Glóðafeykir - 01.11.1971, Síða 53
GLOÐAFEYKIR
53
„Þótt Pétri væri fjarri að sinna hreppsmálum, þá var hann glögg-
sýnn á þarfir sveitar sinnar og varð sárgramur, er hann mætti þröng-
sýni og afturhaldi. Átti um skeið sæti í hreppsnefnd og var þar vel
ínetinn. Hafði hann fullkomna verðleika til að skipa ábyrgðarmeiri
$töður, en var hlédrægur.“ (K. K.).
Bústýrt Péturs Runólfssonar frá upphafi (1933) og síðar eiginkona
var Helga Ásgrimsdóttir bónda í Efra-Ási, Ásgrímssonar bónda á
Gautastöðum í Stíflu, Steinssonar, og konu hans Sigmundu Skúla-
dóttur, bónda að Minni-Brekku í Fljótum, og Kristínar Stefánsdóttur
Skúlasonar. Lifir hún mann sinn ásamt með tveim dætrum þeirra
hjóna, er úr æsku komust: Kristbjörga, húsfr. í Hofsósi og Ásdísi,
húsfr. í Efra-Ási.
Pétur Runólfsson var meðalmaður að hæð, grannvaxinn, hvat-
legur í hreyfingum, fölleitur og fríður í andliti, fjörlegur á svip.
Hann var ágætlega greindur, hafði yndi af tóniist og var sjálfur
gæddur góðri söngrödd. „Ekki var hann eggjunarfífl né veifiskati,
en vildi halda hlut sínum við hvern sem var að eiga. Hann var ekki
heill heilsu hin síðari árin, en hlífði sér hvergi og vann sér mjög
um megn.“ (K. K.).
Með Pétri Runólfssyni féll um aldur fram góður bóndi og mætur
maður.
Jón Jónsson, bóndi á Steini á Reykjaströnd, lézt 12. febrúar 1962.
Fæddur var hann að Efranesi á Skaga 16. marz 1893, sonur Jóns
bónda þar Jónssonar, bónda á Grófargili og síðar í Torfugarði, Jóns-
sonar bónda á Víðimýri, Björnssonar, og
konn hans Maríu Jóhannsdóttur bónda á
Selnesi á Skaga, Þorkelssonar, en kona Jó-
hanns og móðir Maríu var Ingibjörg
Björnsdóttir hreppstjóra á Selnesi.
Jón missti föður sinn fárra mánaða gam-
all. Ársgömlum var honum komið í fóstur
til hjónanna Sigurfinns Bjarnasonar og Jó-
hönnu Sigurðardóttur, er þá bjuggu á Herj-
ólfsstöðum á Laxárdal ytra, síðar lengi á
Meyjarlandi á Reykjaströnd. Með þeim
hjónum ólst hann upp og gengu þau hon- Jón Jónsson> Steini
um í foreldra stað. Um tvítugsaldur gerðist
hann vinnumaður hjá séra Árna Björnssyni í Görðum á Álftanesi
suður og mun hafa verið þar a. m. k. 2 ár. En eigi festi hann yndi