Glóðafeykir - 01.09.1976, Blaðsíða 25
GLÓÐAFEYKIR
25
Hækkun rekstrarvara
(Allmargir bændur kaupa búnaðarblaðið Frey. Gera má þó ráð
fyrir að þeir, sem fá Glóðaf. í hendur hér um slóðir séu fleiri en
hinir, sem lesa Frey. Fyrir því þykir eigi illa á því fara að birta
hér smágrein, er kom í 1L—12. h. Freys nú í júnímán. Greinin er
birt með leyfi ritstj. Freys. Fer hún hér á eftir):
„Samkvæmt nýjum upplýsingum hafa rekstrarvörur landbúnaðar-
ins, þær, sem koma inn í verðlagsgrundvöll landbúnaðarvara, hækk-
að sem hér segir frá ársbyrjun 1975. Hækkanir þessar eru, að undan-
skilinni áburðarverðshækkuninni, komnar inn í verðlagsgrundvöll-
inn, en auk þess eru svo ákveðnar en ótaldar hér: nýorðin hækkun
á bensínverði og ýmsar hækkanir á opinberri þjónustu:
Gjaldaliðir: Hækkun í %: Gjaldaliðir: Hækkun í %:
Kjarnfóður 42,2 Varahlutir .... 81,0
Áburður 141,0 Bensín .... 30,8
Timbur 38,7 Dísilolía .... 77,3
Þakjárn 70,1 Smurningsol., frostl., .... 129,7
Málning 79,1 Skuldavextir .... 42,2
Annað 61,1 Fasteignaskattur . . . .... 80,2
Girðingarstaurar 67,5 Rafmagn . . . . 41,7
Gaddavír 181,5 Laun .... 56,3
Flutningskostnaður 28,7 Ýmislegt .... 63,9
Aðk. viðgerðavinna v. véla 46,0 Vegið meðaltal: . . . . .... 57,0
Hækkun þessi nemur samanlagt kr. 1.363.930 útgjaldaaukningu
á ári fyrir grundvallarbúið. Sé reiknað með 5.000 búum, nemur
þessi hækkun útgjaldaauka upp á 7 milljarða fyrir bændur.
Aukning stofnlána.
Á sl. ári jukust stofnlán til sjávarútvegs um 90%. Stofnlán til iðn-
aðar voru aukin um tæp 70%, en til landbúnaðarins jukust stofnlán-
in um 32%. Þess ber þó að geta, að í tölunni yfir stofnlán til land-
búnaðarins eru líka lán til íbúðarhúsa í sveitum, þar á meðal íbúð-
arhús ýmissa annarra en bænda, en eins og kunnugt er, eru fjárfest-
ingar til íbúðarhúsabygginga ekki tíundaðar hjá hinum atvinnu-
vegunum".