Glóðafeykir - 01.09.1976, Side 9
GLOÐAFEYKIR
9
lega sterkt, þ. e. eigi orðið máttugur aflvaki, nema það sé félagslega
sterkt, að félagsandi, félagshyggja, sé vakandi meðal félagsmanna,
að þeir þekki mátt sinn til félagslegra átaka, að þeir standi fast og
einhuga saman um félag sitt. Heilbrigð og sanngjörn gagnrýni á
athöfnum og rekstri kaupfélags er sjálfsögð og réttmæt. Slík gagn-
rýni og ábendingar leiða oftast til góðs, til umhugsunar og aukinn-
ar þekkingar. En ég hef allt of oft orðið þess átakanlega var, að
meðal almennings skortir mjög á lifandi áhuga og þó ef til vill
enn meir á þekkingu á eðli og rekstri samvinnufélaga. Þama brest-
ur mikið á að félögin, og þ. á. m. K. S., hafi innt af hendi sjálfsagða
skyldu gagnvart sjálfum sér og almenningi. A engu ríður félögunum
meir en þekkingu fólksins á eðli þeirra og hugsjónum."
„Að lokum fá orð um Glóðafeyki.
.4f ritinu hafa nú komið út 16 hefti og hið 17. er brátt fullbúið
til prentunar. Stuttir æviþættir látinna félagsmanna frá og með ár-
inu 1952 hófu göngu sína í 6. hefti, árið 1967, og hafa komið í
hverju hefti síðan. Með næsta hefti verða þættirnir orðnir 265. Verða
þá óbirtir 92 æviþættir, svo að öllum félagsmönnum séu gerð nokk-
ur skil, þeim sem látizt hafa frá og með árinu 1952 og allt til þessa
dags. Langsamlega flestir þessara þátta eru þegar til í handriti. Hef
ég að jafnaði skrifað þættina þegar að látnum þeim körlum og kon-
um, sem þar er um fjallað hverju sinni. Á ég mörgum þakkir að
gjalda fyrir öflun margháttaðra upplýsinga og ýmissa gagna, og þó
engum meiri en Stefáni frænda mínum Magnússyni, bókbindara á
Sauðárkróki... “ .
„Eg vil svo að endingu þakka kaupfélagsstjóra og félögum mínum
í kaupfélagsstjórn fyrir frábærlega góða og skemmtilega samvinnu,
starfsfólki félagsins fyrir ötulleik og trúmennsku í starfi og félags-
mönnum fyrir stuðning við félagið. Þessum aðiljum öllum árnar
Kaupfélag Skagfirðinga blessunar og heilla.“
ÚR SKÝRSLU FRAMKVÆMDASTJÓRA
Félagsmenn voru í árslok 1975 1327 talsins. . . og hafði fækkað
á árinu um 27. Ég tel því að við verðum að gera nokkra herferð í
héraðinu til þess að fjölga félagsmönnum K. S., og hygg ég að það