Glóðafeykir - 01.11.1971, Side 44

Glóðafeykir - 01.11.1971, Side 44
44 GLÓÐAFEYKIR Sigurðar bónda á Vatnsskarði, Bjarnasonar bónda á Sjávarborg, jóns- sonar, og fyrri konu hans Ingibjargar Sölvadóttur hreppstjóra á Skarði. Voru þau hjónin systkinabörn. Það hið sama ár hófu þau húskap í Valadal, bjuggu þar 2 ár og síðan á Geirmundarstöðum til 1925, en það ár lézt Sigurður, hinn 5. ágúst. Síðustu árin allmörg átti Ingibjörg heima á Sauðárkróki, en áður hafði hún lengi verið stoð og stytta tengdasonar síns, Árna J. Hafstað í Vík, eftir að hann missti konu sína og dóttur hennar frá 10 börnum og ungum flestum. Börn þeirra Ingibjargar og Sigurðar voru 5: Ingibjörg, húsfreyja í Vík, Margrét, húsfr. á Hóli í Sæmundarhlíð, Sigurður, bóndi á Geirmundarstöðum, Pétur, söngstjóri og tónskáld á Sauðárkróki og Halldór, sparisjóðsstjóri og söngstj. í Borgarnesi. Eiginmanni sínum og elztu börnunum fjórum varð Ingibjörg á bak að sjá á einum ára tug. Aðeins yngsti sonurinn, Halldór, lifði hana. En einnig hann er nú látinn, síðastur þessa glæsilega systkinahóps. F.n Ingibjörg var þeirrar gerðar, að ekkert var „henni fjær en að láta bugast eða bera harrn sinn á torg.“ Ingibjörg Halldórsdóttir var frekar smávaxin, kvik á fæti, óvenju fríð kona og lagleg til hárrar elli. Hún var hóglynd, geðprúð og glað- vær með fágætum. Þessir miklu skaphafnarkostir, samfara einlægri trú á handleiðslu æðri máttarvalda, léttu henni þungar byrðar og stóra harma. Hana brast aldrei andlegt þrek, þessa margreyndu konu. Hún var góð kona, „sem alla ævi hugsaði meira um aðra en sjálfa sig.“ Guðmundur Jónsson, bæjarpóstur á Sauðárkróki, fyrrum bóndi í Stapa o. v., lézt þ. 13. júlí 1961. Hann var fæddur í Höfðahólum á Skagaströnd 10. júní 1893, sonur jóns bónda þar Jónatanssonar smiðs, Jónatanssonar, og konu hans Kristínar Sigvaldadóttur. Ungur fluttist hann með foreldrum sínum að Vakursstöðum á Hallárdal o° o var þar til 17 ára aldurs, fór þá að Keldulandi á Kjálka til Soffíu systur sinnar og eiginmanns hennar, Gests bónda fónssonar, og mun hafa átt þar heima fram undir tvítugsaldur. Arið 1919 gekk Guðmundur að eiga Ingibjörgu Jónsdóttur bónda á Stekkjarflötum á Kjálka, Guðmundssonar, og konu hans Margrétar Jóhannsdóttur (sjá þátt um Jón í 11. h. Glóðaf. 1970, bls. 66). Það hið sama ár reistu þau bú í Efra-Lýtingsstaðakoti (nú Tunguhlíð) í Tungusveit og bjuggu þar 1 ár, þá í Héraðsdal 1 ár, á Stekkjarflötum 2 ár, í Grundar°erði í Blönduhlíð 1 ár. í Sólheimaoerði í sömu sveit 1 ár, brugðu þá búi, 1925, eftir fárra ára hrakhólabúskap, og fluttu

x

Glóðafeykir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Glóðafeykir
https://timarit.is/publication/1145

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.