Fréttablaðið - 13.04.2016, Síða 8
StjórnSýSla Í nýju ársriti VIRK
starfsendurhæfingarsjóðs kallar
Gylfi Arnbjörnsson, forseti Alþýðu-
sambands Íslands og stjórnarfor-
maður VIRK, eftir því að lokið verði
við endurskoðun almannatrygg-
ingakerfisins með nýjum lögum.
Nefnd um endurskoðunina skilaði
skýrslu sinni og ráðleggingum til
Eyglóar Harðardóttur, húsnæðis- og
félagsmálaráðherra 1. mars. Mælt er
með að ný lög taki gildi um næstu
áramót.
„Í allt of langan tíma hefur þessu
stagbætta og löngu úrelta kerfi verið
haldið gangandi vegna samstöðu-
leysis um breytingar og ekki með
nokkrum hætti hægt að sætta sig við
óbreytt ástand lengur,“ segir Gylfi í
ávarpi sínu í ársritinu. Hann harmar
um leið að ekki hafi tekist að tryggja
breiða samstöðu um niðurstöðu
nefndarinnar þar sem Öryrkja-
bandalagið hafi skilað séráliti með
stuðningi stjórnarandstöðunnar.
„Þó hægt sé að hafa skilning á því
að ÖBÍ vilji ganga lengra í bæði
bótarétti og bótafjárhæðum, eru
það mikil vonbrigði að bandalagið
sjái ekki sóknarfærin í einföldun
almannatryggingakerfisins, upp-
töku hlutabótaréttar í örorku og
innleiðingu starfsgetumatsins.“
Samtök á vinnumarkaði, lífeyris-
sjóðir og stjórnvöld hafa um alllangt
skeið velt fyrir sér leiðum til að snúa
við þeirri þróun sem hér hefur verið
síðustu ár að fleiri hverfi af vinnu-
markaði vegna örorku á ári hverju
Vilja stagbætt og löngu úrelt kerfi burt
Stjórnarformaður VIRK starfsendurhæfingarsjóðs harmar samstöðuleysi innan nefndar um endurskoðun almannatryggingakerfisins.
Nefndin skilaði af sér í marsbyrjun. Frumvarp sem byggir á áliti hennar er meðal mála sem ný ríkisstjórn vill klára fyrir haustið.
Tæplega 9.800 hafa leitað til VIRK starfsendurhæfingarsjóðs á þeim sjö árum sem
sjóðurinn hefur starfað, nú eru 1.950 einstaklingar í þjónustu á vegum hans.
FRéTTablaðIð/VIlhelm
en sem nemi náttúrulegri fjölgun á
vinnumarkaði. Hluti af þeirri lausn
sé að hverfa frá kerfi örorkumats
og taka upp mat á starfsgetu fólks
og markvissan stuðning til handa
hverjum og einum til þess að hann
komist aftur á vinnumarkað, ýmist
að fullu eða að hluta.
Þessi nálgun er viðhöfð í skýrslu
nefndarinnar, sem nú síðast hefur
verið kennd við Pétur Blöndal,
þingmann Sjálfstæðisflokksins, en
hann lést skömmu áður en hún lauk
störfum. Þorsteinn Sæmundsson,
þingmaður Framsóknarflokks og
varaformaður nefndarinnar, tók við
keflinu og skilaði skýrslu nefndar-
innar til ráðherra.
Fram kom í máli Þorsteins í
umræðum á Alþingi um vantrausts-
tillögu stjórnarandstöðunnar á
nýskipaða ríkisstjórn Sigurðar Inga
Jóhannssonar að frumvarpið sem
byggir á tillögum nefndarinnar væri
eitt þeirra mála sem ríkisstjórn-
in legði áherslu á að ljúka áður en
kæmi að alþingiskosningum sem
fram hefur komið að ríkisstjórnin
vilji flýta og halda í haust. „Það er
frumvarpsvinna í gangi sem byggir
á störfum Pétursnefndarinnar svo-
kölluðu um endurskoðun almanna-
tryggingakerfisins, sem mun koma
öllum þeim sem lakar standa til
góða, einfalda kerfið og veita fólki
ný tækifæri gegnum starfsgetumat,“
sagði hann í umræðunum síðasta
föstudag.
Í nýju ársriti VIRK er vitnað til
útreikninga Talnakönnunar á þjóð-
hagslegri hagkvæmni þess að styðja
fólk til sjálfsbjargar þannig að það
komist út úr örorkugreiðslum, hvort
heldur sem er að hluta eða í heild.
Í samantekt Vigdísar Jónsdóttur,
framkvæmdastjóra VIRK, kemur
fram að ávinning af starfsemi sjóðs-
ins megi meta á 13,8 milljarða króna
á síðasta ári, á meðan rekstrarkostn-
aður við hann hafi numið 2,2 millj-
örðum króna. olikr@frettabladid.is
15
12
9
6
3
0 2013 2014 2015
✿ rekstrarkostnaður
og ávinningur VIrK*
*Útreikningur Talnakönnunar á þjóð-
hagslegum ávinningi á móti kostnaði við
starfsemi VIRK.
Heimild: VIRK, ársrit um starfsendur-
hæfingu 2016.
n Rekstrarkostnaður
n Ávinningur
ma.kr.
1,3
2,0 2,2
9,7
11,2
13,8
Það er frumvarpsvinna í gangi sem byggir á störfum Pétursnefndarinnar svokölluðu um
endurskoðun almannatryggingakerfisins.
Þorsteinn Sæmundsson, þingmaður Framsóknarflokks
ÁRSFUNDUR LANDSVIRKJUNAR 2016
Hilton Reykjavík Nordica
Fimmtudaginn 14. apríl kl. 14
• Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra
Ávarp
• Jónas Þór Guðmundsson stjórnarformaður Landsvirkjunar
Ávarp
• Hörður Arnarson forstjóri Landsvirkjunar
Ragna Árnadóttir aðstoðarforstjóri Landsvirkjunar
Auðlind fylgir ábyrgð
• Edda Hermannsdóttir stjórnar umræðum að erindum loknum
Auðlind
fylgir ábyrgð
Ársfundur Landsvirkjunar verður haldinn á Hilton Reykjavík
Nordica fimmtudaginn 14. apríl kl. 14-16. Þar kynnum við
fjárhag og framtíðaráætlanir fyrirtækisins og hvetjum
til opinnar umræðu um þau tækifæri og áskoranir sem
framundan eru. Bein útsending verður frá fundinum á
landsvirkjun.is.
Allir velkomnir
Skráning á www.landsvirkjun.is
1 3 . a p r í l 2 0 1 6 M I Ð V I K U D a G U r8 f r é t t I r ∙ f r é t t a B l a Ð I Ð
1
3
-0
4
-2
0
1
6
0
4
:1
0
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
9
0
B
-7
0
B
0
1
9
0
B
-6
F
7
4
1
9
0
B
-6
E
3
8
1
9
0
B
-6
C
F
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
0
4
8
s
_
1
2
_
4
_
2
0
1
6
C
M
Y
K