Glóðafeykir - 01.09.1976, Blaðsíða 15
GLÓÐAFEYKIR
15
aukauppbót á sauðfjárinnleggið, þannig að 5 kr. viðbótarverð kæmi
á hvert kg. kjöts, en 10 kr. á hvert gærukíló. Þessi aukauppbót mun
nema um 6,4 millj. kr. og verður færð í reikninga viðkomandi að-
ila pr. 1. jan. 1976.
Verulegar breytingar hafa orðið til hins verra hjá ríkissjóði varð-
andi greiðslur útflutningsbóta. Við höfum orðið að bíða eftir þess-
um greiðslum mánuðum saman, og ríkissjóður reynzt ófáanlegur
til þess að greiða vexti á þessar upphæðir. Þetta hefur vissulega
áhrif og ekki hvað sízt hér í Skagafirði, þar sem við höfum verið
látnir flytja út mikið af landbúnaðarafurðum en verðum hér fyrir
umtalsverðum vaxtahalla, sem kemur beint fram í lokaverði til
framleiðenda; er það í raun og veru fráleitt, að þessum vaxtamismun
skuli ekki vera útjafnað þannig að þeir, sem látnir eru sitja fyrir
innanlandsmarkaðinum, taki á sig hluta af þessum kostnaði.
Um síðustu áramót áttum við þannig inni hjá ríkissjóði 53,7 millj.
kr., og voru enn þá ógreiddar þann 1. apríl yfir 44 millj. Allt skap-
ar þetta stóraukna erfiðleika, sem örðugt er að sætta sig við.
A síðasta ári bárust á land í Skagafirði 6.685 tonn af fiski, þar af
6.300 tn. af togurunum. Var þetta 338 tn. aflaaukning frá 1974.
Alls voru 860 tunnur af grásleppuhrognum verkaðar og var það
397 tunnu aukning frá 1974.
Utflutningsverðmæti sjávarafurða úr Skagafirði var talið vera 625
millj. kr. og hafði aukizt um 315 millj. frá f. á.
Rekstur Fiskiðjunnar gekk vel á árinu og varð tekjuafgangur rúm
ein millj. kr. Aftur á móti varð verulegt rekstrartap hjá Útgerðarfél.
Skagf. á árinu 1975, og veldur það miklum áhyggjum. Er því nauð-
synlegt að finna rekstrargrundvöll fyrir þessi stórvirku atvinnutæki.
Allt síðasta ár einkenndist af miklum fjármagnsskorti. Við þurft-
um að semja um mikinn yfirdrátt allt árið, og var það ekki fyrr en
síðustu daga ársins, að þetta lagaðist aftur, eða þegar endanleg upp-
gjör áttu sér stað hjá Seðlabankanum á afurðalánunum í lok des-
embermán.
Það var í fyrsta skipti á árinu 1975, að Seðlabankinn gekk ekki
frá endanlegum afurðalánum út á haustinnleggið í nóvemberlok,
heldur dró greiðslu á verulegum hluta lánanna til desemberloka.
A fyrstu mánuðum ársins þarf að greiða afurðalánin mjög ört
niður, og lækkuðu lánin nú í aprílmánuði einum um 60 millj. kr.
Vegna þeirrar miklu dýrtíðar og verðbólgu, sem nú er í landinu,