Glóðafeykir - 01.09.1976, Blaðsíða 63
GLÓÐAFEYKIR
63
skyldunnar í ríkum mæli. Föður sinn missti Örn skömmu eftir að
hingað kom norður, ílentist hann því á Sauðárkróki og átti þar
heima til efsta dags.
Að loknu barnaskólanámi fór Örn þegar að stunda sjóinn; var sjó-
mennska hans aðalstarf svo og jafnframt ýmiss konar daglaunavinna
m eðan heilsa leyfði, en sakir þráláts magakvilla varð hann að lok-
um að taka upp önnur og léttari störf, kom sér upp litlu en góðu
fjárbúi, vann við fiskmat o. fl. Löngum var hann sárþjáður, lá á
sjúkrahúsum og gekk undir mikinn uppskurð, en fékk aldrei fulla
heilsu. Síðustu 8 árin annaðist hann veðurathuganir á Sauðárkróki.
Arið 1947 kvæntist Örn Guðrúnu Erlu Ásgrimsdóttur frá Mikla-
bæ í Óslandshlíð. Böm þeirra eru 6: Sölvi Stefán, starfsmaður hjá
Reykjavíkurborg, Halldór Ingiberg, starfsm. hjá Loðskinni h/f á
Sauðárkr., Elísabet Ósk, verkak. á Sauðárkr., Arnfriður, Ingólfur og
Anna Björk, öll heima og ung að árum.
Örn Sigurðsson var frekar hár maður og grannvaxinn, fölleitur
og toginleitur. Hann var greindur vel og gæddur miklu andlegu
o o o o o o
þreki, viðmótsþýður og eigi kvartsár, einstakt ljúfmenni og vinsæll
af öllum. Hann var harðduglegur er á heilum sér tók, verklaginn
og vandvirkur, enda eftirsóttur verkmaður.
Reimar Helgason, bóndi á Bakka í Vallhólmi, varð bráðkvaddur
þ. 21. nóv. 1970.
Hann var fæddur á Kirkjuhóli hjá Víðimýri 27. maí 1902, sonur
Helga bónda þar o. v. Guðnasonar og konu
hans Sigurbjargar Jónsdóttur bónda á
Króksstöðum í Kaupangssveit, Jónssonar,
en kona Jóns og móðir Sigurbjargar var
Rósa Sigurðardóttir frá Hálsi í Fnjóskadal.
\7ar Reimar hálfbróðir, samfeðra, þeirra
tvíburabræðra, Björgvdns og Sigurðar, sjá
Glóðaf. 1969, 9. h. bls. 46 og 1970, 11. h.
bls. 58.
Reimar ólst upp með foreldrum sinum á
Kirkjuhóli til 12 ára aldurs, er hann missti
móður sína (1914), fór þá að Löngumýri í
Hólmi til Jóhanns bónda Sigurðssonar og
konu hans Sigurlaugar Ólafsdóttur. Hjá þeim mætu og merku hjón-
um var hann allt til 1945, lengstum vinnumaður, og vann þeim af
fádæma dugnaði og trúmennsku. Kom hann sér upp á þeim árum