Glóðafeykir - 01.11.1971, Síða 61
GLOÐAFEYKIR
61
Hannes Kristjánsson, bóndi á Brenniborg á Neðribyggð, lézt
snögglega þ. 30. apríl 1962. Hann var fæddur að Löngumýri í
Blöndudal 7. sept. 1891, sonur Kristjáns bónda á Hafgrímsstöðum í
Tungusveit, Kristjánssonar bónda á Kimba-
stöðum í Borgarsveit, Jónssonar, og bústýru
hans Elínar Arnljótsdóttur bónda á Syðri-
Löngumýri, Guðmundssonar, og konu hans
Gróu Sölvadóttur.
Arsgamall fluttist Hannes með foreldr-
um sínum að Hafgrímsstöðum og missti þar
föður sinn tæpra fjögurra ára gamall. Eftir
lát hans mun Hannes hafa verið í fóstri hjá
frændfólki sínu í Blöndudal vestur, en
hvarf aftur norður hingað áður en langt um
leið og dvaldist hjá móður sinni á Hafgríms-
stöðum og síðan í Llvammkoti, eftir að hún
færði bú sitt þangað árið 1906.
Árið 1915 kvæntist Hannes Sigriði Benediktsdóttur, síðast bónda
á Skörðugili syðra á Langholti, Kristjánssonar, og konu hans Ingi-
bjargar Einarsdóttur bónda á Húsabakka og í Krossanesi, alsystur
Indriða skálds, séra Gísla í Hvammi og þeirra systkina. Var Sigríður
alsystir Egils á Sveinsstöðum, föður Guðlaugar, síðari konu Olafs
Kristjánssonar frá Ábæ (sjá þátt um hann i Glóðaf. 1970, 11. h. bls.
47). Hún var áður gift Pétri Péturssyni frá Grímsstöðum í Svarárdal
fram o. v. Sonur þeirra var Svavar, bóndi á Laugarbökkum á Neðri-
byggð.* Sonur hennar með Þorsteini Magnússyni frá Gilhaga, áður
en hún giftist, er Þorbergur, snjall hagyrðingur, bóndi um skeið á
Sauðá.
Þau Hannes og Sigríður reistu bú í Valagerði á Skörðum 1915 og
biuggu þar til 1919, er þau færðu bú sitt að Hvammkoti í Tungu-
sveit og bjuggu þar til 1933, þá á Reykjum í sömu sveit til 1938, er
þau brugðu búi og fóru í húsmennsku að Vindheimum. Sigríður var
mikil myndarkona og skörugur, en missti heilsuna um eða upp úr
fimmtugsaldri og lá lengstum eftir það á sjúkrahúsi allt til æviloka,
yfir 20 ár. Hún lézt 28. júní 1953. Þau Hannes áttu ekki börn, en
tóku dreng ungan til fósturs, Daníel Ingólfsson frá Steinsstöðum, og
ólu upp sem eigið barn. Um 1950 keypti Hannes Brenniborg og bjó
þar með fóstursyni sínum meðan dagur entist.
* Svavar er nú fluttur þaðan fyrir nokkrum árum.
Hannes Kristjánsson