fáeina daga, og síðan er það sett á
gólfið hjá keri með volgri mysu, og úr því drekkur það með fjöður-
staf að vilja sínum.
Lyndiseinkunnir og venjur.
íslendingar eru svo huglausir, að þeir þola ekki að hleypa skoti úr
byssu, og erlendis sýkjast þeir og deyja af óyndi. Matargerð þeirra er
viðbjóðsleg, því að þeir bragða ekki annað en það, sem úldið er og
skemmt. Brennivín er kjördrykkur þeirra, bæði karla og kvenna, og
oft fara prestarnir drukknir í stólinn, og stundum er allur söfnuður-