Glóðafeykir - 01.11.1971, Blaðsíða 60

Glóðafeykir - 01.11.1971, Blaðsíða 60
60 GLÓÐAFEYKIR framsækinn, en ekki alltaf framsýnn að sanra skapi og reiknaði stund- um skakkt, þessi hárglöggi reikningsmaður. Gestrisinn var hann með afbrigðum, höfðingi sjálfur og höfðingjadjarfur, en lítillátur og Ijúf- ur við þá, sem minna áttu undir sér. Þeir, sem umkomulitlir eru kallaðir, áttu engan mann að einlægara eða trúrra vini en sr. Lárus. Hann var einstakur greiðamaður, vildi öilum gott gera, mikili mannkostamaður haldinn augljósum brestum. Hjartað var úr gulli, liöfuðið margslungið þáttum mikilia vitsmuna og vangæzlu. Sr. Lárus var andans maður. En ekki var hann allur í andanum. Hann lét sér ekkert mannlegt óviðkomandi. Hann luigsaði rnikið og talaði um félagsmál ýmis, búnaðarmál, atvinnumál, sveitarmáiefni og landsmál og ótal margt fleira. En skoðanir hans og málflutningur o o o o O féll ekki ávaiit öðrum í geð, enda fór hann oftast eigin götur og ekki trútt um, að stundum lægju þær leiðir þversum nokkuð. Gat þá á ýmsu oltið um samkomulag við sveitunga og sóknarbörn. Ailt varð þetta til þess, að aldrei bar undir hann þau mannaforráð, er hann taldi sig kjörinn til að fara með. Hitt er víst, að sóknarbörn hans og sveitungar báru til hans hlýjan hug og óskoraða góðvild. Séra Lárus var einlægur trúmaður, sannfærður spíritisti, frjáls- iyndur og víðsýnn guðfræðingur. Hann var óefað einn meðal snjöll- ustu ræðumanna sinna stéttarbræðra. Voru stólræður hans margar og útfararræður frábærar að allri gerð — byggingu, efni og orðfæri. Utan kirkju var hann skennntilegur ræðumaður, gamansamur og fyndinn, harðskeyttur, ef því var að skipta, og hæfði oftast í mark. Var og hvort tveggja, að bæði var hann málglaður og hafði líka oftast eitthvað til mála að leggja. Hann var samvinnumaður, eu vildi stund- um þar, eins og víðar, fara eigin slóðir. Lengi var hann deildarstjóri Akradeildar, sat aðalfundi K. S. og hleypti ósjaldan í þá miklu fjöri. Séra Lárus Arnórsson var skemmtilegur og ágætur félagi. Hann var mikill vinur söngs og ljóða og bar á hvort tveggja hið bezta skyn. Þessu héraði unni hann lieitum huga. Hann var að vísu ekki borinn Skagfirðingur, þótt hann ætti hingað ættir að rekja á aðra hönd. En lúngað í Skagafjörð kom hann í broddi lífs, fullur eldmóðs og áhuga á öllu, er til heilla mátti horfa, andlegra og efnalegra. Örlög og atvik. eigin víti og annarra, ollu því, að hann átti gegn ýmislegum audviðr- um að sækja. En í Blönduhlíð batt lrann rætur, sem eigi brustu. Andstæðinga átti hann oft, innan sveitar og utan, óvini aldrei. Séra Lárus á Miklabæ var lítils vaxtar á velli, en þó svo mikill fyrirferðar í vitund samferðamanna, að um hann skópust þjóðsögur í iifanda lífi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Glóðafeykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Glóðafeykir
https://timarit.is/publication/1145

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.