Fréttablaðið - 13.04.2016, Page 4
Leiðrétt
Rangt var farið með nafn
upplýsingafulltrúa Isavia ohf. í frétt
á síðu 4 í gær. Hann heitir Guðni
Sigurðsson.
Frá kr.
109.900
m/morgunmat
MADEIRA
24. apríl í 10 nætur
Netverð á mann frá kr. 109.900 m.v. 2 í herbergi.Hotel Dorisol
SÉRTILBOÐ
Bir
t m
eð
fy
rir
va
ra
um
pr
en
tvi
llu
r.
He
im
sfe
rð
ir á
sk
ilja
sé
r r
étt
til
le
iðr
étt
ing
a á
sl
íku
. A
th.
að
ve
rð
ge
tur
br
ey
st
án
fy
rir
va
ra.
Örfá sæti
laus
SKAttUr Frumvarp þess efnis að þeim
sem sjálfviljugir gefa upp vantaldar
tekjur eða eignir sem geymdar eru í
skattaskjólum verði ekki refsað vegna
brota á skattalögum hefur enn ekki
verið lagt fram rúmu ári eftir að starfs-
hópur kynnti drög að frumvarpinu.
Það er heldur ekki á þingmálaskrá.
Bjarni Benediktsson fjármála-
ráðherra skipaði starfshóp um gerð
griðareglna og úttekt á úrræðum
skattyfirvalda til að sporna gegn
skattsvikum. Þetta gerði hann í des-
ember 2014 í kjölfar erindis sem barst
skattrannsóknarstjóra vegna tilboðs
um kaup á upplýsingum um félög
sem skráð eru í þekktum skattaskjól-
um. Starfshópurinn skilaði skýrslu og
kynnti drögin að frumvarpinu þann
6. mars í fyrra.
Frosti Sigurjónsson, formaður efna-
hags- og viðskiptanefndar Alþingis,
segir að fjármálaráðherra hafi lagt
það í hendur nefndarinnar hvort hún
vildi flytja málið. „Fjármálaráðherra
ætlaði ekki að flytja málið sjálfur og
vildi að það yrði samstaða um það.
Þetta yrði mjög viðkvæmt pólitískt
mál. Menn gætu gagnrýnt það ef hlífa
ætti einhverjum. Menn myndu strax
hoppa á þann vagn að ráðast á ráð-
herrann fyrir að gera það.“
Frosti kveðst hafa beðið fulltrúa
í nefndinni að tjá sig um hvað þeir
vildu gera. „Tveir eða þrír í minni-
hlutanum óskuðu eftir að fá að ræða
við þingflokka sína. Það kom ekkert
til baka út úr því. Málið var rifjað
upp um daginn. Enn voru menn ekki
vissir hvað þeir vildu gera. Mér finnst
ekki sterk skoðun í nefndinni með
eða á móti. Þetta hefur kosti og galla.“
Hann getur þess að hann hafi haft
samband við skattrannsóknarstjóra
vegna málsins. „Þau eru sannfærð um
að það væri fengur fyrir ríkissjóð að
geta boðið upp á kerfi sem felur í sér
að menn sjái sér hag í því að koma
fram. Þeir myndu ekki sleppa við að
borga skatta með álögum en refsingin
yrði hugsanlega engin. Það verður að
horfast í augu við að það er kannski
ekki geta hjá skattrannsóknarstjóra
til að rannsaka alltaf öll mál til hlítar.
Mögulega kæmu einhverjir fram sjálf-
viljugir sem ekki hefðu náðst annars.“
Katrín Jakobsdóttir, formaður
Vinstri grænna, segir það rök með
málinu að árangur hafi náðst með
griðareglum á Norðurlöndunum.
„Mér hefði hins vegar þótt eðlilegt
að skoða málið heildstætt. Það hefði
verið erfitt fyrir nefndina að taka póli-
tíska ábyrgð á þessum anga þegar við
vitum að mikil þörf er á að efla starf-
semi ríkisskattstjóra og skattrann-
sóknarstjóra og skoða hvernig við
getum bætt skattaeftirlit í daglegri
framkvæmd.“ ibs@frettabladid.is
Ekki samstaða um griðareglur
Starfshópur kynnti í mars í fyrra drög að frumvarpi um refsileysi fyrir þá sem koma fram úr skattaskjólum.
Frumvarpið hefur enn ekki verið lagt fram. Fjármálaráðherra lagði í hendur nefndar hvort flytja ætti málið.
Fjöldi skattaskjólsmála hefur tengst Lúxemborg.
Fjármálaráðherra
ætlaði ekki að flytja
málið sjálfur og vildi að það
yrði samstaða um það. Þetta
yrði mjög viðkvæmt póli-
tískt mál.
Frosti Sigurjónsson,
formaður efna-
hags- og viðskipta-
nefndar Alþingis
Það hefði verið
erfitt fyrir nefndina
að taka pólitíska ábyrgð á
þessum anga þegar við
vitum að mikil þörf er á að
efla starfsemi ríkisskattstjóra
og skattrann-
sóknarstjóra.
Katrín Jakobsdóttir,
formaður Vinstri
grænna
SAKAmáL Rannsókn á meintri fjár-
kúgun systranna Malínar Brand og
Hlínar Einarsdóttur á hendur Helga
Jean Claessen er enn á borði rann-
sóknarlögreglu og mun líklega verða
í nokkrar vikur til viðbótar.
Runólfur Þórhallsson, yfirlögreglu-
þjónn hjá lögreglunni á höfuðborgar-
svæðinu, segir það vera vegna þess að
síma- og tölvugögn hafi reynst mun
umfangsmeiri yfirferðar en reiknað
var með.
Héraðssaksóknari mun bíða með
að gefa út ákæru á hendur systrunum
fyrir fjárkúgun á hendur Sigmundi
Davíð Gunnlaugssyni, fyrrverandi
forsætisráðherra, þar til rannsókn
þessari er lokið. Meginreglan er að
afgreiða öll mál á sama sakborning
saman og er það sérstaklega mikil-
vægt ef gefin er út ákæra.
Rannsókn lögreglu á tilraun systr-
anna til að kúga fé út úr Sigmundi
Davíð lauk í október síðastliðnum og
var málið þá sent til ríkissaksóknara.
Um áramótin færðist málið til héraðs-
saksóknara þegar lögum um meðferð
sakamála var breytt.
Það var í fyrravor sem systurnar
sendu bréf á heimili forsætisráð-
herra þar sem þær höfðu í hótunum
og kröfðust peninga. Þær voru hand-
teknar í júní þegar þær hugðust sækja
féð. Nokkrum dögum síðar kærði
Helgi Jean, sem er fyrrverandi sam-
starfsmaður Hlínar, þær systur fyrir
fjárkúgun en þær sökuðu hann um
kynferðisbrot. – kbg
Rannsóknin á fjárkúgunarmáli systranna dregst á langinn
Systurnar bíða málalykta vegna til-
raunar til að kúga fé úr fyrrverandi
forsætisráðherra.
HeiLbrigðiSmáL „Það eru vonbrigði
að það er ekki gert ráð fyrir við-
bótarfjármagni í heilsugæsluna,“
segir Þorbjörn Jónsson, formaður
Læknafélags Íslands.
Stjórn Læknafélagsins sendi frá
sér yfirlýsingu í gær og lýsti áhyggj-
um af fjármögnun heilsugæslu á
höfuðborgarsvæðinu. Útboðs-
gögn fyrir rekstur þriggja nýrra
heilsugæslustöðva voru kynnt á
föstudaginn hjá Sjúkratryggingum
Íslands. „Markmiðið er að bæta
þjónustu við íbúa á höfuðborgar-
svæðinu. Það gerist ekki með því
að dreifa krónunum á fleiri staði.“
Þorbjörn segir rekstur heilsu-
gæslunnar nú þegar undirfjár-
magnaða og segir stjórn Lækna-
félagsins skora á stjórnvöld að
bæta úr og auka fjármagnið. „Það
væri dapurlegt ef fáir eða engir
treysta sér til þess að standa að
rekstri stöðvanna af raunveru-
legum áhuga. Hugmyndin þarf að
vera fullútfærð því það er stefnt að
því að afgreiða þessi mál tiltölulega
fljótt, eða fyrir lok maí.“ – kbg
Áhyggjur af
fjármögnun
heilsugæslu
ViðSKipti Tekjur ítalska lúxus-
merkisins Prada drógust saman um
26,6 prósent á síðasta ári samkvæmt
nýjum tölum.
Asíubúar, sér í lagi Kínverjar, eru
gríðarlega mikilvægur viðskipta-
hópur lúxusvörumarkaðarins. Þriðj-
ungur af sölu Prada á heimsvísu á sér
stað í Asíu. Hlutabréf í Prada hafa
lækkað um 42 prósent á síðustu tólf
mánuðum, að því er talið er vegna
erfiðra efnahagsskilyrða í Kína.
Sala dróst einnig saman á síðasta
ári hjá til að mynda Louis Vuitton,
Burberry og Hugo Boss.
Í lok síðasta árs spáði ráðgjafar-
fyrirtækið Bain & Co. því að vöxtur
á lúxusvörumarkaði myndi vera sá
minnsti árið 2015 frá 2009. Hluta-
bréfamarkaðir í Kína hrundu í ágúst
í fyrra og varð svipuð niðursveifla í
byrjun árs 2016. Mikil óvissa hefur
einkennt asíska markaði í framhaldi
af því. Tekjuvöxtur hjá lúxusvöru-
fyrirtækjum gæti því einnig orðið
lítill á þessu ári. – sg
Árið 2015 var erfitt ár fyrir lúxusmerki
Hlutabréf í Prada hafa lækkað um 42 prósent á síðustu tólf mánuðum.
FréttabLaðið/Getty
Markmiðið er að
bæta þjónustu við
íbúa á höfuðborgarsvæðinu.
Það gerist ekki með því að
dreifa krónunum á fleiri
staði.
Þorbjörn Jónsson,
formaður
Læknafélags
1 3 . A p r í L 2 0 1 6 m i ð V i K U D A g U r4 f r é t t i r ∙ f r é t t A b L A ð i ð
1
3
-0
4
-2
0
1
6
0
4
:1
0
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
9
0
B
-6
1
E
0
1
9
0
B
-6
0
A
4
1
9
0
B
-5
F
6
8
1
9
0
B
-5
E
2
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
4
8
s
_
1
2
_
4
_
2
0
1
6
C
M
Y
K