Glóðafeykir - 01.11.1971, Síða 27

Glóðafeykir - 01.11.1971, Síða 27
GLÓÐAFEYKIR 27 jón Björnsson i skrifstofu sinni í „Gránu". notum við ýmis önnur störf. En það var ekki álitlegt, jafnvel þa, að hefja búskap með tvær hendur tómar. Og þar kom, að árið 1915, sem var annað ár heimsstyrjaldarinnar fyrri, var ég mjög farinn að hugsa til Ameríkuferðar. Ef til vill hefur það að einhverju leyti staf- að af ævintýraþrá, en jafnframt bjóst ég við, að mér myndi ekki ganga lakar að brjóta mér braut þar en hér heima. En sem ég nú var í þessum Ameríkuhugleiðingum barst mér bréf frá Kristni P. Briem, kaupmanni á Sauðárkróki, þar sem hann falaði mig til starfa við verzlun sína. Það skipti sköpum. Ég lagði alla utanfarardrauma á hilluna og réðst til Briems vorið 1915. — Og þar slóstu ekki tjöldum til einnar nætur? — Nei, raunar ekki. Ég var afgreiðslumaður í verzlun Briems sam- fleytt í 23 ár. — Og kunnir vel við þig?

x

Glóðafeykir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Glóðafeykir
https://timarit.is/publication/1145

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.