Glóðafeykir - 01.11.1971, Page 23

Glóðafeykir - 01.11.1971, Page 23
GLÓÐAFEYKIR 23 Staðið á teignum í fimmtíu og fimm ár Magnús H. Gislason rceðir við Jón Björnsson. Skyldu þeir vera margir ofar moldu, íslendingarnar, sem stundað hafa verzlunarstörf lengur en hann? Mér er það mikið til efs. Tutt- ugu og fjögurra ára gamall hófst hann handa á vettvangi verzlunar- innar, sjötíu og níu ára gamall, eða fyrir einu ári, skrifaði hann síðustu nótuna. Fimmtíu og fimm ára varðstaða. Og þó aldrei unnið fyrir sjálfan sig, alltaf verið annarra þjónn, en rækt það hlutverk með þeim hætti, að trauðla verður betur gert. Og hver er svo maðurinn? Ja, hver annar en hann „Jón hjá Briem“, „Jón í Gránu“. „Jón hjá Briem“ hóf verzlunarstörf hjá Kristni kaupmanni Briem á Sauðárkróki árið 1915 og starfaði þar í 23 ár. Þá réðst hann til Kaupfélags Skagfirðinga og vann þar í 32 ár, lengstum deildarstjóri í Gránu, matvöru- og búsáhaldadeild kaupfélagsins. Þar hefur hann verið vakinn og sofinn öll þessi ár, ávallt jafn traustur og samvizkusamur, ávallt jafn hlýr og háttvís, ætíð reiðubúinn að leysa hvers manns vanda, eftir því sem unnt var. Þess vegna sagði líka Magnús skáld á Yöglum eitt sinn þessi orð, sem menn hafa ekki síðan gleymt: „Ytri-búðin“, — en svo var Grána oft nefnd af því að hún stóð norðar af tveimur búðum kaupfélagsins, en fleiri voru þær ekki um iangt skeið, — „Ytri-búðin, það er bezta búð í heimi“. Við vorum þá að fara heim af kaupfélagsfundi, nokkrir félagar úr Bliinduhlíð. Höfðum að fundi loknum setzt að gleðskap heima hjá Stefáni heitn- um Vagnssyni, — en hús hans á Sauðárkróki rnátti heita eins konar íélagsheimili Blöndhlíðinga, — áttum vörur læstar inni í Ytri-búð, en nú var klukkan orðin tvö að nóttu. Einhver gat þess, að varning- ur okkar kynni e. t. v. að hafa verið látinn út á tröppur Gránu áður en lokað var, og þótti okkur því einsætt að athuga það. En er við komum sunnan götuna stóð Jón úti fyrir húsi sínu, kvaðst hafa búizt t ið að við vildum hafa dót okkar með heim og því talið sjálfsagt að vaka eftir okkur. Og þá var það, sem Magnús á Vöglum gat Ytri- búðinni framangreinda ágætiseinkunn. Hér var þó auðvitað ekki

x

Glóðafeykir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Glóðafeykir
https://timarit.is/publication/1145

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.