Glóðafeykir - 01.11.1971, Page 56
56
GLÓÐAFEYKIR
laug mann sinn* ásamt með syni þeirra hjóna, Birni, bónda og
hreppstjóra í Brimnesi, og dætrum hennar tveim af fyrra hjóna-
bandi, stjúpdætrum Gunnlaugs; Huldu, húsfr. á Marbæli í Oslands-
hlíð og Önnu, húsfr. á Laufhóli fáður Litli-
hóll) í Viðvíkursveit.
Gunnlaugur Björnsson var góður meðal-
maður á vöxt. grannvaxinn frekar og grann
leitur, brúnamikill og eigi smáfríður, svip-
urinn gáfulegur og festulegur, augun hvöss
og skutu gneistum, ef honum hitnaði í geði
og átti andstöðu að mæta eða óbilgirni.
Hann var atgervismaður um gáfur, tilfinn-
ingaheitur og tryggur í lund, vinfastur og
vinavandur. Hann var orðfær vel og skáld-
mæltur, mælskur á manntundum, talaði oft
af hita, háum rómi og snjöllum, hlaut jafn-
an gott hljóð og óskipta athygli áheyrenda. Hann var heill maður
og aldrei hálfvolgur, annað hvort var hann með eða móti — og gilti
það jafnt um menn og málefni. Stundum mátti ef til vil) Jrykja, sem
nokkuð skorti á fulla sanngirni. Hann var skapfastur alvörumaður,
einþykkur nokkuð og varð naumast þokað af þeirri línu, er hann
kaus að fylgja, enda djúp sannfæring að baki. En þótt alvara væri
einn gildastur þáttur í eðli hans, var honum þó hávaðalaus gleði og
kímni eiginleg og töm í fámennum hópi. Hann var hlýr og nota-
legur í viðmóti við vini og góða kunningja; heitur í aðdáun, kaldur
í andúð.
Gunnlaugur í Brimnesi var hugsjónamaður eins og fleiri þeir
menn ágætir, sem gengu ungmennafélögunum og samvinnuhreyf-
ingunni á hönd á fyrstu áratugum aldarinnar. En hann var fastheld-
inn að eðlisfari og ekki ginnkeyptur fyrir öllum nýjungum. Skap-
gerðin var um fram allt traust, naumast sveigjanleg að sarna skapi.
Hann var einlægur samvinnumaður. Hann var deildarstjóri Við-
víkurdeildar og fulltrúi á aðalfundum K. S. fjölda ára. Hann sat í
hreppsnefnd Viðvíkurhrepps og var oddviti um skeið. Hann var og
mjög lengi í stjórn Sögufélags Skagfirðinga svo og í stjórn Fram-
sóknarfélags Skagfirðinga.
Gunnlaugur Björnsson var sérstæður um margt, minnilegur mað-
ur og góður drengur.
Gunnlaugur B iörnsson
Sigurlaug lézt 23. febrúar 1971.