Glóðafeykir - 01.11.1971, Blaðsíða 47

Glóðafeykir - 01.11.1971, Blaðsíða 47
GLODAFEYKIR 47 sveit til Einars hreppstjóra jónssonar og konu hans Margrétar Sím- onardóttur og var hjá þeim fram til tvítugsaldurs; eftir það lausa- maður um hríð, m. a. á Uppsölum í Blönduhlíð. Hneigðist á þeim árum nokkuð til ýmissa lausakaupa og varð ekki við hendur fast, unz hann fluttist að Hofstöðum, þar sem hann var upp frá því nær óslitið til æviloka — fyrstu árin vinnumaður, þá í húsmennsku um hríð og loks stórbóndi. Tók hann Hofstaði til ábúðar 1933, keypti hálfa jörðina skömmu síðar og bjó stórbúi til dauðadags. Árið 1922 gekk Stefán að eiga Ingigerði Guðmundsdóttur bónda á Illugastöðum í Flókadal, Jónssonar bónda að Hálsi í sömu sveit o. v., Sigurðssonar, og konu hans Salbjargar Jónsdóttur bónda á Bakka í Holtssókn, Jónssonar, en móðir Salbjargar og kona Jóns á Bakka var Steinunn Finnbogadóttir. Þau hjón, Stefán og Ingigerður, voru samvalin um frábæran dugnað við búsýslu og allar athafnir, gædd hlýrri höfðingslund, greiðasöm og gestrisin svo sem bezt getur orðið. Stefán var einn mesti afreksmaður til allra verka, mikilvirkur og vandvirkur að sama skapi, sláttumaður þvílíkur, að mjög er vafa- samt, að þar hafi annar maður framar farið; vöktu afköst hans bæði undrun og aðdáun. Lék og hvert verk svo í höndum hans, að óvenju- legt má telja. Fjármaður var hann ágætur, hárglöggur á fé og hross og mikill dýravinur. Ingigerður lifir mann sinn ásamt með tveim sonum þeirra hjóna: Geirfinni, bílstj., til heimilis á Hofstöðum, og Stefáni, sjóm. í Grindavík. Tvö börn misstu þau ung. Stefán á Hofstöðum var hár maður 02: s:ervile2;ur, herðabreiður 02 miðmjór, fagurlimaður, afrendur af afli. Hann var andlitsfriður, skarpleitur, snareygur, glaðlegur í fasi, ljúfur í viðmóti. Hann var greindurvel, gæddur græskulausri kímnigáfu, varpaði stundum fram stöku. Áhuginn og glaðlyndið entist honum til æviloka, þótt farinn væri að heilsu síðustu árin. ,,Hann var einn þeirra manna sem eldast ekki í anda, þótt líkamsþróttur þverri." Stefán gegndi ýmsum trúnaðarstörfum fyrir sveit sína, sat m. a. í hreppsnefnd og sóknarnefnd. Af öllum var hann vitisæll, vaxandi ntaður alla ævi og gæðadren^ur. Þorvaldur Cjuðmiuidsson, fyrrum hreppstjóri og kennari á Sauð- árkróki, lézt þ. 11. október 1961. Hann var fæddur að Hnausum í Þingi 13. okt. 1883, sonur Guðmundar vinnum. þar Gíslasonar, bónda á Mosfelli í Svínadal, Guðmundssonar, og konn hans Guð- bjargar Guðmundsdóttur, ættaðrar úr Vatnsdal.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Glóðafeykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Glóðafeykir
https://timarit.is/publication/1145

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.