Glóðafeykir - 01.11.1971, Page 62
62
GLÓÐAFEYKIR
Hannes Kristjánsson var meðalmaður á vöxt, myndarlegur í sjón.
„Hann var vel greindur, talaði aldrei óhugsað, en var ákveðinn í
skoðunum. Hann var vel látinn a£ öllum, sem kynni höfðu af hon-
um.“ (H. B.). Hannes var hygginn fjármálamaður sem þeir bræður
allir, og hafði lengstum snoturt bú. Átti hann þó við ærna örðug-
leika að etja sakir heilsubrests konu sinnar hin síðari ár, leitaði
henni allra lækninga, þótt fyrir lítið kæmi, og reyndist henni sivökull
og nærgætinn förunautur.
Hannes á Brenniboro var í hvívetna mikill sæmdarmaður.
o
Þóroddur Sigtryggsson, til heimilis á Sauðárkróki, andaðist þ. 27.
júlí 1962. Hann var fæddur að Giljum í \7esturdal 22. febrúar 1902,
sonur Sigtryggs bónda þar o. v. Friðfinnssonar, bónda í Stigaseli í
Austurdal o. v., Friðfinnssonar, og konu
hans Ingibjargar Pálsdóttur, síðast bónda á
Bústöðum í Austurdal, Andréssonar, en
móðir hennar og kona Páls var Anna Jóns-
dóttir bónda á Svínavatni vestur, Jóhanns-
sonar. Var Ingibjörg alsystir Tómasar á Bú-
stöðum, föður Eyþórs á Ak. og þeirra br.
Þóroddur ólst upp með foreldrum sínurn
fram um fermingaraldur, var síðan nokkuð
á faraldsfæti, m. a. vinnumaður um skeið
hjá Hrólfi og Valgerði á Ábæ. Fluttist um
tvítugsaldur til Sauðárkróks og vann þar
alla algenga vinnu til sjós og lands; átti um
tíma lítinn bát og reri einsamall. Mun hafa verið allgóður verkmað-
ur og lagvirkur, en heldur þungur til vinnu. Ungur að árum kenndi
hann heilsubrests og gekk eftir það aldrei heill til skógar; ágerðust
vanheilindi hans — e. k. flogaveiki — æ meir og lömuðu þrek hans,
andlegt og líkamlegt. Fór utan til að leita sér lækninga, en kom fyrir
ekki. Var mörg hin síðari árin vistmaður á sjúkrahúsinu á Sauðár-
króki, vann þar ýmis smávik í þágu sjúkrahússins, annaðist sendi-
íerðir o. fl., og rækti þau störf af stakri trúmennsku.
Þóroddur Sigtryggsson var í hærra meðallagi, þrekvaxinn og nokk-
uð feitlaginn upp á síðkastið. Hann hafði góða greind, en naut sín
ekki vegna geðbresta, er stöfuðu af heilsuleysi hans. Hann var skap-
ríkur, hafði mjög ákveðnar skoðanir og róttækar nokkuð, þoldi illa
andmæli. Hann las mikið og fylgdist af áhuga með því sem helzt var
að gerast á hverjum tíma, bæði innanlands og utan. Veðurfar atlnig-
Þóroddur Sigtryggsso7i