Glóðafeykir - 01.11.1971, Side 36
36
GLÓÐAFEYKIR
Upp skal hefja óðarstyrr,
þótt allir séu á verði.
Eg vil enn þá eins og fyrr
ýta við Leirgerði.
Til hennar biðla margir menn
munu á þessum vetri.
Vona ég hún ei sé enn
alveg gefin Pétri.
o o
Næsta vísa sýnir einnig, að Jón Bakkaskáld tekur nú að gerast all-
hræddur um Leirgerði, því að enn kveður hann:
Leirgerður með bros á brá
býður koss í laumi.
Gísla Víðivöllum frá
vaggar í ástardraumi.
Sögðu kunnugir, að ekki mundi hræðsla Jóns einleikin, er hann
tók að bendla Gísla við þessi mál.
Eitt sinn gerðist það, er ritari hafði í byrjun fundar lesið upp
fundargerð frá deginum áður, að stóllinn brast, er ritari ætlaði að
setjast, svo að hann féll því nær á gólfið. Þá kvað Jón á Hofi, sýslu-
nefndarmaður Hofshrepps:
Flestir geta fengið skell —
fór um setin kliður.
Stefán grét, er stóllinn féll,
stöku-meta-smiður.
Með þessum fundi var útrunnið kjörtímabil sýslunefndarmanna.
Létu þá allir taka mynd af sér. Hét sá Jónas, er myndirnar tók, Hall-
grímsson. Var hann listamaður í þeirri grein, en þótti ölkær nokkuð.
Þá orti Gísli í Eyhildarholti og kallaði „Varnaðarorð“: