Glóðafeykir - 01.09.1976, Qupperneq 37
GLÓÐAFEYKIR
37
Leiði er flúinn, létta stökn
látum fljúga um tjöld.
Heiðarbúar Hallgrímsvöku
hefja nú í kvöld.
Og eftir að Hallgrímur var farinn fæddist þessi vísa:
Stóran vinning unnum á
ykkar kynningunni,
ljós í inni eigum frá
endurminningunni.
O
Eftir þetta kom Hallgrímur ævinlega í tjöldin til okkar þegar
hann var þarna á ferðinni. Og nokkru seinna barst svo kassi í sælu-
húsið á Hveravöllum, utanáskrift: Til varðmannanna á Kili. Bréf
frá Hallgrími fylgdi með og brennivínsflaska. I bréfinu þakkaði
Hallgrímur viðtökurnar, sagði sendinguna skýra sig sjálfa en auð-
vitað var vísa með í förinni:
Eg er send á ykkar fund,
undir vinarlínum,
gleðjist eina aftanstund
yfir skálum mínum.
Þegar flaskan kont í tjaldið var hún látin niður. Svona var nú hóf-
semin. Signrður Jónasson var nú orðinn varðstjóri, þ.e. eftirlits-
maður með sauðfjárveikivörnum í Húnavatns- og Skagafjarðarsýsl-
um. Nú stóð svo á, að von var á Sigurði frameftir til okkar kvöldið,
sem flaskan konr frá Hallo-rími. Ólafur í Alftagerði átti alltaf vín en
var jafnan tregur til að byrja að drekka í verðinum, en hinsvegar
ótrauður við áframhaldið, þegar af stað var komið. Magnús Frí-
mannsson vildi ólmur að við gæddum okkur þegar á innihaldi flösk-
unnar. Hún væri okkur ætluð og engin ástæða til þess að geyma
hana handa gestum, jafnvel þótt varðstjórar væru. Eg dró heldur
úr að við færum að drekka því það væri ekki gott til afspurnar, að
við værum allir fullir þegar varðstjórinn kæmi. En Maggi var hinn
versti yfir þessari tregðu okkar, sem honum þótti með hreinum ólík-
indum. svo það varð úr, að við Óli létum undan og flaskan var tek-
in upp. Gerðist nú brátt mikill gleðskapur. Þegar langt var komið
ttr flöskunni heyrðum við að rösklega var riðið í hlaðið. Eg fór út