Glóðafeykir - 01.11.1971, Side 32
32
GLÓÐAFEYKIR
Úr Leirgerði
FRAMHALD
Á sýslufundi 1945 var kosin þriggja manna nefnd til að atliuga
tilboð frk. Ingibjargar Jóhannsdóttur á Löngumýri, er hún bauð að
gefa 1/9 jörðina Löngumýri ef sýslan vildi reisa þar kvennaskóla.
F.inn nefndarmanna var Jón alþm. á Reynistað. Hann sat fyrri hluta
sýslufundar en fór svo á þing.
Skömmu áður en Jón fór, kallaði hann samnefndarmenn sína á
fund til að semja nefndarálit, og fengu þeir leyfi oddvita til að víkja
af sýslufundi um stund. Þá orti Pétur Hannesson svokallaðar
„Kaupamannavísur":
Héldu þrír í heyskapinn,
hömpuðu dýrum baugum.
Löngumýrarlýðurinn
leit þá hýrum augum.
Ástin býr þar Imbu hjá,
er hún skírust meyja.
Löngumýrarengjum á
eru þrír að heyja.
Nefndin lagði svo fram álit sitt en vildi halda áfram störfum, þar
sem hún hefði ekki fengið svör frá þeim aðiljum öllum, er hún hafði
lagt spurningar fyrir. Taldist hún á ýmsan hátt ekki hafa gert því
verkefni, er henni var falið, full skil. Og enn kvað Pétur:
Konur ýmsu orkað fá,
allir mega vita,
að lönoun flestra lifir á
O
Löngumýrarhita.