Glóðafeykir - 01.11.1971, Síða 49

Glóðafeykir - 01.11.1971, Síða 49
GLÓÐAFEYKIR 49 honum alla tíð; gerði hann, ásamt með fimbulbassanum Benedikt á Fjalli, 4. röddinni þau skil, að unun var að. Ólafur Sigurðsson, bóndi á Hellulandi í Hegranesi, lézt þ. 23. dag októbermán. 1961. Hann var fæddur að Vatnskoti (nri 2 býli: Svana- vatn og Hegrabjarg) í Hegranesi 1. nóv. 1885. Voru foreldrar hans Sigurður bóndi og hreppstjóri á Hellu- landi, áður í Vatnskoti, Ólafsson, albróðir Guðmundar í Asi, sjá Glóðaf. 1968, 8. h. bls. 44, og kona hans Anna Jónsdóttir pró- fasts í Reykholti Þorvarðssonar, prests að Prestsbakka á Síðu, Jónssonar, og konu hans Guðrúnar Skaftadóttur járnsmiðs, smáskammtalæknis og dbrm. í Stöðlakoti í Reykjavík, gáfuð kona og merk. Var Sigurð- ur á Hellulandi maður snjallgáfaður, lands- kunnur hugvitsmaður og uppfinninga, listasmiður. Kippti Ólafi mjög í kyn til beggja foreldra. Ungur fluttist Ólafur með foreldrum sínum að Hellulandi og ól þar allan sinn aldur upp þaðan. Hann lauk búfræðiprófi frá Hóla- skóla 1906, bóndi á Hellulandi frá 1916 til æviloka. Stundaði verk- legt nám í laxaklaki og fiskirækt 1929, var síðan um 20 ára skeið 'andsráðunautur í fiskiræktarmálum, ferðaðist um allt land, flutti fjölda erinda og stofnaði fiskiræktarfélög. Þar var hann frumherj- inn, sem með eldhuga sínum ýtti við mönnum og glæddi áhugann. Þá leiðbeindi hann og um æðarvörp um hríð og fór vítt um þeirra erinda. Heima fyrir hlóðust á hann margháttuð störf: Deildarstjóri Rípurdeildar og fulltrúi á aðalfundum K. S. alla stund frá 1907. Form. búnaðarfélags um árabil, form. Skógræktarfélags Skagf. yfir 20 ár, form. sjúkrasamlags frá upphafi. Hreppstjóri frá 1955. Helzti hvatamaður að stofnun Glóðafeykis og fyrsti ritstjóri ásamt með Marteini Friðrikssyni. Ritaði margt í Frey og fleiri blöð. — Sæmdur riddarakrossi fálkaorðunnar. Ólafur á Hellulandi var hverju máli, því er fram horfði, ótrauður liðsmaður — og frumherji margra, enda hverjum manni hugkvæm- ari. Hann var langsýnn umbótamaður, einblíndi aldrei á stundar- hag, hvorki eiginn né samfélagsins, en var skyggnari flestum á þá þróun, efnalega og andlega, sem máttur samtaka og samvinnu einn fær valdið, þegar unnið er af fullum heilindum. Ólafur Sigurðsson.

x

Glóðafeykir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Glóðafeykir
https://timarit.is/publication/1145

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.