Glóðafeykir - 01.09.1976, Blaðsíða 65
GLOÐAFEYKIR
fi5
Rafn Guðmundsson á Sauðárkróki lézt þ. 13. jan. 1971.
Hann var fæddur í Ketu á Skaga 21. júní 1912. Voru foreldrar
hans Guðmundur bóndi þar Rafnsson, bónda þar Guðmundssonar,
bónda á Kleif, Einarssonar, og kona hans
Sigurbjörg Sveinsdóttir bónda í Ketu
Magnússonar, bónda á Akri á Skaga o. v.,
(hvarf til Yesturheims), Sveinssonar. Kona
Sveins í Ketu og móðir Sigurbjargar var
Sigurlaug Guðvarðsdóttir lengi bónda á
Kráksstöðum í Hrolleifsdal, Þorsteinssonar.
Rafn var í Ketu með foreldrum sínum
unz þau slitu samvisutm er hann var 7 ára
gamall. Eftir það var hann enn í Ketu um
hríð með móður sinni og stjúpa, Magnúsi
Árnasyni, er reyndist honum sem bezti fað-
ir. Um 17 ára aldur fór hann að heiman, var
á vertíð syðra um vetur en í síld á sumrum, stundum og í vegavinnu.
Var ágætur verkmaður, hvort heldur var á sjó eða landi, duglegur,
ósérhlífinn og kappsamur.
Haustið 1934 innritaðist Rafn í Eiðaskóla og stundaði þar nám
vetrarlangt. Skömmu eftir að heim kom um vorið veiktist hann hast-
arlega af lömunarveiki, lá fyrst um stund á sjúkrahúsinu á Sauðár-
króki og síðan á Landspítalanum í Reykjavík í 4 ár, var þá aftur
fluttur norður hingað og lá hér önnur 4 ár á sjúkrahúsinu. Eftir 8
ára spítalavist og rúmlega þó, án nokkurrar batavonar, hvarf hann,
ásamt með konu sinni, heim til móður sinnar og stjúpa, er þá voru
flutt til Sauðárkróks, unz þau hjónin reistu nokkru síðar sitt eigið
hús og bjuggu þar síðan.
Nú má nærri um það fara, hvílík þolraun það hefur verið ung-
um og hraustum og framagjörnum manni, að horfa fram á ævilöng
örkuml. En Rafn lét hvergi deigan síga. Hann var gæddur andlegri
karlmennsku, miklum lífsþrótti, öruggu trúartrausti. Hann var
umsvifamaður að eðlisfari, hygginn í bezta lagi og sá, með aðstoð
sinnar ágætu konu, heimilinu farborða með þvílíkum hætti, að fáir
mundu eftir leika. Hann gerði um tíma út eigín vörubifreið, rak
um skeið verzlun í félagi við annan mann, annaðist bókhald fyrir
sjálfan sig og aðra, en reikning og bókfærslu hafði hann numið í
Bréfaskóla S.Í.S.
Síðla árs 1943 kvæntist Rafn Arndisi Jónsdóttur verkam. á Sauðár-
króki Magnússonar, bónda á Hraunsnefi í Öxnadal, og konu hans
Rafn Guðmiindsson