Glóðafeykir - 01.11.1971, Síða 64
64
G LOÐAFEY KIR
líf og yndi allt til loka að annast þetta bú með börnum sínum, —
heyskapinn að sumrinu, skepnurnar að vetrinum.
Sjö eru börn þeirra Stefaníu og Sölva: Albert, járnsmiðameistari
á Akureyri, Kristin, verzlunarmær hjá K. S. á Sauðárkróki, Sveinn,
iðnaðarm., Kristján og Sölvi, vélgæzlumenn hjá K. S., allir á Sauðár-
króki, og tvíburabræður yngstir: Jónas, verkstjóri í Kópavogi og
Marinó, iðnverkam. í Reykjavík. Hjá þeim hjónum ólst og upp frá
12 ára aldri bróðursonur Stefaníu, Örn Sigurðsson, (Örn lézt 12. nóv.
1970) og enn ól hún upp, eftir að hún missti mann sinn 1944, sonar-
dóttur sína og nöfnu, Stefaniu Jónasdóttur.
Stefanía Ferdínantsdóttir var eioi há vexti, en tilkomumikil o»'
fönguleg, svipmikil og sviphrein og sópaði af henni. Hún var mikil-
hæf kona, olaðsinna, ör í lund o« viðkvæm. Hún var bráð°áfuð,
ágætlega fróð og stálminnug, ljóðelsk, kunni ógrynni af sögum og
sögnum og sagði skemmtilega frá; hafði mjög góða söngrödd. Mátti
með sanni segja, að henni væri margir hlutir vel gefnir. Hún var góð
kona og hjartahlý; hjá henni áttu allir öruggt athvarf, þeir er minni
máttar voru, menn og málleysingjar. Hún var mikil og einlæg trú-
kona.
Sigvaldi Bergsson, verkam. á Sauðárkróki, lézt 19. sept. 1962. Hann
var fæddur að Mánaskál á Laxárdal fremra 21. júlí 1908, sonur Bergs
bónda þar Sveinssonar og konu hans Jóhönnu Sveinsdóttur, yngstur
7 systkina.
Sigvaldi missti föður sinn tveggja ára
gamall, fór þá með móður sinni að Kirkju
skarði á Laxárdal og var þar á vegum henn-
ar og síðan Ingimundar bónda þar Bjarna-
sonar, er kvæntist Sveinsínu systur hans, til
17 ára aldurs, er þau hjón brugðu búi og
fluttu til Sauðárkróks (1925). Fór Sigvaldi
þá suður á land, en kom aftur eftir ársdviil
syðra, var á Blönduósi og þar í grennd, unz
hann hvarf alfarinn til Sauðárkróks 1933 og
átti þar heima til æviloka. Hann reisti sér
íbúðarhús, er tímar liðu, var í sjálfs-
mennsku, en átti löngum athvarf hjá systrum sínum tveim, er búa á
Sauðárkróki. Hann dó ókvæntur og barnlaus.
Sigvaldi Bergsson var góður meðalmaður á hæð, grannvaxinn, föl-
leitur í andliti, holdskarpur. Hann var greindur maður og bók-
Sigvaldi Bergsson